Tíminn - 24.12.1977, Blaðsíða 17
Jólablað 1977
17
Fimmtánda Kötlugos 12.
okt. 1918.
Eftir hádegiB laugardaginn 12.
okt. urBu snarpir jarBskjálfta-
kippir viBa i Mýrdal, þó mestir i
HeiBardal. Fyrst urBu menn varir
viB gosiB i Skaftártungu og á SiBu
af dynkjum og miklum hvin. Um
klukkan hálf fjögur kom svo óg-
urlegt vatnsflóB Ur Mýrdalsjökli.
Brauzt þaB fram milli HöfBa-
brekkuafréttar og Hafurseyjar.
Ruddi flóB þetta fram kynstrum
af isjökum svo varla sást útyfir
frá HöfBabrekku og Hjörleifs-
höfBa. TaliB var, aB þar sem flóB-
iB rann i þrengslum milli Hafurs-
eyjar og HöfBabrekkuafréttar,
hafi þaB orBiB um 60 til 70 metra á
dýpt. Um svipaB leyti kom annaB
flóB ofan af jöklinum fyrir vestan
Sandfell og fleygöist fram aö
Rjúpnafelli og klofnaöi á þvi.
Lenti sá hlutinn sem fyrir austan
fór, ofan i Hólmsá, en hinn stefndi
á AlftaveriB. Hlaupiö fyllti
Hólmsárgljúfur og tók brúna af
ánni og fólk flutti úr bænum
Hrifunesi. . Jakahrönn stiflaöi
Eldvatn og Tungufljót og ruddist
svo fram i Kúöafljót og brauzt
langt austur eftir Meöallandi.
Sópaöi flóöiB á haf út, fjölda af
hrossum ogsauöfé sem haföi ver-
iB á beit i hólmum i Kúöafljóti. Sá
hluti flóösins, sem stefndi á Álfta-
ver, fyllti lægöir og læki og Sunn-
anbyggjarar flúBu úr húsum sin-
um yfir nóttina, meöan þeir sáu
ekki hvaö flóöinu leiö. Um morg-
uninn var flóöiö sjatnaö en eftir
stóBu hrikalegar ishrannir. 1
þessu gosi komu ekki meiri flóö
yfir Alftaver og MeBalland. Þó aö
mikiö flóB kæmi úr jöklinum aö
austan, mátti þaö þó kallast litiö
hjá þvi sem fór um vestursand-
inn. Sást þaö bezt á stærö jak-
anna, sem bárust fram meö flóö-
inu, voru þeir frá tuttugu til
fimmtiu metrar á hæö. Töluvert
dýpi hefur þurft til aö fleyta þeim
jökum. Giskuöu menn á, aö flóö
þetta heföi náö yfir 7 til 8 hundruö
ferkilómetra svæöi. Af þessu sést,
að heföi allt vatnsflóöiö fariö
fram úr jöklinum aö austan, heföi
alla byggö i Alftaveri tekiö af og
mikinn hluta af Meöallandi. Svo
lánalega vildi þó til i þetta skipti,
aö þetta flóö varö hvorki mönnum
né bæjum að tjóni þótt litlu mun-
aöi. Sluppu gangnamenn úr Alfta-
veri aöeins fyrir dugnaö og harö-
fylgi, og hefur Jón Gislason al-
þingismaöur i Noröur-Hjáleigu
sagt frá þvi fyrir nokkrum árum,
en hann var einn af gangnamönn-
unum.
Vatnsflóð á vestursandinum
stóö i fulla niu daga samfleytt.
Oskufall varö mun minna i Mýr-
dal viöa en i Skaftártungu og
Meðallandi. Miklar þrumur og
eldingar fylgdu gosi þessu og
hrikti mjög i húsum. Stundum
voru eldblossarnir svo miklir, aö
likast var, sem logatungur sleiktu
alla byggöina. Töluvert öskufall
varö einnig á Siöu og í Landbroti.
