Fréttablaðið - 29.05.2006, Side 2

Fréttablaðið - 29.05.2006, Side 2
2 29. maí 2006 MÁNUDAGUR ��������������������������������������������������������������������� ������������� ������������ ������ �� ������������������������������������������������������������������ ������ ������� ���� ���� ������ � ������ ����� ��� ��� �� �������������� ��� �������������� ����� Ráðist á mann í miðbæ Tilkynnt var um líkamsárás í gærmorgun þar sem maður var barinn í Hafnarstræti í Reykjavík. Hann var alvarlega slasað- ur og var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild. Fjórir menn voru handteknir vegna málsins. Sluppu ómeiddir Þrír farþegar sluppu með minniháttar meiðsl þegar bíll valt út af vegi í Hamarsfirði í fyrra- dag.Farþegar voru fluttir til skoðunar á sjúkrahúsið á Egilsstöðum. Bíllinn er mikið skemmdur. LÖGREGLUFRÉTTIR KOSNINGAR Einungis 77,1 prósent kosningabærra manna kusu í borg- arstjórnarkosningunum í Reykjavík á laugardag. Þetta er mun minni kosningaþátttaka en hefur verið í Reykjavík undanfarna áratugi og tæpum sjö prósentustigum minni þátttaka en var í síðustu kosningum, þegar 83,9 prósent kusu. Af hverfum borgarinnar var lang- minnsta þátttakan í Ráðhúsinu, þar sem 67,3 prósent kusu af þeim 11.175 sem eru á kjörskrá þar. Tæplega 72 prósenta þátttaka var í Klébergs- skóla, en þar eru 558 á kjörskrá. Mest var þátttakan í Breiðagerð- isskóla, þar sem 82,8 prósent af 8.237 kjósendum kusu. Einnig kusu 82,6 prósent af 3.291 kjósendum í Ingunn- arskóla. Flestir voru á kjörskrá í Laugar- dalshöll, þar sem 77,8 prósent af 12.281 kusu. Reiknað hafði verið með um 12.000 utankjörfundaratkvæðum, en þá hefði kjörsókn verið rúm 80 prósent. Utankjörfundaratkvæði í Reykjavík voru hins vegar 9.228. - ss Lítil kosningaþátttaka í Reykjavík: Minnst þátttaka í Ráðhúsinu Kosningaþátttaka 2006 SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR Kosningaþátttaka í borgarstjórnarkosningum í Reykjavík 1966–2006 1966 1970 1974 1978 1982 1986 1990 1994 1998 2002 2006 88,9% 77,1% 88,8% 82,7% 83,9% 81,1% 85,0% KOSNINGAR Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur munu ræðast við um meirihlutasamstarf í Norð- urþingi, sem er nýtt nafn á samein- uðu sveitarfélagi Húsavíkur og nágrennis. Sjálfstæðismenn fengu 33,1 pró- sent atkvæða, sem er mesta fylgi sem þeir hafa hlotið á þessu svæði, að sögn Jóns Helga Björnssonar, oddvita D-listans. Framsókn bætti einnig hlut sinn og fékk 32,3 pró- sent. Samanlagt hafa stjórnarflokk- arnir 65,4 prósent atkvæða og sex bæjarfulltrúa af níu. Fyrir kosning- ar fóru vinstri flokkarnir með meirihluta en hafa nú aðeins þrjá bæjarfulltrúa. ■ Húsavík heitir nú Norðurþing: D-listi og B-listi ræða saman KOSNINGAR Viðræður hófust milli Fjarðarlistans og Framsóknar í Fjarðabyggð í gær og verða tekn- ar upp aftur í dag. Meirihluti Bið- listans og Fjarðarlistans féll í kosningunum á laugardag. Fjarð- arlistinn hélt sínum fjórum mönn- um en Biðlistinn missti sinn eina á kostnað Sjálfstæðisflokksins. Valdimar O. Hermannsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð, segist munu bíða átekta eftir niðurstöðum fundar- ins í dag. Sjálfstæðismenn hafi rætt við báða flokka og ef viðræð- urnar í dag skili ekki samstarfi þá sé hann tilbúinn að vinna með hvorum sem er. - sh Viðræður í Fjarðabyggð: Niðurstöðu að vænta í dag REYÐARFJÖRÐUR Fjarðarlistinn og Fram- sóknarflokkurinn ætla að hittast aftur í dag til að ræða hugsanlegt meirihlutasamstarf. REYKJAVÍK Efstu menn Reykjavík- urlistaflokkanna þriggja og Frjálslynda flokksins hittust á fundi í gærmorgun. Eftir hádeg- ishléið lét Ólafur F. Magnússon, oddviti Frjálslyndra, vita af því að hann væri kominn í viðræður við Sjálfstæðisflokkinn. „Ég myndi segja að málin séu í lausu lofti. Mér skilst að Ólafur sé að tala við Vilhjálm og þá verða þeir að reyna að ná saman,“ segir Svandís Svavarsdóttir, oddviti Vinstri grænna. Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar, telur að fund- urinn hafi gengið vel og er sam- mála Svandísi í því að samnings- grundvöllur geti verið fyrir hendi. „Þessi fundur endurspegl- ar að það er ekkert kapphlaup í gangi í fangið á Sjálfstæðis- flokknum,“ segir Dagur. „Allir eru greinilega að tala við alla,“ segir hann og telur ekki gott að margar viðræður séu í gangi. „Það verður bara að skýr- ast í hvaða átt menn vilja líta en þessi möguleiki er sannarlega fyrir hendi.“ Björn Ingi Hrafnsson, oddviti Framsóknarflokksins, kveðst ekki útiloka neitt meirihlutasam- starf. „Við erum reiðubúin að starfa í meirihluta ef þess er óskað en það kemur bara í ljós.“ - ghs Þreifingar um meirihlutamyndun í Reykjavík áttu sér stað í allan gærdag: Ekkert kapphlaup í gangi STJÓRNMÁL „Úrslit kosninganna eru sums staðar mikið áfall fyrir Framsóknarflokkinn, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu. Við erum hins vegar ánægð með að hafa komið manni að í Reykjavík þrátt fyrir mikinn mótbyr,“ segir Hall- dór Ásgrímsson, formaður Fram- sóknarflokksins. „Nú er betra efnahagsástand en nokkru sinni fyrr í landinu og betri möguleikar til að taka á við- fangsefnum sem við blasa, hvort sem það eru málefni aldraðra eða annarra sem hafa verið mikið til umræðu í kosningabaráttunni. Við höfum verið að leggja grunn að því við gerð fjárlaga fyrir næsta ár. Við eigum eftir að fara yfir stöðuna innan flokksins en úrslitin trufla ekki ríkisstjórnarsamstarf- ið,“ segir Halldór. „Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig heildarfylgi og við fáum meirihluta í þrettán bæjar- og sveitarstjórnum,“ segir Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðis- flokksins. Geir telur að niðurstaða kosn- inganna hjóti að vera Samfylking- unni nokkurt áhyggjuefni. Hann segir að ríkisstjórnin muni halda sínu striki og kosið verði eftir ár til Alþingis. „Í Reykjavík hefur R- listasamstarfið farið illa með Framsóknarflokkinn og blönduð framboð hans með vinstri flokkun- um hafa ekki gefið góða raun eða skilað honum fylgi,“ segir Geir. „Það getur nú varla talist merkilegur sigur Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík að bæta við sig þrjú hundruð atkvæðum frá síðustu kosningum á sama tíma og R-listinn háði sitt dauðastríð svo mánuðum skipti í fjölmiðlum,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar. Hún segir úrslit sveitarstjórn- arkosninganna viðunandi fyrir Samfylkinguna. „Það var ef til vill full mikil bjartsýni eftir tólf ára stjórnarsetu að búast við fylgis- aukningu í höfuðborginni.