Tíminn - 20.11.1977, Page 15

Tíminn - 20.11.1977, Page 15
Sunnudagur 20. nóvember 1977 15 Tíminn heimsækir Stöðvarfjörð Stöðvfirzkar húsmæður við fiskvinnu i þeim hluta frystihússins á Stöðvarfirði sem tekinn hefur verið i notkun. Þær gáfu sér ekki tima til að lita upp úr fiskinum. Undanfarin ár hefur verið um timabundið atvinnuleysi að ræða ár hvert, en nú eru flestir Stöðvfirðingar á þeirri skoðun að það verði úr sögunni með tiikomu nýja togarans. — Og þetta er auðvitað lang- stærsti vinnuveitandinn hér, hvað vinna margir hjá HSS? — Já, þetta er náttúrulega langstærsti vinnuveitandinn hér og sá eini i sjévarútvegi en fjöldi þeirra sem starfar hjá okkur er nokkuö breytilegur eftir árstið- um svona frá 80 og upp i 120 manns. Töluverður hluti okkar starfsfólks er auðvitað kvenfólk, sem vinnur þá heilan eða hálfan dag eftir atvikum. — Hvernig hefur reksturinn gengið frá sameiningu og fram til þessa? — Eins og allir vita, hafa ver- ið töluverðir erfiðleikar i sjávarútvegi, og höfum við ekki farið varhluta af þeimfrekar en aðrir staðir. Við höfum staðið i stórræðum ef svo mætti segja, en þegar á heildina er litið er bjart framundan. Atvinnuleysi var hér nokkuð um og upp úr siðustu áramótum, en nú höfum við togarann, og erum þvi bjart- sýnir á að hér verði næg atvinna á næstunni. — Svo þú ert bjartsýnn á framtið fyrirtækisins? — Já ég er bjartsýnn á hana. Með þvi að hafa allan rekstur á einni henditelég að hægt eigi að vera að jafna sveiflur milli ein- stakra framleiðslugreina, þann- ig að ef vel gengur, t.d. I verk- smiðjurekstri, eins og nú,á það að hjálpa til við að halda fyrir- tækinu gangandi. A öðrum tima er svo hægtaö beina vinnuaflinu i annað. Togarinn hefur aflað fyrir 50-60 milljónir — Svo við snúum okkur að togaranum, hvað kostaði hann? — Hingað kominn kostaöi hann um 670 milljónir og veiðar- færi um 25 milljónir, þannig að heildarverð er alveg um 700 milljónir. — Að hvað miklu leyti var fé lánaö til kaupa á togaranum? — Það voru að sjálfsögðu all- há lán sem við fengum. Þetta er eitt siðasta skipið sem fékk lán með rikisábyrgð, og það þýðir að erlend lán lán fengust fyrir um 80% af kaupverði sem síðan er endurlánaö hér hjá Fisk- veiðasjóði og Rikisábyrgða- sjóði. Þá hefur Byggðasjóöur lánað okkur talsvert fé og enn- fremur Landsbankinn, og þess má einnig geta, að ibúar hér lögðu fram um 12-13 milljónir. — Hvernig hefur togarinn veitt þann stutta tima sem hann hefur verið á veiðum? — Hann hefur veitt ágætlega, og ég heid aö aflinn sé nú eitt- hvaðum520-30 tonn og verömæti aflans nálægt 50-60 milljónir.Sá fiskur sem hann hefur fengið hefur verið ágætur og betri en oft áður. Hann er með fiskkassa og er fiskurinn þvi velmeðfar- inn, þegar hann er tekinn til vinnslu. — Hvernig er viögerðarþjón- usta fyrir togarann? — Við erum ekki búnir að koma okkur upp þeirri aðstöðu sem fyrirhugað er að verði fyrir hann i náinni framtið. Við höf- um að visu mann á okkar snærum, sem sér um bobbinga, hlera og annað þess háttar. Þá höfum við lika notiö aðstoðar ,,Ég ætla nú að taka af mér pott- lokið, ef það á að fara að mynda mann, sagði Sverrir Ingimundarson, þegar blaða- maður kom sér i skotstöðu. Sverrir hefur lengst af búið á Stöðvarfirði og segist ekki vilja vera annars staðar. Hann hefur lengi unnið i fiski eða verið á sjó, eins og svo margir i sjávarplássum eins og Stöðvarfjörður er. bifvélavirkja og rafvirkja, sem búsettir eru hér. Einnig höfum við mann sem sér um veiðarfæri skipsins, en fram að þessu hefur ekki verið mikið að gera fyrir þessa menn, þar sem skipiö er nýtt, sagði Guðjón Smári að lokum. Kynningarfundur fyrir böm áfengissjúkra í tilefni af 1 árs afmæli ALA- TEEN á íslandi, sem var 18. nóv. s.l. hefur verið ákveðið að halda opinn kynningarfund um starf- semi ALATEEN. ALATEEN er fyrir börn áfengissjúkra á aldrinum 12 til 20 ára ALATEEN er einn þáttur i fjöl- skyldumeðferð vegna ofdrykkju og i ALATEEN ættu börn og ung- lingar sem búa við þær aðstæður að ofdrykkja herji á heimilum þeirra að geta fundið þann styrk og von sem þau þurfa og þora ekki að fara fram á hjá jafnöldr- um sinum sem þekkja ekki til áferigisvandamálsins. Kynningarfundurinn verður haldinn i TÓNABÆ miðvikudag- inn 23. nóv. klukkan 20. ,,Ef þú ert á aldrinum 12 til 20 ára og telur að það sé áfengis- vandamál i þinni fjölskyldu, þá .................. j Tíminner • • peningar i j Auglýsicí íTímanum! • _ _ ____________ _ j i tiiiumiu.. . viljum við hvetja þig til að koma á fundinn og kynna þér þær leiðir sem við förum til þess að við, BÖRNIN. getum lifað okkar eigin lifi án áhrifa frá sjúkdómn um ALKOHOLISMA”.... segir i fréttatilkynningu frá samtökun- um. Frystiskápar og kistur í úrvali frá m Bauknecht * Fljót og örugg frysting. * Öruggar og ódýrar i rekstri. Kl * Sérstakt hraöfrystihólf. ðA * Einangraöar að innan með áli. * Eru meö inniljósi og læsingu. * * 3 öryggisljós sem sýna ástand tækisins og margir fleiri kostir. Greiösluskilmálar eða staögreiðsluafsláttur. (BaukiiE cht veit hvers konan þarfnast SAMBAND ISLENZKRA SAMVINNUFELAGA ARMULA 3 REYKJAVIK, SIMI 38900 17nóv.,-á 15áraafmæli bankans, opnuðum við IS.útibú bankans að Suöurlandsbraut 18 AFGREIÐSLUTIMI ÚTIBUSINS ER FRÁ 9.30-12.00 OG FRÁ 12.30-16.00 ALLA VIRKA DAGA NEMA LAUGARD. STARFSFÓLK ÚTIBÚSINS ER PÁLMI GÍSLASON, KRISTÍN KÁRAD. OG SIGRÍÐUR ÁSGEIRSDÓTTIR. SÍMINN ER 82977 Samvinnubankinn

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.