Tíminn - 20.11.1977, Qupperneq 18

Tíminn - 20.11.1977, Qupperneq 18
18 Sunnudagur 20. nóvember 1977 menn og málefni Bólgið þjóðfélag Bankabólgan í Reykjavík 1 helgri skrift er sá maður hygg- inn sagður, er reisir hús sitt á bjargi, þvi að það mun standast storma og vatnsflóð, þegar þær byggingar, sem hrófað hefur verið upp á sandi, fara forgörð- um. Hér er aö visu i likingum talað, þvi aðþetta erdæmisaga, og ekki haft i huga veraldlegt athvarf fólks. En með þvi að dæmi er tekið af einum þætti i hversdags legu amstri fólks, sem hefui verið eitt og hið sama i eðli sinu allt frá þvi mannskepnan fór aC gera sér skýli, er til langframa skyldu vera, er það enn i sama gildi og austur i Gyöingalandi fyrir tvö þúsund árum, þótt skilið væri eftir beinni hlj óðan orð- anna. Svo raunsönn er þessi dæmi- saga i f jallræðunni, sem reyndar er kölluð slétturæðan i öðru guð.- spjalli, að hún getur auk þess þjónað sem liking á fleiri vegu en þann, er henni er þar ætlað. Og einmitt vegna þess er drepiö á hana hér. Fólká flæðiskeri 1 bókstaflegum skilningi talað: Hús skulu menn ekki reisa á sandi, þvi að þau falla, og þeim mun hættara er þeim, sem þau eru háreistari. f jafpbókstafleg- um skilningi er sérhverri samfé- lagsbyggingu hætt, efhún hvilirá veikum grunni. Það á við um ein- stök fyrirtæki manna, samtök öll. atvinnuvegi, byggðalög og siðast en ekki sizt sjálfa þjóðfélags- bygginguna. Sé einhver hom- steinninn ótryggur, laskast hún — sé grundvöllurinn sundurgrafinn, steypist hún. Þannig er þyngdar- lögmálið. Lögmál láta yfirleitt ekki aö sér hæða, enda væru þau þá ekki lengur lögmál. Margar ástæöur valda þvi, að timabært getur verið fyrir Islend- inga, að láta hugann aðeins hvarfla að þessu og þviliku á milli sólarferða og glæsibæjarballa og annars þjóðargamans sem rækt er af hörkudugnaöi. Nú er aö visu ekki svo að skilja, að fólki sé of gott að lyfta sér upp. En það þarf aö minnsta kosti að haldast i hendur við upplyfting- una, að þjóðin vinni fyrir sér, og það óumflýjanlega við þesskonar störf, sem gefa arð, og er þá átt við þess slags vinnu, er gefur uppskeru eða afrakstur, er annað iveggja uppfyllir raunverulegar þarfir okkar sjálfra heima fyrir eða gjaldgeng er i skiptum við aðrar þjóðir. En þess konar hag- vöxtur hefur að minnsta kosti ekki haldizt I hendur við þá fjár- muni, er við höfum látið renna úr landi, hvað þá að við höfum af eigin dáðum staðið undir stór- virkjum, sem á döfinni eru og i öðru orðinu eru þó kölluð gerð fyrir framtiðina. En nota bene: Reikningurinn skal borgast seinna, ásamt gjaldeyrishallan- um. Barniö, sem fæddist i gær, fékk skuldakröfu, sem nemur vænum hluta milljónar, lagðar undir svæfilinn sinn. Þannig er þjóðfélagið á eins konar flæöiskeri. Þaö hækkar i, verðbólgan gengur i þungum öldum yfir skerið, útlendar skuldir hlaðast upp. 14-15 þúsund mannár í verzlun og viðskipti Mannár er nýlegt orð i mál'inu 1 skýrslum um atvinnuskiptingu y 'la-SV'- íi | st w : mmmi*. s,::« S *, táknar orðiö vinnu eins manns i heilt ár. Arið 1975 er vinna sú, sem Islendingarinntu af höndum, talin 97.095 mannár. Þar af var 14.561 mannári varið til verzlunar og viöskipta, og þýðir það aftur, aö sjötti til sjöundi hver Islend- ingur á starfsaldri hefur fulla ársvinnu viö verzlun, viöskipti og einhvers konar peningamiðlun. Það er upp undir helmingi fleiri en fást viö fiskverkun og fiskiðn- að,hátti tvö þúsund fleiri en fást við fiskveiðar og fiskvinnslu