Tíminn - 20.11.1977, Síða 30
30
BOWIE
Enn er David Bowie
kominn fram á sjónar-
sviðið. Segist hann orð-
inn þreyttur á öllu glingri
og auglýsingamennsku
og vilja bara vera hann
sjálfur. Samtimis hefur
hann skapað sér nýjan
stil — þann að nú sé
hann loks hann sjálfur.
— Sá still sá fyrst dags-
ins Ijós á langspilinu
„Low” og birtist nú
þróttmeiri, en samt
slipaðri — á nýju lang-
spili ,,Heroes”. Og svo
sannarlega ér kjarkur
hans mikill hann fetar
hér ótroðnar slóðir,
maðurinn sem átti allra
eyru, lika þeirra sem
ekki hlusta á nema
miðlungi þungt rokk og
varla það en auðvitað
tekst Bowie stórkostlega
vel upp.
Sumir hafa sagt Bowie til
ófrægöar aö hann skipti um stil
oftar en föt. Aö hálfu leyti er þetta
__* „ . w, , ..., ,, kannski ekki óhróöur i raun og
Afslappaður Bowie. Hann leggur nu mein aherzlu a tæpast & rökum reist. Þvi tónn
að ná fram sínu bezta í tónlistinni en i auglýsinga— listamannsins leynir sér hvergi
mennsku Þar sem Bowie *er brátt íyrí11 altt
er stíll hans alltaf auöþekkjan-
legur þó hann skipti sjálfur um
„tempó”. Þaö er eins meö Bowie
og Laxness karlinn okkar, aö
hann þekkist hvarvetna af sjálf-
um sér, einmitt af stilnum, þó
verkin spanni vitt svið i stefnum
og straumum. Og þó ég megi ekki
segja þaö, bæti ég óhikað viö aö
Laxness og Bowie eiga fleira
sameiginlegt, þ.e.a.s. nokkuð svo
súrealiskt viðhorf.
En allt um þaö ég held Bowie og
Laxness séu báöir miklir spá-
menn hvor á sinu sviði. Ég beið
lika I mörg ár eftir þvi aö Bowie
legöi poppiö á hilluna og reyndi
sig viö uppbyggilegri tónlist þvi
mér hefur ávallt verið ljóst aö
hann er mikill listamaöur og
langt hafinn yfir meðalmennsk-
una. En gefum nii Bowie sjálfum
oröiö:
— Ég er hreinlega oröinn leiöur
á öllum uppátækjum þessa Bowie
og þó viöurkenni ég, aö i upphafi
vakti ytra útlit athygli á mér.
Minar fyrstu plötur seldust ekk-
ert en þaö breyttist um leiö og ég
varö aö eins konar tizkuimynd.
Mér datt lika alltaf eitthvaö nýtt i
hug sem fólkiö tók eftir og ég
græddi á að vera fyrstur.
En auövitaö átti tónlistin og þá
ekki sizt söngur Bowies, mikinn
ef ekki mestan þátt i frægö hans.
Bowie tók enda snemma upp á þvi
að koma aðdáendunum á óvart og
lagöi metnaö sinn i aö hafa engar
tvær plötur eins. Þá bar nokkuð á
þvi hjá honum aö plöturnar væru
til skiptis af léttara og þyngra
tagi. A sumum plötum hans frá
fyrri tið og þá ekki þeim vinsæl-
ustu erlika að finna rætur þeirrar
tónlistar sem hann nii leggur
mest upp úr og nefni ég t.d. „Dia-
mond Dogs”.
1 dag hefur Bowie mörg járn i
eldinum. Hann hefur fengizt
nokkuö viö kvikmyndaleik og
meira að segja lýst þvi yfir aö
hann gæti hugsaö sér aö leggja
tónlistina nokkurn veginn á hill-
una i þágu kvikmyndanna. NU og
auk þess að gefa út eigin plötur
vinnur hann mikið meö öörum
tónlistarmönnum, hefur t.d. veriö
vini sinum, ræflarokkaranum
Iggy Pop, hjálplegur. Þó kveður á
þessu sviði mest að samstarfi
hans við Eno (áður i Roxy Music)
og er nú ný plata komin út eða
væntanleg með þeim og heitir „13
Pictures”.
Sjálfur segist Bowie helzt til
vinnusamur og þrátt fyrirnokkuð
mikið át haldi hann ekki holdum.
Ekki gengst hann við sögum um
aö hann lif i á kaffi, tóbaki og létt-
um vinum. ^
Nýlega hefur Bowie hins vegar
ljóstraö upp a.m.k. persónulegum
einkamálum. Annars vegar aö
hann hafi alla tið óttast aö verða
geöveikur eins og bróöir hans, en
hann hefur í 10 ár dvalizt á geð-
sjúkrahúsi, illa haldinn aö þvi er
sagt er.
— Mér hefur alltaf veriö ljóst aö
éger öðruvisi en aörir. Spurning-
in er áöeins — hvernig ööruvisi —
og hvort maður hafi stjórn á
þessu.
I öðru lagi var Bowie i mörg ár
hræddur við að verða myrtur á
sviði.
— Ég var viss um aö ég yrði
fyrstu popparinn sem yrði skotinn
niöur á sviði. Aö einhver
brjálæöingur mundi drepa mig.
Þegarég kem fram er mannfjöld-
inn oftast I kring um 20.000 og
óneitanlega hljóta einhverjir
klikkaðir aö vera þar á meðal.
Samt sækir þessi hræösla ekki
eins á mig nú,en hún er þó alltaf
tilstaðarþegarégþarfað komast
igegnum þvögu af fólki sem kraf-
sar og klórar i mann.
