Fréttablaðið - 29.05.2006, Blaðsíða 20
29. maí 2006 MÁNUDAGUR
FRÁ DEGI TIL DAGS
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRAR: Kári Jónasson og Þorsteinn Pálsson FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FRÉTTASTJÓRAR: Arndís
Þorgeirsdóttir, Pétur Gunnarsson og Trausti Hafliðason RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000
SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja
ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum
á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871
Sjúkraþjálfun
Spennandi nám án skólagjalda
Skráðu þig í inntökupróf fyrir 1. júní
HÁSKÓLI ÍSLANDS
SJÚKRAÞJÁLFUNARSKOR
Skráning í inntökupróf: www.hi.is
Upplýsingar um inntökupróf: www.laeknadeild.hi.is
Upplýsingar um námið: www.laeknadeild.hi.is
Sjúkraþjálfunarskor – Skógarhlíð 10 – 105 Reykjavík – S: 525 4004
Mest lesna viðskiptablaðið
AUGLÝSINGASÍMI
550 5000
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU ALLA MIÐVIKUDAGA
Sa
m
kv
æ
m
t
fj
ö
lm
ið
la
kö
n
n
u
n
G
al
lu
p
o
kt
ó
b
er
2
00
5.
Um síðustu helgi töpuðu mínir
menn fyrir KR 2 - 0, svo lágum við
fyrir FH, og á laugardaginn tapaði
svo flokkurinn minn sveitarstjórn-
arkosningunum, og nú ríður á að
vinir mínir og félagar í Framsókn-
arflokknum tapi sér ekki.
Nú eigum við að ræða málin í
okkar hóp og takast á inn á við og
ekki skemmta andstæðingum
okkar með ótímabærum yfirlýs-
ingum, eða með því að vera nafn-
lausir heimildamenn ákveðinna
fréttamanna sem hafa gaman af
að flytja tortímingarfréttir af
Framsóknarflokknum. Nú þurfum
við að berja í brestina og sækja
svo fram af fullu afli í næstu kosn-
ingum, hvenær svo sem þær
verða. Með öðrum orðum að viður-
kenna tapið og vinna út frá því.
Það gerði Halldór Ásgrímsson,
einn flokksleiðtoganna, í fyrri nótt
þegar hann aðspurður sagðist taka
á sig ábyrgð á útkomu flokksins á
landsvísu. Hann sagðist líka hafa
orðið var við það á ferðum sínum
um landið í kosningabaráttunni að
óróleika og óánægju gætti meðal
flokksfólksins.
Almennt hefur baráttan í
Reykjavík smitandi áhrif á kosn-
ingabaráttuna annars staðar á
landinu enda kastljósi fjöl-
miðlanna einkum beint að flokk-
unum þar og einstaklingunum sem
í hlut eiga. Fyrir okkur framsókn-
armenn var þar á brattann að
sækja, en þrátt fyrir erfiða stöðu
tókst ungum leiðtoga og liði hans
að snúa erfiðu tafli sér í hag og ná
inn í höfuðborginni með 6,3%
fylgi. Þar verður áfram mikið
verk að vinna. Ég eftirlæt forystu-
mönnum míns flokks að túlka nið-
urstöður flokksins í smáatriðum,
en ég var ánægð með að heyra það
sem ég raunar vissi af reynslunni,
að Halldór Ásgrímsson vék sér
ekki undan ábyrgðinni. Hann var
hins vegar einn um það.
Sjálfstæðisflokkurinn náði ekki
takmarki sínu í Reykjavík þótt
hann kópíeraði R-lista málin eitt
af öðru, en sú útkoma á sér engan
ábyrgðarmann heyrist mér. Nafna
mín Sólrún Gísladóttir virtist mér
heldur enga ábyrgð bera á brostn-
um vonum flokksmanna Samfylk-
ingar þegar ég hlustaði á hana í
gærkvöldi. En hvað skýrir úrslit
kosninganna? Er það ekki áhuga-
verðast? Mér finnst eins og kjós-
endur séu að segja stjórnmála-
mönnum að þeim verði kastað út í
ystu myrkur í alþingiskosningum
ef þeir gleyma í umræðunni að
ræða þau málefni sem samfélagið
er viðkvæmast fyrir. Það vantar
eitthvað í þennan mannlega þátt
þegar hraðinn og græðgin fer svo
hratt vaxandi.
