Tíminn - 24.12.1977, Síða 9
Jólablað 1977
9
spilin oftast illa stemmd, þegar
þau voru notuð, og allt meira og
minna úr lagi fært.
Pétur Guðjohnsen verður fyrst-
ur til þess að fá íslendingum nót-
ur i hendur með réttum útsetn-
ingum, en hann gaf út sálma-
söngs- og messubók 1861, og
Sálmasöngsbók með þrem rödd-
um 1870.
Annar merkur dómkirkju-
organisti var Sigfús Einarsson
tónskáld (1877-1939). Hann var
organisti kirkjunnar frá 1914 til
æviloka. Sigfús hafði viðtæk áhrif
á sönglist og tónlistarlif bæöi með
kórsöng og hljóðfæraleik, sem og
útgáfum á verkum sinum, þvi
Sigfús var eitt merkasta tónskáld
þjóðarinar á sinni tið og frábær
söngstjóri.
Þessara tveggja manna var
minnzt i dómkirkjunni nýverið en
þá voru liðin 100 ár frá fæðingu
Sigfúsar Einarssonar og hundrað
ár frá dauða Péturs Guðjohnsen.
Skirnarfontur Thor-
valdsens
Dómkirkjan i Reykjavik á
marga góða gripi, þótt sumt af
gripum hennar sé nú i Þ jóðminja-
safni. Vafalaust deila menn um
gildi þeirra en meðal merkustu
gripa verður þó að telja skirnar-
font Thorvaldsens, mynd-
höggvarans fræga, en skirnar-
fonturinnkomtillandsins 1849, og
var vi'gður sjötta sunnudag eftir
Trinitatis, eða þrenningarhátið,
en þá var skirður hérna drengur,
sonur Stefáns Gunnlaugssonar
bæjarfógeta og landfógeta. Var
hann skirður Bertel (Högni).
Hann varð siðar merkur mál-
fræðingur. Hann fluttist vestur
um haf og var siðast i Tacoma i
Washington.
Thorvaldsen var sem kunnugt
er, islenzkuri föðurætt og senni-
lega fæddur norður i Skagafirði,
og er frægasti myndlistarmaður-
Jóhannes, lærisveinninn sem
Jesús elskaði, en honum var
Reykjavíkurkirkja (Vlkur-
kirkja) helguði kaþólskum sið.
inn af iglenzkum ættum, þvi hann
erparturaf heimslistinni og lista-
sögu 19. aldar.
Til er gjafabréf sem fylgir
skirnarfontinum, er hann gefur
dómkirkju sins fööurlands.
Annar merkur gripur er altar-
istaflan, sem er máluð af dönsk-
um málara, sem hér Wegener.
Taflan var sett i kirkjuna þegar
hún var fullgerð i núverandi
mynd árið 1848.
Wegener var prófessor við
dönsku listaakademiuna.
Þessi mynd er til viða, t.d. lifði
Sigurður Guðmundsson á þvi um
tima að kópiera myndina og selja
hana vitt um land, að þvi er sagt
er.Hún er til viða, meðal annars i
Akraneskirkju og á Grund iEyja-
firði.
A altarisklæðinu er islenzk silf-
ursmið og á hún að tákna vinvið-
inn. Berin eru islenzkir steinar.
Kaleikur kirkjunnar er meðal
þeirra muna sem komnir eru úr
Aðalstrætiskirkjunni. Kaleikur-
inn er oft kenndur við gefandann,
Sunchenberg kaupmann, en kal-
eikurinn þykir með merkustu silf-
urgripum sem tileru i landinu frá
seinni öldum og eru enn i notkun.
Þá á kirkjan Vaysenhússbibliu,
mjög verðmæta, og forgylltan
grallara með fangamarki Arna
biskups Þórarinssonar, sem var
næst seinasti biskup á Hólum og
prestur i Reykjavik um tima.
Kirkjan á ekki bókasafn, aðeins
fáeinar bibliur, en bækur koma þó
mjög við sögu, þvi á lofti kirkj-
unnar var Stiftsbókasafnið til
húsa á sinum tima og loks hið
mikla safn forlagsbóka Islenzka
bókmenntafélagsins.sem varþar
fram á miðja þessa öld.
Gleðileg jól
farsælt komandi ár
Þökkum viðskiptin á liðna árinu.
Guðni Jónsson & Co.,
Bolholti 6.
Gleðileg jól
farsælt komandi ár
Þökkum viðskiptin á liðna- árinu
Verzlun H. Toft
Skólavörðustig 25
Gieðileg jól
farsælt komandi ár
Þökkum viðskiptin á liðna árinu.
Aimenna verzlunarfélagið h/f
Skipholti 15.
Gleðileg jól
farsælt komandi ár
Þökkum viðskiptin á liðna árinu.
Netagerð
Thorbergs Einarssonar h/f.,
Ánanaustum.
Aukin eldhætta
er óhjákvæmUega samfara hátíðahaldi jóla og áramóta
Heimilisfaðir, veittu f jölskyldu þinni það öryggi,
sem hún á skilið, með kaupum á eldvarnarpakka
frá I. Pálmason h.f.
Innihald:
1 stk. heimilisreykskynjari kr. 9.850.—
1 stk A-B-C Duitslökkvitæki 6 kg. á kr. 9.900.—
Samtals kr. 19.750.—
Takmarkið er:
Jól og áramót
án eldsvoða.
Því ekki að
gera eitthvað
í málinu?
Til áramóta, eða meðan birgðir endast
bjóðum við þeim, sem kaupa pakkann
sérstakt verð, þ.e. kr. 17.300.—
I. Pálmason hf.
Straxídag
Dugguvogi 23. P.0.Box 379 Sími 8 24 66 Reykjavík
r
1