Fréttablaðið - 29.05.2006, Blaðsíða 21
ER ÞÍN EIGN AUGLÝST HÉR? MEST LESNA FASTEIGNABLAÐ LANDSINS
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 3.31 13.25 23.22
Akureyri 2.45 13.10 23.38
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
NFS Í BEINNI
Á VISIR.IS
35.000 gestir vikulega
sem dvelja í u.þ.b. eina klst. hver.
Auglýsingasími 550 5000.
Garðyrkjumenn fyllast eldmóði á vorin og
á það bæði við um lærða og leika enda eru
ótal verkefni að glíma við.
Brynjar Kjærnested, garðyrkjumaður hjá Garðlist
á Kársnesbraut í Kópavogi, veit hvað ber helst að
gera þessa dagana. „Þeir sem ekki eru búnir að
hreinsa beðin ættu að byrja á því. Það getur þurft
að bæta við mold og svo er orðið vinsælt að setja
sand yfir beðin því hann minnkar viðhald á þeim
mjög mikið. Lagið þarf að vera svolítið þykkt. Ekki
þynnra en sex sentimetrar og má fara upp í tíu.
Þeir sem ekki vilja nota eitur til að stoppa arfann
gera það gjarnan með sandi. Við notum mest malað
hraun. Það má ekki setja of fínan sand því hann
fýkur bara um og verður of þéttur.“
Þar sem Brynjar er einn þeirra sem taka að sér
umhirðu garða fyrir almenning er hann spurður
hvort matjurtarækt sé vinsæl þar sem hann þekkir
til. „Við erum nú aðallega í því að tyrfa yfir gamla
matjurtagarða,“ svarar hann hlæjandi. „Samt
kemur fyrir að við stingum upp matjurtagarða
fyrir viðskiptavini og höfum jafnvel verið beðnir
að setja niður kartöflurnar líka. En þeim fer greini-
lega fækkandi sem rækta grænmeti við heimahús
og það þekkist varla í nýjum görðum.“
Brynjar segir rétta tímann núna til að bera á
bæði trjágróður, blómabeð og grasflatir. „Víða er
mikill mosi í grasflötum. Þá er langbest að ná sér í
magnesíumkalk og setja dálítið mikið af því, það
minnkar mosavöxtinn. Fínt að setja það á núna og
svo jafnvel tvisvar aftur í sumar. Sumir fara út í
harðari aðgerðir og mosatæta garðinn með sér-
stöku tæki en við mælum með kalkinu. Það er ein-
föld og ódýr lausn.“
Ekki er Brynjar sérlega hrifinn af fjölærum
blómum. „Það er mikil vinna í kringum fjölær
blóm. Það þarf að afmarka vöxtinn hjá þeim því
þau skríða um og það þarf að halda þeim meira við
en trjágróðrinum. Ekki má nota Casoron á fjölær
blóm en Casoron er fyrirbyggjandi eitur sem dreift
er yfir beð þegar búið er að hreinsa þau. Það er
mjög góð lausn fyrir fólk sem vill minnka vinnu við
trjábeðin hjá sér en er ekki með sand. Það er líka
ágætt að uppræta gróður milli hellna með þessu
efni en þá þarf að passa að ganga ekki af stéttunum
út á grasið fyrstu þrjá dagana því það sést greini-
lega. Casoroni þarf að dreifa í logni og mikilvægt
er að fólk viti að það virkar á yfirborð beðsins
þannig að ef rótað er í beðinu aftur þá minnkar
virkni efnisins.“
Magnesíumkalk í grasflötina
Brynjar Kjærnested aðhyllist runna og trjágróður í görðum en
er minna fyrir fjölær blóm. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Hér er rauð möl notuð í beðin og fer hún vel við grænan gróðurinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ÖÐRUVÍSI
VEGGPOTTAR
Blómapottar eru með
ýmsu lagi. Blómapottar
úr ryðfríu stáli eru falleg
hönnun og öðruvísi.
HÚS 4
FASTEIGNASÖLUR
Akkurat 27
Atlas 33
Árborgir 16
Ás 6-9
Dómus 18-19
Draumahús 20-23
Eignaumboðið 24-25
ES 14
Fasteignamiðlun FMG 35
Gloria Casa 31
Hof 28
Húseign 26
Höfði 12
Lundur 10-11
Lyngvík 29
Lögmenn Suðurlands 24
Neteign 16
Remax 13
Viðskiptahúsið 17
GÓÐAN DAG!
Í dag er mánudagurinn
29. maí, 149. dagur ársins
2006.