Fréttablaðið - 29.05.2006, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 29.05.2006, Blaðsíða 18
 29. maí 2006 MÁNUDAGUR18 fréttir og fróðleikur Svona erum við Blóðbankinn hefur hrint af stað herferð undir yfirskriftinni „Allir geta verið hetjur“. Sigríður Ósk Lárusdóttir, forstöðumaður blóðsöfnunarferða, segir slíkar herferðir nauðsynlegar til að vekja athygli á blóðgjöfum. Hækk- andi aldur er áhyggjuefni þar sem færri standa þá undir því að gefa blóð að sögn Sigríðar og nauðsynlegt að fá fleira fólk inn. Blóðbankinn fær engan pening til auglýsinga en er í samstarfi við Ogvodafone með þessa herferð. Hvernig er staðan á blóðgjöfum? Í dag eru virkir blóðgjafar, þeir sem gefa oftar en einu sinni, um 9.000 talsins. Um 20.000 manns hafa ein- hvern tímann komið og gefið blóð. Við förum yfir lagerstöðuna daglega og köllum inn gjafa eftir því sem þarf með sms skilaboðum eða tölvupósti, einnig hringjum við persónulega. Á hverjum einasta degi þurfum við 70 blóðgjafa og við sinnum öllu landinu. Hvernig gefur maður blóð? Fólk mætir til okkar eða í Blóðbílinn sem er oft á ferðinni á höfuðborgarsvæð- inu og fyllir út heilsufarsskýrslu sem hjúkrunarfræðingur fer yfir með viðkomandi. Því næst er sýni tekið og rannsakað. Kannað er hver blóð- flokkurinn er og hvort viðkomandi sé aflögufær um blóð. Sé allt með felldu má blóðgjafi koma eftir tvær vikur og gefa blóð. SPURT & SVARAÐ BLÓÐBANKINN Hetjur nútímans Á síðustu vikum hafa brotist út átök á Austur- Tímor, einkum í höfuðborginni Dili og nágrenni hennar þar sem vopnaðir hópar hafa skipst á skotum. Tugir þúsunda íbúa hafa flúið átökin og yfirgefið borgina. Stjórn landsins fór núna í vikunni fram á aðstoð alþjóðlegs herliðs til þess að stilla til friðar. Ástralía brást snögglega við kallinu og hefur sent hundruð hermanna til höfuðborgarinnar. Hverjir eru að berjast? Átökin núna má rekja til þess að 600 af 1.400 manna herliði Austur-Tímors fóru í verkfall í mars síðastliðnum til þess að krefjast betri vinnuskilyrða. Mótmælaaðgerðir þeirra voru bældar niður og mótmælendurnir allir reknir úr hernum. Margir þeirra hafa síðan farið saman í hópum og staðið í átökum við það sem eftir er af stjórnarhernum. Ástralía hefur sent hundruð hermanna til Austur-Tímors á síðustu dögum að beiðni stjórnarinnar. Alls verða áströlsku hermennirnir 1.300 og þeim er ætlað að koma á friði í höfuðborginni. Hvað veldur óánægjunni? Herliðið á Austur-Tímor var stofnað í miklum flýti þegar landið fékk fullt sjálfstæði árið 2002. Stjórn landsins hefur verið gagnrýnd fyrir að hafa staðið illa að skipulagi hersins. Óánægðu her- mennirnir eru flestir frá vesturhluta Austur-Tímors, og hafa haft það á tilfinningunni að þeim væri mismunað vegna uppruna síns. Yfirmenn hersins eru flestir úr röðum þeirra sem börðust fyrir sjálfstæði og héldu uppi andófi gegn Indónesíuher. Hver er forsagan? Austur-Tímor var áður portúgölsk nýlenda sem lýsti yfir sjálfstæði árið 1975, en var eftir það í reynd undir hervaldi Indónesíu allt til ársins 1999 þegar indónesíski herinn fór frá landinu og skildi eftir sig gríðar- lega eyðileggingu. Næstu þrjú árin fóru Sameinuðu þjóð- irnar með bráðabirgða- stjórn á Austur-Tímor, en árið 2002 fékk landið loks sjálfstæði í reynd með eigin stjórnar- skrá. Fyrir um það bil ári fóru síðustu friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna frá Austur-Tímor. FBL-GREINING: AUSTUR-TÍMOR Óánægðir hermenn efna til átaka> Mannfjöldaspá íslensku þjóðarinnar M an nf jö ld i 2008 2009 2010 2011 2012 Heimild: Hagstofa Íslands 30 2. 