Tíminn - 30.12.1977, Blaðsíða 3
Föstudagur 30. desember 1977
!1 ll!![ !1 í 11 f.
3
FORMLEGA GENGIÐ TIL SAM-
STARFS UM LANDSÝN H. F.
Svo sem skýrt var frd i frétta-
tilkynningu 12. október s.l., hafa
Samvinnuhreyfingin og A.S.Í.
ákveðið að gerast eignaraðilar
að Ferðaskrifstofunni Landsýn
hf., en sem kunnugt er hefur Al-
þýðuorlof átt og rekið ferða-
skrifstofuna frá 1. maf 1974.
A framhaldsaðalfundi Land-
sýnar hf., sem fram fór 1.
nóvember s.l. var formlega
gengið frá þessu samstarfi og
höfðu þá hinir nýju eignaraðilar
skráð sig fyrir hlutafjárauka
þeim sem aðalfundur hlutafé-
lagsins samþykkti að bjóða út,
að fjárhæð 25 millj. króna. Eig-
endur Landsýnar hf. eru nú:
Alþýðusamband Islands og
Alþýðuorlof annars vegar og
Samband isl. samvinnufélaga
og Samvinnutryggingar hins
vegar. Eignarhlutföll eru jöfn
milli aðila.
Framhaldsaðalfundurinn
kaus félaginu nýja stjórn og er
hún þannig skipuð:
Af hálfu A.S.t./Alþýðuorlofs:
Björn Jónsson, Einar Ogmunds-
son og Óskar Hallgrimsson.
Af hálfu S.t.S./Samvinnu-
trygginga: Erlendur Einarsson,
Axel Gislason og Hallgrimur
Sigurðsson.
Stjórnin hefur skipt með sér
verkum, þannig að formaður er
Hallgrimur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Samvinnutrygg-
inga og ritari Oskar Hallgrims-
son, formaður Alþýðuorlofs.
Framkvæmdastjóri Landsýn-
ar hefur verið ráðinn Eysteinn
Helgason.
Ferðaskrifstofan Landsýn
mun eins og áður veita alla al-
menna ferðaþjónustu innan-
lands sem erlendis, en sérstök
áherzla verður lögð á þjónustu
við félagsmenn þeirra fjölda-
samtaka sem að ferðaskrifstof-
unni standa. Af aðild Samvinnu-
hreyfingarinnar leiðir að sjálf-
sögðu að náið samstarf verður
milli Landsýnar og Samvinnu-
ferða i þvi skyni að ná sem
mestri hagkvæmni i rekstri
skrifstofanna beggja.
Matvælarannsóknir
ríkisins í eigið
húsnæði
sípj
VÍSIR
alþýðu-
blaöið
Reykjaprent og Alþýðublaðið:
Áframhaldandi
samstarf í
vændum
FIMMTl
JRitstk
til hús;
— Sfm
— Kvð
vaktar
SST —Matvælarannsóknir rikis-
ins fluttust i gær i eigið húsnæði
að Skipholti 15, og hefur stofnunin
þar til umráða eina hæð með
tækjabúnaði fyrir þá starfsemi,
sem þar mun fara fram. Mat-
vælastofnun rikisins er ný stofnun
og er hlutverk hennar að annast
efnafræðilegar og gerlafræðileg-
ar rannsóknir á heilnæmi mat-
væla. En til að fyrirbyggja allan
misskilning skal á það bent, að
stofnunin á ekki að annast mat-
vælaeftirlit sem slíkt, það er i
höndum heilbrigðisnefnda sveit-
arfélaganna undir yfirumsjón
Heilbrigðiseftirlits rikisins.
Stofnunin er fyrst og fremst þjón-
ustustofnun fyrir þessa aðila og
ætti þvi að auðvelda allt eftirlit
með matvælum. Rannsóknir
stofnunarinnar verða aðallega
sýnisrannsóknir vegna heilbrigð-
iseftirlitsins i landinu. Gert er ráð
fyrir, að heilbrigðisnefndir sveit-
arfélaganna geti að kostnaðar-
lausu sent sýni til stofnunarinnar,
sem siðan greinir sýnin, og ætti
stofnunin sem slik að tryggja
aukið eftirlit og öryggi á þessu
sviði.