Viöa varð ösku vart, á Akureyri,
Höfn i Hornafiröi, Vestmannaeyj-
um, vestur meö suöurströndinni
og alla leiö i Stykkishólm. Þessar
náttúruhamfarir ollu bændum
miklum erfiöleikum, þar sem
þeir áttu eftir að slátra miklu af
fé sinu. Björgunarskipiö Geir var
þá sent meö 400 tunnur meö mjöli
og salti, sem þeir settu svo út-
byröis fyrir framan brimgaröinn
við sandinn. Komst þaö allt heilt i
land nema átta tunnur. Var nú
kjötiö saltaö og geymt til vors. Úr
vestursveitunum gátu menn rekiö
til Vikur eftir hlaupiö. Þaö mun-
aði mjóu hjá Jóhanni Pálssyni úr
Skaftártungu, sem var á leiðinni
gangandi fram i Alftaver. Þegar
hann var kominn nokkuö vestur
fyrir Hólmsárbrúna, veröur hann
var við hlaupiö, snýr þegar viö og
hleypur allt hvaö af tekur og nær
brúnni, en þá er farið aö skella yf-
ir hana gegnum handriöiö. Hann
hikar samt ekki, en brýzt yfir og
hafði stuöning af handriöi. Rétt i
þeim svifum er hann sleppti brú-
arsporðinum austanmegin, tók
brúna af og þar fór hundur hans,
sem var nokkrum skrefum á eft-
ir.
Geysilegt tjón varö á gróður-
lendi og sópaöi flóöið burt heilu
torfunum, fleiri hundruð fermetr-
um I einu lagi. Þá uröu afréttir
illa úti.
Sunnudaginn 20. okt. lögöu sex
menn upp frá Vik i leiöangur til
að forvitnast um vegsummerki
hiö innra i afrétti. Inni við Lér-
eptshöfuö var viöast samfelld
jökulhrönn, frá fjallinu, og austur
aö Hafursey. Þegar þeir komu aö
Remundargili sem liggur milli
tveggja fjalla, Vestureggja aö
vestan og Austureggja aö austan
(Vestureggjar eru 347 metrar yfir
sjávarmál)., töldu mennirnir að
hlaupiö heföi fariö þaö hátt upp i
Vestureggjar, aö dýpiö i Rem-
undargili heföi orðið sextiu til sjö-
tiu metrar. Fyrir innan Vatnsrás-
arhöfuð, sem er 486 metra hátt
fjall, var komiö heljarmikiö
gljúfur, um tveir kilómetrar á
lengd og fimm hundruö metrar á
breidd, umlukt snarbröttum jök-
ulhömrum yfir eitt hundrað
metra á hæð. Vall þarna fram hiö
ófrýnilegasta vatnsfall, svart eins
og tjara. Þegar þeir komu inn
fyrir Austureggjar, sáu þeir aö
flóöiö haföi farið yfir skerin innan
viö endann á Austureggjum vest
uryfir og niður i Remundargil.
Mikið var af jökum, sem hlaupiö
haföi skiliö eftir á skerjunum.
Þess ber þó aö geta, aö þetta er
ekki eins ótrúlegt og I fljótu
bragöi viröist. í fyrstu hefur
vatnsflóöiö runniö ofan á jöklin-
um, sem þarna hefur náö upp I
mitt fjall, en svo náö aö skera sig
niöur úr jökulhellunni og niður I
fast berg og þvi hefur getað tekiö
marga daga aö mynda þetta helj-
ar gljúfur. Einnig hefur jökullinn
þá legiö mun lengra fram á Sker-
in, þaö sýnir jökulruöningur, sem
nú er fimm til sex hundruö metra
frá núverandi jökultakmörkum.
Þau tuttugu og sex ár sem ég bjó
á Höföabrekku eöa til 1969, virtist
mér hann hafa hopað um tvö
hundruö og fimmtiu til þrjú-
hundruð metra.
Eftir miðjan vetur var sá sand-
ur mældur, sem gengið haföi i sjó
fram og lengt landiö til suðurs og
reyndist þaö vera um tveir kiló-
metrar. Nokkuö hefur þó nagazt
úr þessum tanga siðan, þó mun i
dag enginn vafi leika á þvi hvar
tsland skagar lengst i suður.