46 2 30 4. 71 1 30 6 .9 41 30 0. 19 1 30 9. 13 8 F í t o n / S Í A Kannanir Gallup um fylgi flokkanna í Reykjavík var næst úrslitum, ef skoðað- ar eru síðustu kannanir sem birtar voru. Kannanir Félagsvísindastofnunar og Fréttablaðsins voru heldur fjær úrslitum. Þrír aðilar birtu skoðanakannanir í nokkrum stærstu sveitarfélög- um landsins fyrir kosningarnar sem fram fóru á laugardag; Félagsvísindastofnun fyrir frétta- stofu NFS, Fréttablaðið og Gallup fyrir fréttastofur Ríkisútvarpsins og Sjónvarpsins. Ef niðurstöður kosninga í Reykjavík eru bornar saman við síðustu kannanir sem birtust eru kannanir Gallup næst niðurstöð- um kosninga, en kannanir Félags- vísindastofnunar og Fréttablaðs- ins eru heldur fjær. Að meðaltali var Gallup 1,3 prósentustigum frá kosningum, Félagsvísindastofnun var 1,8 prósentustigum frá kosn- ingum en Fréttablaðið 1,9 pró- sentustigum. Næstsíðasta könnun Gallup, sem birt var á fimmtu- dag, var nær kosningaúrslitum en könnun Gallup sem birtist daginn eftir, eða að meðaltali einu pró- senti frá kosningaúrslitum. Hjá einstökum flokkum var Gallup næst niðurstöðu Fram- sóknarflokksins og Samfylkingar, en fjærst kosningaúrslitum Frjáls- lynda flokksins og Vinstri grænna. Félagsvísindastofnun var næst kjörfylgi Frjálslynda flokksins og Vinstri grænna, en fjærst kjör- fylgi Sjálfstæðisflokksins. Frétta- blaðið var næst kosningaúrslitum Sjálfstæðisflokksins, en fjærst kjörfylgi Samfylkingar og Fram- sóknarflokks. Framsóknarflokkurinn hlaut 6,3 prósent atkvæða í kosningun- um, en könnun Gallup sagði flokk- inn hafa 5,9 prósent fylgi, sem er vanmat sem nemur 0,4 prósentu- stigum. Félagsvísindastofnun van- mat fylgið um 1,3 prósentustig og mældi flokkinn með 5,0 prósenta fylgi. Fréttablaðið vanmat fylgi Framsóknarflokks um 1,8 pró- sentustig og mældi fylgi flokksins 4,5 prósent. Sjálfstæðisflokkur fékk 42,9 prósent atkvæða, sem er 0,3 pró- sentustigum frá könnun Frétta- blaðsins sem mældi fylgið 43,2 prósent. Í síðustu könnun Gallup mældist fylgið 45,0 prósent og var því ofmetið um 2,1 prósentustig. Félagsvísindastofnun mældi fylg- ið 4,2 prósent og ofmat fylgið um 4,3 prósentustig. Vegna þess hve oft fylgi Sjálfstæðisflokks er ofmetið í könnunum, spyrja Félagsvísindastofnun og Gallup framhaldsspurningar til að vega upp á móti því. Fréttablaðið hefur hins vegar ekki spurt slíkra fram- haldsspurninga. Frjálslyndi flokkurinn hlaut 10,1 prósent atkvæða og var fylgi flokksins vanmetið í öllum könn- unum. Minnst var fylgið vanmetið í könnun Félagsvísindastofnunar, um 1,6 prósentustig, en Frétta- blaðið vanmat fylgi flokksins um 2,5 prósentustig og Gallup vanmat fylgi flokksins um 2,8 prósentu- stig. Könnun Gallup var mjög nálægt kjörfylgi Samfylkingarinnar. Sam- fylkingin fékk 27,4 prósent atkvæða en könnun Gallup sagði flokkinn vera með 27,3 prósenta fylgi. Félagsvísindastofnun sagði Samfylkingu hafa fylgi 25,6 pró- sent kjósenda og vanmat því fylg- ið um 1,8 prósentustig. Fréttablað- ið