Tíminn - 20.11.1977, Qupperneq 33

Tíminn - 20.11.1977, Qupperneq 33
Sunnudagur 20. nóvember 1977 33 hann gert safngler úr glösunum af úrum þeirra. Árni þekkti ekk- ert annað ráð til að kveikja eld en úr þvi að Derssu hafði sagt: „Ég skal finna einhver ráð”, þá mátti treysta þvi. 11. Þegar lengra dró niður hliðarnar varð gatan greiðari, og sið- ustu kilómetrana gátu þau farið með fullum hraða. Það var þó orðið aldimmt, er þau komu ofan i dalinn. 1 dalnum voru birkirunnar og smávaxin lerkitré. Derssu valdi þeim næturstað i dálitlu rjóðri undir lerkitrjám. Fram að þessu hafði allt gengið sæmilega. Hér var allt þurrt og þokkalegt og ef þau hefðu nú haft eldfæri til að kveikja bál til að orna sér við þá hefði allt verið i lagi. Árni var fullur eftir- væntingar. Hvernig skyldi Derssu ráða fram úr þessu? Á sleðanum sem eftir var, áttu þau meðal annars einn pott. Derssu gekk hiklaust að verki. Hann sendi félaga sinn að afla eldiviðar. Siðan tók hann tvo sterka lurka og reisti þá upp eins og sperrur. Sið- an tók hann pottinn og hengdi hann neðan i sperrurnar. Félagi hans kom með talsvert af hálfþurru timbri og þvi hagræddi Derssu undir pottinum. ,,En við höfum engar eldspýtur”, sagði Árni. Hann gat ekki stillt sig lengur. Derssu svaraði engu en leit á Árna og brosti ibygginn. Upp úr einum loðkápuvasanum tók hann dálitinn sivalan titt. Við annan endann var fest smábein og trjákubbur með holu i miðjunni snærisspotti og dálitið af næfrum og þurrum mosa. Fyrst skorðaði hann kubbinn vel milli steina og fyllti holuna með mosa og næfrum. Siðan kraup hann niður, stakk bein- inu upp i sig en setti ann- an endann á tittinum of- an i holuna i kubbnum brá svo snærisspottan- um utan um miðjuna á trjátittinum og sneri honum þannig i holunni. Eftir dálitla stund fór að r júka úr mosanum og litlu siðar sást neisti læsa sig i næfrana. Árni horfði undrandi á það sem gerðist. Eftir ör- skamma stund var eldurinn kveiktur. Eldurinn snarkaði undir pottinum og þau systkinin vermdu sig við eldinn. Hitinn frá eldin- um var svo mikill að þau urðu stöðugt að snúa sér og láta hitageislana ylja sér á bak og brjóst. Þannig sátu þau við bál- ið alla nóttina. Þegar eldurinn dvinaði var sóttur meiri eldiviður. Litill var svefninn en þegar birti um morgun- inn var lagt upp og voru þá allir stirðir og þreytt- ir eftir nóttina. En allir báru sig þó vel. Þrautin var unnin. Næsti dagur var erfiður. Snjórinn var laus i sér og viða djúpur og stundum lá leiðin upp i móti. Nú þurfti Berit ekki að hjálpa til að draga sleðann þar sem hann var aðeins einn en hún var þó svo þreytt að hún varð oft að setjast niður og hvila sig. Þetta tafði þau svo mikið að myrkrið datt á, áður en þau náðu ofan i næsta dal. Þau voru þar á skóglausu svæði og jafn- vel Derssu sjálfur gat ekki kveikt bál þar sem enginn var eldiviðurinn. Þau urðu þvi að halda áfram i myrkrinu. „Nú get ég ekki meir”, sagði Berit há- grátandi og fleygði sér ofan i snjóinn. „Getið þið ekki haldið áfram og lofað mér að liggja hér i friði?” Derssu anzaði þessu ekki en sagði að þeir skyldu leggja hana ofan á sleðann og reyna að ná inn i skóginn. Þeir dúðuðu Berit i fötum sem bezt þeir gátu og héldu svo áfram ferðinni með sleðann og töluðust ekkert við. Um miðnætti komu þau i skógarjaðar- inn. Þá var byrjað að snjóa og var nú erfitt að safna sprekum i myrkri og snjó og það leið hálf- timi áður en Derssu gat kveikt eldinn. Berit svaf svo fast á sleðanum að Árni fékk ekki af sér að vekja hana fyrr en kvöldmaturinn var til- búinn. Um nóttina skall á stórhrið. Þegar dagaði sá ekki út úr augunum og ekki kom til mála að hreyfa sig úr stað. Verst var það að ómögulegt reyndist að halda við eldinum. Þau reyndu að þrýsta sér sem fastast hvert að öðru og biðu þess að storminn lægði. Dálitil huggun var það að Derssu þóttist þess fullviss að knöpp dagleið væri að næsta þorpi, sem héti Ajan. En þessi dagleið gat orðið erfið ef veðrið lægði ekki. Syst- kinin voru alveg að ör- magnast og kjarkur þeirra var að dvina. Hef opnað lækningastofu að Laugavegi 43 Viðtalsbeiðnum veitt móttaka i sima 2-11-86 kl. 14-18 virka daga nema föstu- daga. Ársæll Jónsson, læknir Sérgrein: lyflækningar. rftúúi KÁRSNESBRAUT 1 RJÖLRITUNARSTOFA, KÁRSNESBRAUT 117 -simi 44520 AUSTURSTRÆTI 8 - sími 25120 * Ljósritum á skrifpappír og skjalapappír -kLjósritum húsateikningar -KOII Ijósritun afgreidd meðan beðið er INGVAR HELGASON Vonarlandi v/Sogaveg. simar 84510 og 845T0 KOSTA-KAUR Niðsterk Exqusit þrihjól á aðeins kr. 5.900. Smásöluverð. Þola slæma meðferð. Sver dekk, léttara ástig. HEILDSÖLUBIRGÐIR: Veitingabúö Cafeteria Suðurlandsbraut2 Sími 82200 *Fjölritun á flestar gerðir af pappír, t.d. karton, N.C.R. pappír og fl. ^Önnumst gerð bæklinga, eyðublaða og fl. *Reynið viðskiptin -kSendum gegn póstkröfu Framleiðum eftirtaldar gerðir HRINGSTIGA: Teppastiga, tréþrep, rifflað járn og úr áli. PALLSTIGA Margar gerðir af inni- og útihandriðum. Vélsmiðjan Járnverk Ármúla 32 — Sími 8-46-06

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.