Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.05.2006, Qupperneq 13

Fréttablaðið - 29.05.2006, Qupperneq 13
MÁNUDAGUR 29. maí 2006 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T M I 32 88 7 0 5/ 20 06 Sveigjanlegir möguleikar með TM bílaláni: // 5,95% fastir vextir á verðtryggðum lánum - tilboð til 15. júní // Lántökugjöld 1% - tilboð til 15. júní // Lán í íslenskri mynt - engin gengisáhætta // 80% lán í allt að 7 ár // Getur greitt upp lánið hvenær sem er // Engin uppgreiðsluþóknun // Hægt að borga inn á lánið á tímabilinu og lækka höfuðstól // Hægt að færa lán á milli ökutækja // Hægt að bæta við núverandi lán með sameiningarláni TM fjármagnar bílakaupin Bíllinn er sjálfsagt ein algengasta stórfjárfesting okkar í lífinu. En stundum getur verið erfitt að leggja út fyrir heildarupphæðinni. Með bílaláni TM geta kaupendur klófest þann bíl sem þeir eru spenntastir fyrir á einfaldan og þægilegan hátt. Þeir velja draumabílinn og sölumaður fyllir út lánsumsókn. Þeir sem vilja eignast ferðavagn eða mótorhjól með hagstæðum lánum eiga líka kost á bílaláni TM. Þú getur sótt um bílalán TM á vefnum, www.tryggingamidstodin.is, eða hringt í síma 515 2000. Hringdu í síma 515 2000 eða farðu á www.tryggingamidstodin.is og fáðu skýr svör. Ég vil komast í samband við traustan ferðafélaga, sem finnst gaman að skoða náttúruna! Bílalán TM TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN / Sími 515 2000 / tm@tryggingamidstodin.is VINNUMARKAÐUR Ungt fólk sem sækir um sumarvinnu getur átt von á því að vera boðað í dags- vinnu til reynslu. Ef það stendur sig vel fær það ráðningu og fær þá borgað fyrir daginn. Ef það þykir ekki hafa staðið sig nógu vel fær það ekki vinnuna og heldur ekki greitt fyrir daginn. Benedikt Höskuldsson, fyrr- verandi trúnaðarmaður, þekkir dæmi um þetta. Sonur hans svar- aði nýlega auglýsingu þar sem óskað var eftir sumarfólki í garð- vinnu. Starfsmannastjórinn boð- aði strákinn í vinnu í einn dag til prufu með þeim orðum að hann fengi vinnuna og laun fyrir daginn ef hann stæði sig vel en annars ekki. Sonur Benedikts hefur unnið við garðvinnu í mörg sumur. Hann er duglegur og samvisku- samur og hefur alltaf mætt 100 prósent. Hann hafði því ekki mikl- ar áhyggjur af að fá ekki vinnuna. Hann vann við það að hreinsa beð frá átta til hálf sex. Í dagslok kom verkstjóri og sagði þetta illa unnið. Um kvöldið tilkynnti starfsmannastjórinn honum að hann fengi ekki vinnuna og held- ur engin laun. „Ég hringdi síðan sjálfur í starfsmannastjórann og spurði hvort hann þekkti ekki leikregl- urnar á vinnumarkaði. Maður tekur ekki mann í vinnu allan dag- inn og borgar engin laun,“ segir Benedikt. „Mér finnst þetta hall- ærisleg og niðurlægjandi fram- koma. Þetta er ósiðlegt og á skjön við allar leikreglur á vinnu- markaði.“ Benedikt bendir á að fyrirtæk- ið rukki verkkaupann fyrir störf sonarins og veltir fyrir sér af hverju fyrirtækið skyldi ekki greiða stráknum fyrir vinnuna. Rétt er að taka fram að starfs- mannastjórinn hefur nú lýst því yfir að hann muni greiða strákn- um. Þórunn Sveinbjörnsdóttir, vara- formaður Eflingar, segir að þetta tiltekna mál hafi komið inn á borð hjá Eflingu. Reglurnar séu skýrar. Fólk sem vinnur til reynslu í einn dag eigi að fá greitt fyrir vinnu sína. Gunnar Páll Pálsson, formaður VR, segir að alltaf komi tvö til þrjú svona mál á borð VR á hverju ári. Unglingar sem eru teknir í vinnu til reynslu eigi skilyrðis- laust að fá greitt fyrir vinnu sína, jafnvel þó þeir séu síðan ekki ráðnir til starfa. VR sendi mál af þessu tagi í innheimtu ef laun fáist ekki greidd. ghs@frettabladid.is Eru launalaus á reynslutíma Ungt fólk sem sækir um sumarvinnu er í auknum mæli látið vinna einn dag til prufu hjá fyrirtækjum. Ef það stendur sig vel fær það vinnuna og fær greitt fyrir daginn. Ef það stendur sig illa fær það enga vinnu og heldur ekki laun fyrir prufudaginn. UNGLINGAR VIÐ GARÐVINNU Ungt fólk getur átt von á því að vera boðað í dagsvinnu til reynslu á þeim forsendum að það fái vinnuna í sumar ef það stendur sig vel, annars ekki. Stéttarfélögin segja að skilyrðislaust eigi að greiða fyrir vinnuna, jafnvel þó að viðkomandi fái ekki sumarvinnu. Fólkið á myndinni tengist ekki efni fréttarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA DILI, AP Sveitir vopnaðra manna skildu eftir sig slóð eyðileggingar á Austur-Tímor í gær og hunsuðu með öllu tilraunir erlendra friðar- gæsluliða til þess að hafa hemil á ástandinu. Óttast er að borgara- styrjöld sé í uppsiglingu, sjö árum eftir að eyjarhelmingurinn losn- aði undan 24 ára hernámi Indónes- íu. Hundruð friðargæsluliða frá Ástralíu og Malasíu eru komin til höfuðborgarinnar Dili að beiðni stjórnar landsins. Rótina að átökunum er að finna í gagnkvæmri tortryggni milli þeirra sem studdu yfirráð Indónesíu á sínum tíma og hinna sem börðust gegn þeim. - gb Slóð eyðileggingar á Austur-Tímor: Óttast að borgara- stríð brjótist út FRIÐARGÆSLULIÐA HEILSAÐ Ekki tóku allir Austur-Tímorar jafn vel á móti áströlsku friðargæslusveitunum.FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.