sagði hins vegar fylgi flokksins vera 31, prósent og ofmat því fylg- ið um 4,3 prósentustig. Vinstri grænir hlutu 13,5 pró- sent atkvæða og var Félagsvísinda- stofnun næst kjörfylginu. Í könnun Félagsvísindastofnunar mældist fylgi flokksins 13,7 prósent og ofmat því fylgið um einungis 0,2 prósentustig. Fréttablaðið mældi fylgi flokksins 13,0 prósent og van- mat því fylgið um 0,5 prósentustig. Í könnun Gallup var fylgi flokksins 14,5 prósent og var því ofmetið um eitt prósentustig. Mestu frávikin eru annars vegar mæling Félagsvísindastofn- unar á fylgi Sjálfstæðisflokks, þar sem fylgið var ofmetið um 4,3 pró- sentustig og mæling Fréttablaðs- ins á Samfylkingu, þar sem fylgið var ofmetið um 4,3 prósentustig. Minnstu frávikin er mæling Gallup á fylgi Samfylkingar sem var vanmetið um 0,1 prósentustig, mæling Félagsvísindastofnunar á Vinstri grænum, sem ofmat fylgið um 0,2 prósentustig og mæling Gallup á Sjálfstæðisflokknum sem ofmat fylgið um 0,3 prósentustig. Könnun Gallup næst úrslitum Mikill munur var á öllum þeim könnunum sem birtust og sýndu fylgi flokka á Ísafirði og niður- stöðu kosninganna á Ísafirði. Það er könnun Félagsvísinda- stofnunar, sem jafnframt er elsta könnunin, tekin 26. til 28. apríl, sem er að meðaltali næst úrslitum kosninganna. Könnun Félagsvís- indastofnunar er þó 8,4 prósentu- stigum að meðaltali frá úrslitum kosninga. Könnun Fréttablaðsins sem gerð var 11. maí er að meðal- tali 10,5 prósentustigum frá kjör- fylgi. Könnun Gallup, sem jafn- framt er nýjasta könnunin og gerð var 10. til 15. maí, er fjærst frá niðurstöðu kosninganna og er að meðaltali ellefu prósentustigum frá niðurstöðu kosninga. Allar þrjár kannanirnar ofmátu verulega fylgi Í-listans, Félags- vísindastofnun um 11,3 prósentu- stig, Fréttablaðið um 15,7 pró- sentustig og Gallup um 16,5 prósentustig. Að sama skapi var fylgi Sjálf- stæðisflokks verulega vanmetið, Félagsvísindastofnun um 12,0 prósentustig, Fréttablaðið um 13,5 prósentustig og Gallup um 13,8 prósentustig. Fylgi Framsóknarflokks var einnig vanmetið, þó að það hafi ekki verið jafnmikið og fylgi Sjálfstæðisflokks. Félagsvísinda- stofnun vanmat fylgi flokksins um 1,9 prósentustig, Fréttablaðið um 2,4 prósentustig og Gallup um 2,7 prósentustig. Þar sem samræmi er á milli allra þriggja kannananna er lík- legt að mikil fylgissveifla hafi orðið frá 15. maí fram að kjör- degi, þar sem fylgið færðist frá Í- listanum og að megninu til yfir til Sjálfstæðisflokks. Það verður að minnsta kosti að teljast líklegra en að allar þrjár kannanirnar hafi haft sömu innbyggðu skekkjuna í fylgismælingum sínum. - ss Munur á könnunum og kosningum á Ísafirði: Kannanir gáfu ranga mynd af stöðu FRÉTTASKÝRING SVANBORG SIGMARSDÓTTIR svanborg@frettabladid.is Skoðanakannanir 2006 SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR B D S F V Munur á fylgi flokka í skoðanakönnunum og kjörfylgi í Reykjavík ■ Félagsvísindastofnun ■ Fréttablaðið ■ Gallup ■ Kjörfylgi Miðað er við síðustu kannanir 43 ,2 % 45 ,0 % 42 ,9 %47 ,2 % 4, 5% 5, 9% 6, 3% 5, 0% 7, 6% 7, 3% 1 0, 1% 8, 5% 31 ,7 % 27 ,3 ,% 27 ,4 % 25 ,6 % 13 ,0 % 14 ,5 % 13 ,5 % 13 ,7 % SIGRÍÐUR ÓSK LÁRUSDÓTTIR Forstöðumaður blóðsöfnunarferða
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.