En að lokum: Hver eru viöhorf
Bowie til vinsældanna?
— Ég sækist ekki eftir vinsældun-
um, a.m.k. ekki lengur, en þaö
sem þau sanna mér þykir mér
aftur á móti vænt um, þaö er, aö
margir kunna aö meta þaö sem
ég er að gera.
Nú-Tíminn kynnir: ★
Tony Banks:
Mike Rutherford:
Phil Collins:
hljómborð
bassi
söngur
Skammter stórra högga á milli hjá hljómsveitinni
Genesis. I vinsældakosningum Melody Maker fyrir
skömmu voru þeir kosnir bezta hljómsveit Bretlands.
Um svipað leyti yfirgaf þá einn hljómsveitarmeðlim-
anna, gitarleikarinn Steve Hackett, og út kemur önnur
„lifplata” („live album") hljómsveitarinnar (Hack-
ett með) sem sahnast sagna er frábær af lífplötu að
vera. Og siðan, þið ráðið hvort þið trúið því eða ekki,
þeir hafa lokið við að leika inn á aðra plötu (án Hack-
ett) og mun hún bera nafnið „Then There Were
Three" (Þá voru eftir þrír).
I Genesis
Og þá vc
Það er einhver firnakraftur i
þessari hljómsveit sem nú
hyggst halda áfram eins og ekk-
ert hafi i skorizt og án þess að
bæta við manni. Og hvi skyldi
þeim ekki takast það? Fyrir
réttum tveimur árum, þegar
Genesis var tiltölulega nýlega
stigin upp á tind frægðarinnar,
yfirgaf hana þáverandi söngv-
ari, Peter Gabriel, en segja má
að hann hafi hafi þá verið i aug-
um flestra aðdáenda hljóm-
sveitarinnar Genesis það sem
Paul McCartney er Wings enn i
dag. En Genesis lét áfallið þaö
ekki á sig fá en sendi trommar-
ann fram i fremstu viglinu til aö
syngja, og nú i dag er Genesis
talin bezta hljó isveit Bretlands
af lesendum Melody Maker.
Upphafið .
Genesis var stofnuð af Peter
Gabriel. fyrrum söngvara
hljómsveitarinnar og leiðtoga,
eins og áður greinir. Fékk hann
i lið meö sér vini sina ú r skóla,
m.a. tvo, er ásamt honum, léku i
skólahljómsveitinni Garden
Wall, þá Banks og Anthony
Phillips, en auk þess Ruther-
ford.
Gabriel hefur siöan látiö hafa
eftir sér að þeir hafi i upphafi
komið saman vegna sameigin-
legs áhuga á lagasmiði. Sá
áhugi hafi haldizt og i raun sé
hljómsveitin ekki eins skyld
Steve Hackett
þeim hljómsveitum sem hún er
tiðast borin saman við, einkum
Yes, Genesis leggur höf-
uðáherzlu, sagði hann, á söng-
inn og lagasmiðina en ekki
hljóðfæraleikinn, og einmitt
þess vegna hafi þeir ekki lagt
mikið upp úr að sanna tækni og
kunnáttu i hljóðfæraleik.
Svo mikið er vist, að i upphafi
reyndi Genesis einkum aö
semja lög til aö selja. Þeir fengu
til liös viö sig John Mayhew,
listskólagenginn, en sölu-
mennskan gekk litiö unz á fjör-
ur þeirra rak mann aö nafni
Jonathan King, sem er umboðs-
maður og tónlistarmaöur. Sá
hann um útgáfu fyrstu hljóm-
plötu þeirra á vegum Decca,
„From Genesis to Revelation”,
og skýrði þá ennfremur. En
platan seldist ekki og bæöi
Decca og Jonathan misstu allan
áhuga og samningur var ekki
endurnýjaður við Genesis þegar
hann rann út að ári liðnu.
Hljómsveitin var á leið með
að splundrast um þetta leyti.en
svo fór þó ekki. Þeim var viða
sýndur áhugi en -engan fengu
þeir samninginn lengi vel. Með-
al þeirra, sem áhuga sýndu, var
umboðsmaður Mott The Hoople
og hljómsveitin Moody Blues,
sem var um þessar mundir að
stofna eigið plötufyrirtæki.
Loks fékk Genesis þó samn-
ing. Það var Tony Shatton-
Smith, forstjóri litillar plötuút-
gáfu að nafni Charisma, sem
gerði við þá samning og gaf út
plötuna „Trespan” árið 1970.
Stuttu siðar hættu Mayhew og
Phillips og á trommur kom Phil
Collins, en einir sex mánuðir
liðu unz hæfur gitarleikari
fannst, eða Steve Hackett, sem
nú hefur aftur yfirgefið hljóm-
sveitina.
Báðir þessir nýju hljóm-
sveitarmeðlimir voru með á
langspilinu „Nursery Cryme”
(1971) sem var stórt spQr fram á
við og til marks um hvað fram-
tiðin bar i skauti sér.
Frægðin
Nú fóru hljómsveitarmeðlim-
ir að þjálfa upp sviðsframkomu
með alls kyns leikhústilþrifum
og tilheyrandi, sem siðan hefur
m.a. leitt til þess að Genesis er
einhver vinsælasta „lifhljóm-
sveitin” idag, en þátt i þvi á að
sjálfsögðu mikil hæfni meðlima
hljómsveitarinnar við lifandi
hljóðfæraleik. I fyrstu var það
einkum Gabriel sem vann sér
hylli fyrir leiktilþrif á sviði og
varð sú staðreynd til þess að að-
dáendur hljómsveitarinnar tóku