Fréttablaðið - 29.05.2006, Blaðsíða 24
29. maí 2006 MÁNUDAGUR4
N† VÖRU- OG fiJÓNUSTU-
SKRÁ Á VISIR.IS/ALLT
... sem flig vantar í
n‡ja húsnæ›i›
Hafið samband
Skoðið heimasíðuna
Látið drauminn rætast
Yfir 60 gerðir húsa og bústaða
Hafa verið framleidd í yfir 35 ár
Mikil reynsla
Frábært verð
1 Hæð
2 Hæðir
3 Hæðir
www.hthus.is
Hús & Tæki ehf : 540 9600
Hjörtur 896 1081
Þorkell 863 6062
Ritstjóri
Auður I. Ottesen
2
VIÐ RÆKTUM
Lauftré
á Íslandi
Handhægur leiðarvís
ir fyrir ræktendur
2
V
IÐ
R
Æ
K
TU
M
Lauftré á Ísland
i
Sum
arhúsið
o
g
g
arð
urinn ehf
Hún er komin!
Önnur bókin
í bókaflokknum
„Við ræktum“
er komin út.
Tryggðu þér
eintak í næstu
bókabúð
eða í áskrift
í síma 586 8005
Sumarhúsið og garðurinn ehf,
Síðumúla 15, 108 Reykjavík, www.rit.is
Ventura er sænsk hönnun á
blómapottum sem slegið hefur
í gegn víða. Blómapottarnir
eru hannaðir með gæði og
hentugleika í huga hvað varðar
ræktun og gróðursetningu.
Veggpottarnir úr Ventura-línunni
eru djúpir ásamt því að það loftar
vel um rætur plantnanna. Auðvelt
er að halda réttu rakastigi á mold-
inni með því að setja vikur í botn-
inn og að sama skapi eru göt á
endum pottanna og því er fráfalls-
rennsli úr þeim gott. Vatnið lekur
þá úr pottinum niður á jörð en
ekki meðfram húsveggnum.
Ventura-pottarnir er til í tveim-
ur stærðum, 45 sinnum 20 cm og
95 sinnum 20 cm.
Gólfkerin í Ventura-línunni eru
60 eða 80 sentimetra há og 25
sentimetrar í þvermál. Í raun eru
gólfkerin grind utan um blóma-
pottana sem gerir vökvun auð-
veldari þar sem vatnið seitlar
beint niður í jörðina.
Pottarnir fást í hvítum, svörtum
og í zink lit. Þar að auki eru pott-
arnir heilgalvaniseraðir og eiga
því ekki að ryðga.
Nánari upplýsingar um pottana
má fá hjá Yd Design að Tangar-
höfða.
Öðruvísi blómapottar
Á vorin er um að gera að taka til í
öllum krókum og kimum heimilis-
ins og gera heimilið skipulagt sem
aldrei fyrr. Fjölbreytilegar hirslur við
hæfi hvers herbergis í húsinu gera
allt skipulag auðveldara og minnka
líkurnar á því að umhverfi verði
draslaralegt á ný. Á vefsíðunni www.
aplaceforeverything.co.uk er að
finna hirslur af alls kyns tagi, flotta
geymslukassa, skóhillur, geisla-
diskahirslur og margt fleira. Það er
fyrirtækið Store sem rekur síðuna.
Það er í bænum Chester í Englandi
en hægt er að láta senda sér vörur á
milli landa.
Geymslulausnir
Á VEFSÍÐUNNI WWW.APLACEFOR-
EVERYTHING.CO.UK ER AÐ FINNA
SNIÐUGAR GEYMSLULAUSNIR.
Ventura-gólfker, hvítt, 80 sentimetrar. Kerið
er úr ryðfríu stáli og á því að standast
íslenska veðráttu.
Ventura-gólfker, 60 sentimetrar.
Svart Ventura-gólfker, 80 sentimetrar.
Ventura veggpottar, svartir.
Ventura veggpottar, 45 og 95 sentimetra. Veggpottarnir koma með festingum sem setja
má beint á skjólvegginn eða undir glugga. Potturinn er úr ryðfríu stáli.
Gott er að eiga góðar hirslur undir
skótau.
skipulag}
Nokkur atriði geta gert
gestaherbergið að uppáhalds-
herbergi fjölskyldumeðlima
þótt enginn sé í heimsókn.
Lítið sem ekkert notað gestaher-
bergi verður fljótlega mjög ónota-
legt og endar jafnvel sem drasl-
herbergi heimilisins. Lítill vandi
er að breyta þannig herbergi í
notalega vistarveru sem gott er að
vera í. Hér eru nokkur ráð til
þess.
1. Svefnsófi
Sófi gerir herbergið að indælum
stað að vera á og hann þjónar svo
hlutverki rúms þegar gesti ber að
garði. Þegar þeirra nýtur ekki við
verður herbergið eins og lítil,
notaleg stofa.
2. Lítil kommóða
Sniðugt er að kaupa litla kommóðu
sem getur þá verið bæði náttborð
og hálfgildings sófaborð. Auk þess
er kommóða góður staður til að
geyma blöð og alls kyns dót í.
3. Veggljós
Hugguleg birta er ávallt mikilvæg
og ekki síður til að gera gesta-
herbergi að aðlaðandi íverustað.
4. Vegghillur.
Hillur eru fyrirtaks staður til að
koma skemmtilegum skrautmun-
um fyrir eða sætum kössum fyrir
smádót.
Gestaherberginu breytt
Gestaherbergi getur einnig þjónað hlutverki lestrarherbergis.