“ Ingibjörg Sólrún segir að Fram- sóknarflokknum hafi verið refsað fyrir það sem báðir stjórnarflokk- arnir eigi hlutdeild í. „Það þarf styrka efnahagsstjórn á næstu mánuðum til að koma á stöðug- leika á sama tíma og búast má við versnandi sambúð á stjórnarheim- ilinu. „Við unnum stórsigur og tókst að ná inn fulltrúum í fjölmörgum af stóru sveitarfélögunum í fyrsta sinn,“ segir Steingrímur J. Sigfús- son, formaður Vinstri grænna. „Nú erum við afgerandi þriðji stærsti flokkurinn og skiljum Framsóknarflokkinn eftir í reyk. Tilraun Framsóknarflokksins til að fela nafn og númer mistókst. Tilraun Sjálfstæðisflokksins til að bleikja sig upp tókst að hluta. Þessi stjórn er búin og ekki á vetur setjandi,“ segir Steingrímur. „Fylgisaukning bendir til þess að málflutningur okkar í skatta- og velferðarmálum hrífi. En að sama skapi eru úrslit kosninganna vantraust á Framsóknarflokkinn,“ segir Guðjón A. Kristjánsson, for- maður Frjálslynda flokksins. Hann telur samstarf við Sjálf- stæðisflokkinn í höfuðborginni koma vel til greina. „Það þarf að semja um málefnin, til dæmis um orkuveiturnar sem við viljum hafa áfram í almenningseign. Ég hef þá trú á okkar foringjum í höfuðborg- inni að þeir selji ekki málstaðinn fyrir setuna,“ segir Guðjón A. Kristjánsson. johannh@frettabladid.is Hefur engin áhrif á stjórnarsamstarfið Oddvitar stjórnarflokkanna telja að úrslit sveitarstjórnarkosninganna hafi engin áhrif á stjórnarsamstarfið. Stjórnarandstaðan segir ríkisstjórnina laskaða og að stirðnandi sambúð geti haft neikvæð áhrif á vandasama efnahagsstjórn á næstunni. Forsætisráðherra segir tekið á málefnum aldraðra við fjárlagagerð. SPURNING DAGSINS Stefanía, komið þið Ólafsfirð- ingar af fjöllum? Það er ekkert slæmt við það að koma af fjöllum þannig að ég svara því játandi. Kosið var um nafn á sameinað sveitarfélag Siglufjarðar og Ólafsfjarðar um helgina. Nafnið Fjallabyggð varð hlutskarpast. KOSNINGAR Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur eiga nú í við- ræðum um áframhald á meiri- hlutasamstarfinu á Ísafirði. Meirihlutinn hélt óvænt velli en skoðanakannanir höfðu bent til að Í-listi myndi fella hann. Að sögn Guðna Geirs Jóhannes- sonar, oddvita Framsóknarflokks- ins, töluðu fulltrúar Í-lista við hann á kosninganótt um hugsan- legar viðræður. „En okkur þótti eðlilegt að byrja á að ræða við Sjálfstæðisflokkinn þar sem við höfum verið með þeim í meiri- hluta síðustu átta ár.“ - sdg Úrslit kosninga á Ísafirði: Viðræður D- lista og B-lista ODDVITARNIR Í REYKJAVÍK Leiðtogar R-listaflokkanna þriggja, Björn Ingi Hrafnsson, Svandís Svavarsdóttir og Ólafur F. Magnússon hittust á fundi í gærmorgun. KOSNINGAR Meirihluti Samfylking- arinnar og Framsóknarflokksins féll á Akranesi og allir fimm flokk- arnir sem buðu fram náðu inn manni í bæjarstjórn. Níu manns sitja í bæjarstjórn. Sjálfstæðisflokkur gæti mynd- að meirihluta með einum öðrum flokki en allir hinir, Samfylkingin, Vinstri grænir, Framsóknarflokk- urinn og Frjálslyndi flokkurinn þyrftu að sameinast til að ná að mynda meirihluta. Einhverjar við- ræður eru í gangi milli fjögurra minni flokkanna um meirihluta- samstarf. Einnig er Sjálfstæðis- flokkurinn að ræða við Frjáls- lynda flokkinn að sögn oddvita sjálfstæðismanna. - sdg Meirihlutinn féll á Akranesi: Allir að ræða við Frjálslynda LÖGREGLA Lögreglan í Hafnarfirði handtók par um tvöleytið í fyrri- nótt. Parið var á gangi í bænum með þriggja ára gamalt barn sitt en foreldrarnir voru verulega ölv- aðir. Félagsmálayfirvöld í bænum komu barninu fyrir hjá fjölskyldu þess og var móðurinni sleppt eftir yfirheyrslu hjá lögreglunni en faðirinn varði nóttinni í fanga- geymslu lögreglunnar. -khh Handtekin í Hafnarfirði: Ölvuð á röltinu með barn ODDVITAR. Halldór Ásgrímsson segir úrslit kosninganna sums staðar áfall fyrir framsóknar- menn en er ánægður með að hafa komið manni að í Reykjavík.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.