Tíminn - 20.11.1977, Side 25
Sunnudagur 20. nóvember 1977
25
Nýtt
starfsár
L.Í.F.
HÓLASPORT - LÓUHOLUM 2-6 - BREIÐHOLTI
SKAUTAR:
Nýkomnir Japanskir og danskir
skautar á verði sem allir ráða við
aðeins kr. 5.280, 6.210 og 10.280
Nú getur ÖH ffö/sky/dan ;/ ;
stundað þessa heillandi**
\og hollu iþrótt.
\ • m
Póstsendum
samdægurs!
Pantanir óskast.
sóttar sem .
allra fyrst. - j*?* -
m
Takmarkað magn.
LOKAÐ MILLI 12,30-14
Hó/asport -
Simi 7-50-20
HOLASPORT - LOUHÓLUM 2-6 - SÍMI 7-50-20
Starfsárið 1977-1978 er hafið i
frimerkjaheiminum hér á landi.
Sums staðar fór það heldur seint
á stað. Það liggur kannski næst
hjá mér að segja frá þvi sem ég
veit héðan að norðan og þá fyrst
frá Eyjafirði.
Félag frimerkjasafnara á Ak-
ureyri hefir haldið þrjá form-
lega fundi þegar þetta er ritað,
og það með sæmilegri mætingu.
Þá hefir undirritaður farið I
erindrekstraferð i Eyjafjörð, i
samræmi við samþykktir sið-
asta Landsþings L.Í.F. Var þá
haldinn fundur að Kálfsskinni
með Arskógsstrendingum og
Dalvikingum i fyrra skiptið, en i
siðara á Akureyri, þar sem ekki
var unnt að hafa báða fundina á
sama tima. Efni beggja fund-
anna var að miklu leyti það
sama, eða fyrirlestur um upp-
setningu og frágang safna til
sýninga.
Auk þess var að visu drepið á
ýmsa aðra hluti. A Kálfsskinni,
hjá Sveini bónda, var margt
rætt.m.a. kilóvaran og hafa les-
endur þessara þátta, þegar séð
niðurstöður þeirra umræðna. A
Akureyri var hins vegar mikið
rætt um umslagasöfnun, þar á
meðal umslagasöfnun og það
hversu léleg fjárfesting er yfir-
leitt I fyrsta dags bréfum.
Kunnu fundarmenn ekki aðra
skýringu á þvi, en þá, að allir
hyggjast fjárfesta til að græða
seinna meir, en þá kemur bara i
dagsins ljós, að allir aðrir, sem
átti að græða á, hafa fjárfest á
sama hátt. Við getum hins veg-
ar huggað okkur viö, að innan
100 ára nær þessi fjárfesting
kannski umtalsverðri upphæð i
krónutölu. Þá er það eftirtakan-
legt hve mikið er farið að safna
almennum, að ekki sé talað um
ábyrgðarbréfum, jafnvel úr
dagspóstinum i dag. Póstsaga
er að halda innreið sina meðal
islenzkra safnara. Er það vel,
en þá er bara að gera sér grein
fyrir, hvaö er póstsaga og póst-
sögusöfnun. Hefir þetta stund-
um sett mig i vanda, þar sem ég
hefi prédikað ákaft, að menn
skyldu hafa sem fæst orö i út-
skýringum sinum á frlmerkja-
safninu, sem þeir ætla að sýna.
Ég hefi þó lofað að gera þessu
efni skil, hér i þáttunum, I vetur,
og jafnvel með grein i Grúski á
næsta ári. Skora ég nú á lesend-
ur, að senda mér tillögur sinar
sem allra fyrst um hvað þeir
vilja fá að vita i þessu efni, skal
ég þá reyna að svara þvi, sem
bezt ég hefi vit á i grein minni.
En sendið mér athugasemdir
ykkar sem allra fyrst.
Þetta voru sem sé helztu efn-
in, sem um var rætt á fundunum
i Eyjafirði. Hér á Hvamms-
tanga hefir eitt kvöld verið
haldið með sæmilegri þátttöku
og hefir verið skoðuð frimerkja-
sending frá Keðjunni, en þaö er
klúbbur, sem dreifir úrvalsheft-
um á klúbbverði meðal með-
lima sinna. Var góður rómur
gerður að þvi að fá slikar send-
ingar, en hér á landsbyggðinni
er ekki úr jafn miklu að moða
fyrir safnarana og i frimerkja-
verzlunum borgarinnar. Hvers
konar þjónusta i svona formi er
þvi vel þegin, jafnvel stundum
sótt út fyrir landsteinana. Litill
dagamunur var hér gerður á
Unglingaklúbbur i fullu starfi.
Degi Frimerkisins, en þó hlýtt
með andakt á Jón Aðalstein og
hans ágæta erindi. Hafa mér
ekki borizt aðrar fregnir um
Daginn, en þær sem voru I blöð-
um.
Þess má geta, aö Degi fri-
merkisins, uppruna hans og
sögu, voru gerð rækileg skil i
grein i verðlistanum „íslenzk
frimerki 1962”, en þá tiðkaðist
að vera með fræðigreinar um
hina og þessa hluti i frimerkja-
fræði i listanum.
Þá er undirrituðum kunnugt,
að fundir hafa verið haldnir með
venjulegum hætti hjá Félagi fri-
merkjasafnara i Reykjavik og i
Hafnarfirði. Einnig hefir Ernst
Með klúbbi unglinga á Selfossi. Ernst Sigurðsson, Sigurður H. Þor-
steinsson og Ole Olsen, standa að baki.
Sigurðsson frá Selfossi hringt og
látiðaf sér frétta. Þar er búið að
halda fund og verið að fara af
stað með unglingastarfið, þegar
þetta er skrifað.
Andlát
Tveir menn hafa látizt á þessu
ári, sem snerta mjög náið fri-
merkjasögu Islands. Það eru
þeir Grönlund og Lundegard,
báðir Danir, sem eytt höfðu
hluta ævi sinnar við að gefa út
vottorð um hvort islenzk fri-
merki væru ófölsuð eða ekki.
Sérstaklega var Grönlund
þekktur á þessu sviði, en ekki
aðeins að þvi er varðar Island,
þvi að hann gaf út vottorð fyrir
öll Norðurlönd. Hann hafði ritað
nafn sitt á „The Roll of Disting-
uished Philatelists” hjá Kon-
unglega frimerkjafræðafélag-
inu i London, sem er mesti heið-
ur er nokkrum safnara getur
hlotnazt. Þá hafði Landssam-
band islenzkra frimerkjasafn-
ara einnig heiðrað hann.
Nú eru þvi aðeins 3 einstakl-
ingar eftir, sem gefa út vottorð
fyrir islenzk frimerki og póst-
sögu almennt, að það eru Helge
Witt (danskur), Arne Debo
(þýskur) og undirritaður.
Sigurður H. Þorsteinsson
HOLASPORT - SIMI 7-50-20