Þann 22. júni 1919 fóru þrir
menn inn á Mýrdalsjökul og tóku
myndir af Kötlusvæöinu. Voru
það þeir Haraldur Einarsson i
Kerlingardal, Magnús Jónsson
Vik og Kjartan Guömundsson
ljósmyndari. Fóru þeir upp frá
Kambsheiöi og komu aö jökulrót-
um rétt innan við Jökulhöfuö. Þaö
er hattmyndaö fjall innst á heiö-
inni. Þegar þeir komu á gossvæö-
iö»virtist gosdældin aö mestu hul-
in jökli, sem sigið haföi niöur yfir
giginn. Hlauprásin var grynnst
næst gosstöövunum, en vikkaöi
svo og dýpkaöi er austar dró og
virtist hún vera sex til sjö kiló-
metrar á lengd. Slakki sá, sem
gosstöövarnar höföu myndazt i,
lá um eitt hundraö og tuttugu
metrum lægra en suöurbunga
jökulsins, og um hundrað og
fimmtiu metrum lægra en þar
sem bungan er hæst.
Hvenær verður næsta
Kötlugos?
Oft hafa menn búizt viö Kötlu-
gosi siöan þetta bar viö áriö 1918,
en Katla lætur ekki á sér kræla.
Er nú orðiö langt á milli gosa,
miöaö viö þaö sem mönnum er
kunnugt um. Þó getur skeikaö þar
nokkru um, þvi áreiöanlegar
heimildir skortir framan af öld-
um. Nú eru liðin 59 ár frá siöasta
gosi. Þó gæti hlaupiö 1955 hafa or-
sakazt af hitauppstreymi, þannig
aö jökullinn heföi bráönaö en
vatniö siöan brotizt undan hjá
Huldufjöllum og undir skriöjökul-
inn. Um haustiö 1955, sá ég rétt
framan viö Huldufjöll, stórkost-
lega hvelfingu undir skriöjökul-
inn og suöureftir henni, svo langt
sem sást vegna myrkurs. Þá var
þar aöeins smá spræna, en ég
giskaöi lauslega á, aö þarna hefði
getað runniö þrefalt eöa fjórfalt
rennsli Þjórsár.
Mér fyndist aö Katla gamla ætti
skiliö meiri og fjölþættari rann-
sóknir, en hún hefur notiö nú um
sinn. Ekki tók langan tima aö
fylla upp I sigdældirnar eftir
hlaupiö 1955, og hefur nú i fjölda
ára verið slétt og fellt á yfirboröi
þar sem Katla blundar undir. Þaö
er gömul trú meðal Alftveringa,
aö þegar jökullinn hækkar milli
tveggja hnúka og veröi svo til
slétt á milli, þá sé von á Kötlu.
Ragnar Þorsteinsson.
Hann sagði bara drottinn
minn, og bað mig svo um
að senda sér bréf.
DENNI
DÆMALAUSI
gleðileg jól
gg farsœlt komandi ár\
13 LO S
SKIPHOLTI 35 Vc,‘lun „
Vcrkitæii
REYKJAVlK sk rifitoto
Gleðileg jól
farsælt komandi ár
Málarameistarafélag
Reykjavikur
Gleðileg jól
farsælt komandi ár
Þökkum viðskiptin á liðna árinu.
Ólafur Þorsteinsson & Co. h.f.
Vatnagörðum 4
Gleðileg jól
farsælt komandi ár
Þökkum viðskiptin á liðna árinu.
Magnús Guðlaugsson úrsmiður
Strandgötu 19, Hafnarfirði.
Gleðileg jól
farsælt komandi ár
Þökkum viðskíptin á árinu, sem er að liða.
Hafnarfirði
Gleðileg jól
farsælt komandi ár
Þökkum viðskiptin á liðna árinu.
Iijarni 1>. Halldórsson og Co. s.l'.
Umboös- og heildverzlun, Garðastræti 4.
Gleðileg jól
farsælt komandi ár
Þökkum viðskiptin á liðna árinu.
Timburverzlun Árna Jónssonar & C. h.f.
Laugavegi 148
Gleðileg jól
farsælt komandi ár
Þökkum viðskiptin á liðna árinu.
Lysing h.f.
Hverfisgötu 64
Sendum samvinnumönnum um land allt
beztu óskur um
gleðileg jól
gott og farsælt nýár
með þökk fyrir árið sem er að liða.
RAFALL S.F.
Barmahlið 4 — Reykjavik
Gleðileg jól
farsælt komandi ár
Þökkum viðskiptin á liðna árinu.
Hagkaup — Skeifunni 15
Gleðileg jól
farsælt komandi ár
Þökkum viðskiptin á liðna árinu.
Húsgagnaverzlun
Kristjáns Siggeirssonar.