samanlagt og nokkurn veginn réttu þúsundi fleiri en starfa að landbúnaöi eöa samtals við allan iðnað I landinu, allt frá hár- greiðslu og pappfrsvinnu við út- gáfu bóka og blaða upp I skipa- smiðar, sementsgerð og álfram- leiðslu. NU er um mikilvægar greinar að ræða, þar sem er verzlun og viðskipti, og þjóðin á stórmikið undir þvi, aö hyggilega sé staöið að útflutningi og innflutningi og vel á þessum málum haldið inn- anlands. Þess er lika að gæta, að við lifum i miklu viðskiptaþjóðfé- lagi. Hitt stendur samt fast, að það er ofrausn, ef miklu fleiri starfa á þessum sviðum heldur en þörf samfélagsins heimtar. Þá er komið Ut fyrir skynsamleg tak- mörk eins og hvarvetna, ef margt fólk er sett til starfa, er færri gætu innt þau af höndum. Slik skekkja i verkaskiptingu þjóöar- innar getur ekki annað orðiö en byrði á þjóöfélaginu, auk þess sem allt of margar verzlanir til dæmis leiða til annars tveggja, að eitthvað af þeim berst I bökkum, eða álagning veröur meiri en skyldi.séð frá bæjardyrum kaup- andans. Að siðustu hlýtur allt slikt að lenda á framleiðsluat- vinnuvegunum, þvi að ekki er i annað hús að venda til þess að bera mannfélagið uppi. 1 þessum tölum um þá, sem fást við viðskipti, er bankafólki i landinu, og það er kapituli út af fyrirsig, aðáriö 1975 var 42. hver vinnandi íslendingur bankamað- ur, iReykjavík meira að segja 27. hver, þar eð fjölgað haföi þar i þeirri stétt Ur 921 árið 1965 i 1.578 árið 1975, og fer hún þar með fram úr þeirri tölu mannára, sem varið er til sjávarútvegs i höfuö- stað landsins. Það væru náttúrlega ýkjur að segja, að útþensla banka hefði haldizt i hendur við verðbólguna i landinu, þvi að hún er og hefur verið drjúgum meiri en þessu nemur. Eigi að siður er það athyglisvert, hvernig bankarnir hafa sifellt þrútnað, samtimis og krónan hefur rýrnaö, svo að hún erekki lengur nema örlitið brot af raunverulegri krónu. Aftur á móti hefur starfslið banka i Reykjavik tekið Ut drjúgum meiri vöxt en nemur samdrætti i fiskiönaöi Reykvikinga. Þar hefur fækkað um 55 mannár þann áratug, er til er vitnað en bankarnir bætt við sig 657 mannárum. Þessi bankabólga nær ekki ein- ungis til fólks, heldur ekki siöur bygginga, sem sifellt er verið að reisa i' þágu krónuvesalingsins og umstangsins með hana og á þó fyrst eftir aö kasta tólfunum, þegar Seölabankinn kemur meö milljarðana sina til þess að reisa sérmusterið, sem var gert aftur- reka hér um árið. 1 rauninni eru þess yegna mannárin, sem lögð eruí banka, miklu fleiri en tölur i skýrslum segja, þar eð fjöldi byggingarmanna ver orku sinni ár hvert til þess að koma upp þvi krakaði húsa sem þessi starfs- grein krefst, án þess að nokkurn tima virðist fullgert. Allt kostar þetta sitt, og ekkert árhefur sigið svo I aldanna skaut nú um langt skeið, að ekki hafi bankafólki i landinu fjölgað, og er enn óséð, hvar staðar veröi numið. Kannski er sá punktur i tilveru þjóðarinnar óhugsandi. Flókið embættiskerfi og kanseUi- þyngsli A sama hátt hefur þvi fólki fjölgað hröðum skrefum, sem gegnir alls konar þjónustustörf- um. Embættiskerfið er býsna þéttriðið net, og það er sumra álit, að það sé orðið sjálfu sér til trafala, mörkin ekki alls staöar glögg og málá hrakningi frá einni hendi til annarrar, og skýrslugerð yfirþyrmandi. Það skal þó ekki selt dýrara en keypt var, aö innan þess sé til fólk, sem hefur það aö meginstarfi að skrifa bréf með bréfi og framsenda bréf her- bergja, hæða og húsa á milli. Sé