I nóvember siðastliðnum lagði
heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðherra fram á Alþingi frum-
varp til laga um Matvælarann-
sóknir rikisins, og var það sam-
þykkt sem lög 20. desember s.l.
Tildrög þessa frumvarps eru
þau, að hinn 1. marz 1976 tók til
starfa stofnun á vegum heilbrigð-
is- og tryggingamálaráðuneytis-
ins, sem nefnd var Matvælarann-
sóknir rikisins. Stofnun þessari
var komið á fót af brýnni nauð-
syn, þar sem þeir aðilar, sem
annazt höfðu gerlafræðilegar
rannsóknir á matvælum, mjólk
og neyzluvatni, sáu sér ekki fært
að annast þær þjónusturannsókn-
ir lengur, enda var um sérrann-
sóknir að ræða, sem þeir urðu að
annast sem viðbótarverkefni. Að-
ur en til stofnunar Matvælarann-
sókna rikisins kom kannaði ráðu-
neytið hvort nokkur þeirra rann-
sóknarstofnana, sem fyrir voru,
gætu tekið að sér gerlarannsóknir
og reyndust allar ófáanlegar til
sliks.
Það var Rannsóknastofnun
fiskiðnarins, sem sá um fram-
kvæmd slikra rannsókna og
stjórnaði dr. Sigurður Pétursson
gerlafræðingur þeim þar til 1.
marz 1976.
Efnafræði- og gerlafræðilegar
rannsóknir á matvælum með til-
liti til heilnæmi matvælanna er
mjög yfirgripsmikið sérsvið. Það
er þetta sérsvið, sem ætlað er
Matvælarannsóknum rikisins.
Hér er um að ræða visindalega
rannsóknastofnun i eigu rikisins,
stofnun, serh vinnur fyrir heil-
brigðisnefndir og héraðslækna,
hliðstæð t.d. Rannsóknastofu há-
skólans i sýklafræði, sem unnið
hefur i áratugi fyrir héraðslækna
og sjúkrahús. Heilbrigðiseftirlit
rikisins aftur á móti hefur með aö
gera hin margvislegustu mannleg
viðskipti, s.s. umhverfismál, holl-
ustuhætti og sjúkdóma. Það hefur
miklu fleiri málum að sinna en
eftirliti með matvælum. Verksvið
þess er viðtækara en rannsókna-
stofnananna. Milli Heilbrigðiseft-
irlits rikisins og Matvælarann-
sókna rikisins þarf þvi að vera
greinileg verkaskipting, en mjög
góð samvinna. Forstöðumaður
Matvælarannsókna rikisins er
Guölaugur Hannesson.
SST— ,,Það er engin hætta á að
pólitiskir andstæðingar okkar
komi til með að gleðjast yfir
dauða Alþýðublaðsins, og það er
nokkurn veginn ljóst, að blaðið
mun koma áfram út eftir ára-
mót,” sagði Arni Gunnarsson i
samtali við Timann i gær, að-
spurður um samninga Reykja-
prents og Alþýðublaðsins.
„Samningar voru að vísu ekki
undirritaðir i gær — og verið er að
ganga frá ýmsum atriðum um
reksturskostnað og fleira þess
háttar, en i dag gæti svo farið að
gengið yrði frá þessum málum,”
sagði Arni ennfremur.
,,Og þegar samningar hafa
verið undirritaðir verða þeir birt-
ir i smáatriðum i Alþýðu-
blaðinu,” sagði Arni. Aðspurður
um hvort i hyggju væri að auka
blaðsfðuf jölda blaðsins sagði Arni
að um það gæti hann ekkert sagt
að svo stöddu.
Guö laugur Hannesson forstöðumaður Matvælarannsókna rikisins við
eitt þeirra tækja sem stofnunin kemur til meö að nota til starfsemi
sinnar að Skipholti 15.