Eðli málsins samkvæmt bitnar
pólitísk vinstri hreyfing meðal
kjósenda á þeim flokki sem er á
miðjunni og sækir fylgi sitt til
beggja átta. Það skýrir útkomu
Framsóknarflokksins í kosningun-
um nú að mínu áliti. Félagslegar
áherslur Margrétar Sverrisdóttur
eiga vafalaust stóran þátt í útkomu
Frjálslynda flokksins. Ósk kjós-
enda um ríkari samfélagslega
ábyrgð skýrir að mínum dómi líka
útkomu Samfylkingarinnar um
landið. Samfylkingin sótti sér nýja
forystu í fyrra, hægri sinnaðan
varaformann og formann sem ekki
hefur getað fótað sig á landsmála-
svellinu og hefur átt mjög erfitt
með að svara gagnrýni VG á Sam-
fylkinguna frá vinstri. Afskipti
formannsins af prófkjörsbaráttu
SF í Reykjavík hafa hér sömuleiðis
einhver áhrif rétt eins og sölu-
menn Dags B. Eggertssonar.
Hjá sjálfstæðismönnum gerð-
ist í raun ekkert nýtt. Þeir stóðu í
stað þegar á heildina er litið. Það
er margt sem við framsóknar-
menn í öllum kjördæmum þurfum
að hafa í huga þegar við förum
vandlega yfir þá flóknu stöðu sem
upp er komin. Hún skýrist ekki af
framgöngu eins manns eða tveggja
- hún skýrist af óskum kjósenda.
Verkefnið er að greina þær óskir
rétt.
Stjórnmál snúast um þolin-
mæði, klókindi og traust. Nú reyn-
ir á að menn standi saman og tapi
sér ekki þrátt fyrir tap. Þannig er
það bæði í boltanum og í barátt-
unni um að þjóna kjósendum. Allir
þurfa að axla sameiginlega ábyrgð,
það dugar skammt að benda ein-
göngu á þjálfarann eða einstaka
leikmenn. Sameiginlegt átak þarf
til að ná árangri. Þessi vísindi eru
ekki flóknari en svo.
Þrjú töp á tíu dögum
Í DAG
ÚRSLIT SVEITAR-
STJÓRNARKOSN-
INGA
INGIBJÖRG
PÁLMADÓTTIR
Sjálfstæðisflokkurinn náði ekki
takmarki sínu í Reykjavík þótt
hann kópíeraði R-lista málin
eitt af öðru, en sú útkoma
á sér engan ábyrgðarmann
heyrist mér. Nafna mín Sólrún
Gísladóttir virtist mér heldur
enga ábyrgð bera á brostnum
vonum flokksmanna Samfylk-
ingar þegar ég hlustaði á hana
í gærkvöldi.
Góður áburður fyrir grasrótina
Vinstri græn fögnuðu góðum sigri
í sveitarstjórnarkosningunum, sigri
sem hlýtur að hafa mikla þýðingu fyrir
uppbyggingu flokksins á næstu árum.
Fyrir kjördag hafði flokkurinn lítil ítök
á sveitarstjórnarstiginu en í dag er sú
staða gjörbreytt. Það er forsenda fyrir
öflugu grasrótarstarfi stjórnmálaflokks
að eiga ítök í sveitarstjórnum, og ekki
er vafi á því að sú staðreynd að VG
hefur nú náð að skjóta rótum í
sveitarstjórum sveitarfélaga eins
og Hafnarfirði, Kópavogi, Árborg,
Dalvík og Akranesi mun hafa
mikið að segja og setja aukinn
kraft í baráttu flokksins vegna
alþingiskosninganna næsta vor.
VG braut turninn
Vinstri græn þóttu taka
nokkra áhættu þegar þau
ákváðu að slíta Reykjavíkurlistasam-
starfinu. En í ljósi úrslita kosninganna
má segja að sú ákvörðun Svandísar
Svavarsdóttur, Árna Þórs Sigurðssonar
og Steingríms J. Sigfússonar hafi reynst
hárrétt, frá sjónarhóli Vinstri grænna.
Líklega var það ekki síst sókn Vinstri
grænna í Reykjavík sem hélt fylgi Sam-
fylkingarinnar niðri í kosningabaráttunni
og þess vegna voru það öðrum fremur
Svandís og félagar sem brutu á bak
aftur draum Samfylkingarinnar
um að búa til tveggja turna pól-
itískt landslag í höfuðborginni
og á landsvísu. Úrslit kosning-
anna benda ótvírætt til þess
að íslenska fjölflokkakerfið sé
fast í sessi. Það eru lágreistar
byggingar en ekki háreistir
turnar sem setja svip á pólitíska
landslagið líkt og íslenska
byggingarstílinn.
Naflaskoðun framundan
Framsóknarflokkurinn þarf að líta í
eigin barm og endurreisn flokksins
hefst á morgun, sagði Björn Ingi Hrafns-
son þegar kosningatölurnar staðfestu
spá skoðanakannana um að flokkurinn
myndi tapa miklu fylgi víða um land.