svo, þá á það fólk bágt, er i þvi- likri myllu hefur lent. En megin- atriði er hitt, að ekki getur allt of margflókið kerfi þénaö til þess, að greitt og lipurlega gangi að leiða mál til lykta, hvort þau skulu framgang hafa eða er hafn- að. Kanselliþyngsli voru illræmd á sinni tið. AÍlt of flókiö embættis- kerfi fæöir af sér slik þyngsli, skaðleg og hvimleið. Tæplega er það efamál, aö viða mætti koma viö betra skipulagi, sem gerði kerfiö svokallaða ein- faldara, samvirkara og fljótyirk- ara með minna mannahaldi og minni skriffinnsku heldur en upp hefur hlaðizt smám saman á liðn- um áratugum. 1 eina tið var alþekkt fyrirbæri, að frystihús landsins væru aukin með endalausum viöbyggingum. Þetta mun ekki hafa reynzt haganlegur byggingarmáti til langframa, og hefur miklu verið til kostað að færa það til betri vegar. Kerfið, sem fólk kallar, hefur verið aukið með nokkuð hliðstæðum viöbyggingum, og það er kominn timi til þess að færa það saman.sem saman á, og sniða af mestu agnúana, er valda seinagangi og togstreitu og gera það of mannfrekt og sjálfu sér sundurþykkt. Fáliðaðar framleiðslu- greinar — svikull þjóðfélags- grunnur A þessum dæmum er tæpt í þvi skyni að draga fram, að þeim fækkar hlutfallslega, sem helga framleiðslugreinunum starfsorku sina. Það verður stærri og stærri hluti þjóðarinnar, sem þessar sömu framleiðslugreinar verða að standa undir með tiltölulega færra fólki á sinum vegum. Þar er komið aftur að þvi, að grunnur þjóðfélagsbyggingarinn- ar veikist, hún stendur ekki á þvi bjargi, sem hún þyrfti að hvila á. AJlir verða fé að hafa til þess að lifa og sjá sér farborða. En þegar of margirf á það fé, sem þeir hafa á milli handa, fyrir eitthvað annað enþað, semdregið getur úr innflutningi eða aukið útflutning, nema hvort tveggja sé, veröur gjaldeyrishalli og skuldasöfnun, nema tekið sé i taumana með ein- hverjum hætti, svo sem iöulega hefurverið gert hér á landi á liðn- um áratugum, til dæmis með gjaldeyrishömlum og innflutn- ingsskömmtun á sinum tima, og ráðstöfunum, sem þrengdu að fólki, svo að það hefði minni f jár- ráð, á viðreisnarárunum, þegar Kockum i Sviariki varð athvarf atvinnulausra íslendinga. En sé ekkert aðhafzt til langframa hrynur húsið, af þvi að það stendur á sandi og stenzt ekki storma og steypiregn. Synd og náð Skrifað stendur: „Hvilan mun verða of stutt til þess, að maður fáiréttúrsér, og ábreiðan of mjó til þess, aö maður fái skýlt sér með henni”. Til þessa hafa Islendingar ekki fundiö fram að þessu. Þéir vilja ekki heldur finna til þes« fyrr en i siðustu lög. En til er hugtak, sem táknað er með oröinu náðartimi, og þegar syndgað hefur verið um skör fram upp á náöina, kemur annar timi. Sá timi kom yfir Þióðverja, þegar þeir urðu að nota handtöskur i stað buddu eða veskis, þegar þeir fóru að kaupa sérímatinn. og hreppu siðar Hitl- er, og sá timi kom yfir Nýfundna- landþegar það varð gjaldþrota og glopraði sjálfstæði sinu úr hönd- um áer i ofanálag. Þess háttar lifsreynsla er bitur. Þess vegna verðum við að sjá fót- um okkar forráð, áöur en um seinan er. Þess vegna verðum við að temja okkur búskap, sem fær staðizt til frambúðar, hvert og eitt og öll sameiginlega. Þess vegna veröum við að hougsa um framleiðslugreinamar og treysta stöðu þeirra, og setja ekki fleira fólk til hvers konar þjónustu- starfa í samfélaginu, en við höf- um raunverulega þörf fyrir og gagn af. jh

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.