Glitský í
Skagafirði
Skákmótið i
Groningen:
Jón tapaði
Sst- 1 gær tefldi Jón L. Árna-
son viö Búlgarann Georgiheu i
áttundu umferð skákmótsins i
Groningen. Skák þeirra fór i
bið eftir 40 leiki, en siðan tap-
aði Jón biðskákinni. Tveir
efstu menn mótsins Dolmatov,
Rússlandi og Upton Englandi
tefldu saman og lauk skák
þeirra með jafntefli og hefur
Kolmatov þvi enn forystu með
7 vinninga að loknum 8
umferðum.
Skák dagsins i gær var
tvimælalaust skák Englend-
inganna Talp og Goodman
sem var mikil baráttuskák
með fórnum og uppskiptum.
Þeir luku þó ekki skákinni og
fór hún i bið eftir 40 leiki.
Röð efstu manna er nú
þannig, að Dolmatov er efstur
með 7 vinninga, i öðru sæti er
Upton með 5 1/2 vinning. 1 3-4
sæti eru Talþ og Goodman
með 5 vinninga, og i 5-6 sæti
eru Jón og Georgiheu með 4
1/2 vinning.
Kirkjuritið,
f jölbreytt að efni
Kirkjuritið sem gefið er út af
Prestafélagi Islands 3. hefti 1977
er nýlega komið út. Að vanda
flytur það margvislegt kristilegt
og kirkjulegt efni.
I þessu hefti birtist m.a. stór-
fróðlegt og mjög athyglisvert við'-
tal við sr. Sigurð Pálsson vigslu-
biskup um ævi hans og störf
semprestur og kirkjuleiðtoga á
Suðurlandi. Einnig er i heftinu
annars staðar minnzt fjörutiu ára
afmælis Prestafélags Suöurlands.
I heftinu er einnig erindi sem
Rósa B. Blöndals flutti i kvöld-
fagnaði prestastefnunnar að Eið-
um sl. sumar en þar fjallar hún
um sr. Sigurð heitinn Norland,
skáld og prest i Hindisvik á
Vatnsnesi.
Meðal annars efnis er ritgerð
eftir sr. Kristján Búason dósent
við Háskóla tslands og fjallar hún
um kröfur nútimans til prest-
anna. Sr. Magnús Guðmundsson
frá Grundarfirði ritar um Að-
-ventuna og sr. Sigmar Torfason
ritar minningargrein um Sr.
Jakob Einarsson. Enn fremur er i
heftinu birt erindi eftir sr. Eirik
J. Eiriksson en það fjallar um
sálminn „Bjargið alda borgin
min”, tildrög hans og rætur.
Á.S. Mælifelli 29.12. — Á mið-
munda i dag hvessti hér að norö-
an og kominn versti bylur á nóni.
Hefur veður annars verið fremur
gott um jólin og umferð greið en
þó ærið hált. Hin sjaldséðu fögru
glitský sem voru fágætlega til-
komumikil i morgun hafa boðað
náttúrunnar jól.
Kirkjusókn hefur viðast veriö
mikil hér um sveitir á hátiðinni.
Getið skal um gjöf sem Mælifells-
kirkju barst á jóladag frá Helgu
Steindorsdóttur á Fitjum. Er það
patina af silfri^dýrmætur gripur,
gefin til minningar um mann
hennar Sigurð Einarsson sem lézt
á hausti 1968.
Jólatréssamkomur barna eru
haldnar inær öllum félagsheimil-
um þessa dagana og skemmtun
fyrir unglinga verður i Varmahlíð
að kveldi 30. des.
Þolanleg
færð
st — Færð um landið í gær var
þolanleg. Fært var frá Reykjavik
með suðurströndinni allt til Egils-
staða og einnig úr Reykjavik
vestur i Reykhólasveit. Bratta-
brekka var ófær. — Holtavörðu-
heiði var rudd í gær og varð fær
seinni hluta dags. Þungfært var
um öxnadalsheiði, og komust aö-
eins stórir bilar um hana, en ráð-
gert er að ryðja hana i dag. Frá
Akureyri austur með norður-
stöndinni var færð þokkaleg, en
hvasst og seinni part dags i gær
var orðið svo hvasst á Húsavfk að
vart var fært á milli húsa.