Halldór Ásgrímsson sagði í viðtölum
um nóttina að hann hlyti sjálfur að axla
nokkra ábyrgð á útkomunni og gæti
ekki velt henni á herðar
sveitarstjórnarmanna
úti um landið. Fróðlegt
verður að fylgjast með
framhaldinu.
petur@frettabladid.is
Eftir langvarandi ríkisstjórnarsetu fær Sjálfstæðisflokkur-inn góða kosningu. Forystuflokkur ríkisstjórnarinnar verður á hinn bóginn fyrir verulegu áfalli. Samfylkingin
nær ekki að sækja í sig veðrið eftir langa forystu í stjórnarand-
stöðu. Vinstri grænt styrkir þar á móti stöðu sína. Þetta eru
þverstæð úrslit.
Hvers vegna er gifta stjórnarflokkanna svo ólík? Í síðustu
þingkosningum tapaði Sjálfstæðisflokkurinn og missti í fyrsta
skiptið í sögunni forystusætið í Reykjavík. Nú vinnur hann á.
Ytri aðstæður stjórnarflokkanna eru eigi að síður þær sömu.
Það sem skilur þá að er ný forysta Sjálfstæðisflokksins sem
án sérstakra aðgerða hefur fært flokkinn nær miðjunni og gefið
honum annað og mildara yfirbragð. Í umbreytingu Framsóknar-
flokksins yfir í nútíma frjálslyndan flokk sýnist hann aukheldur
hafa lagt ónóga rækt við útengin og gefið hefðbundnar slægjur
eftir í of ríkum mæli eða full hratt.
Einn stjórnarandstöðuflokkur hefur góðan byr, annar er í
mótvindi. Hver er skýringin? Á það er að líta að Samfylkingin
hefur verið að breyta þremur gömlum flokkum í nýjan með svip-
uðum hætti og Framsóknarflokkurinn hefur verið að breytast. Í
þeirri umbreytingu hefur Samfylkingunni ekki tekist að verja
slægjur útengjanna. Í Reykjavík sýnist hún til að mynda bæði
hafa hleypt Vinstri grænu og Frjálslynda flokknum í þær og
jafnvel Sjálfstæðisflokknum.
Formaður Samfylkingarinnar var sterkur valdapólitíkus á
borgarstjórastóli en er ekki að sama skapi slyngur umræðupól-
itíkus eins og stjórnarandstöðuforingjar þurfa að vera. Formað-
ur Vinstri græns er hins vegar einn öflugasti umræðupólitíkus
landsins.
Báðir helstu armar Samfylkingarinnar gefa bæði leynt og
ljóst í skyn að þeim hugnist að ljúka eyðimerkurgöngu stjórnar-
andstöðuhlutverksins með samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn
eftir næstu þingkosningar.
Fyrir vikið hefur Vinstri grænt fengið eins konar einkarétt á
því að virka eins og segull á þá kjósendur sem láta það ráða
úrslitum hvar atkvæði þeirra fellur að koma Sjálfstæðisflokkn-
um frá völdum.
Athygli vekur að í oddvitasæti Vinstri græns í Reykjavík
kemur kona með styrk framtíðarforystumanns. Sennilega væri
það eins og að hefja skák með drottningarforgjöf að fara í þing-
kosningar að ári án hennar.
Í Reykjavík er ávinningur Sjálfstæðisflokksins þónokkur en
ekki glæsilegur. Lykilstaða hans við meirihlutamyndun byggist
ekki alfarið á eigin styrk heldur eins á þeirri staðreynd að Sam-
fylkingin er aðeins stærst af minni flokkunum. Henni hefur mis-
tekist að verða að raunverulegu pólitísku jafnvægi sem vegur
salt við Sjálfstæðisflokkinn.
Varla verður litið öðru vísi á en Það séu skilaboð kjósenda að
Sjálfstæðisflokkurinn hafi forystu um meirihlutamyndun í
Reykjavík. Samstarf ríkisstjórnarflokkanna er þar augljóslega
einn kostur og um margt rökréttur fyrir báða.
Annar kostur sem sýnist liggja í loftinu er samstarf við Frjáls-
lynda flokkinn. Hættan í því fyrir Sjálfstæðisflokkinn er sú að
þar með fengi sá flokkur nægjanlegt súrefni fyrir næstu alþing-
iskosningar, nema jafnframt yrði frá því gengið að þeir gömlu
sjálfstæðismenn sem þar eru snúi til baka.
Í heild voru þetta sveitarstjórnarkosningar án skarpra veðra-
skila. En bæði Framsóknarflokkurinn og Samfylkingin þurfa að
losa um þrengingar á taflborði stjórnmálanna fyrir komandi
þingkosningar en að sönnu mismiklar.
SJÓNHARMIÐ
ÞORSTEINN PÁLSSON
Kjósendur segja sitt.
Þverstæð úrslit