Fréttablaðið - 29.05.2006, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 29.05.2006, Blaðsíða 66
 29. maí 2006 MÁNUDAGUR26 menning@frettabladid.is ��������������������������������� ����������������������������������������������������� �� ����������������������������������������� ���������� ������������������������������ ������������ �������������� �� ����������� �������������� �������� �������� ���������������������������������� ������������������ ������ ������������� ����������������������������������� �������� ��������������� �������� ������������������ ������������� �������� ��������� ������������� �������� ��������� ������������������������ ��������� ������������� �������� ��������� Kl. 13.00 Gallerí Boreas í New York sýnir verk eftir myndlistar- manninn Adam Bates í Galleríi Úlf við Baldursgötu. Sýningin „Sögur“ stendur yfir í maí. ! > Ekki missa af... Galdraskyttunni á Listahátíð. Óperutónlist og uppfærsla í algerum sérflokki. Sumaróperan flutt í Þjóðleikhúsinu af einvalaliði listamanna. Sýningu Finnboga Péturs- sonar í galleríi i8 við Klapp- arstíg. Það er mikilvægt að leggja við hlustir. leikritinu Fullkomið brúð- kaup í Borgarleikhúsinu. Frá Leikfélagi Akureyrar ferðast föngulegur hópur og færir frábært skens á fjalirnar. Sjö eru tilnefndir fyrir sex verkefni til verðlauna Sjónlistar 2006, sam- starfsverkefnis Akureyrarbæjar og Forms Ísland – samtaka hönnuða og Sambands íslenskra myndlistar- manna. Verkefnunum var komið á fót í því markmiði að veita verðlaun á sviði sjónlista og beina sjónum að framlagi myndlistarmanna og hönnuða starfandi á Íslandi. Í flokki myndlistar eru tilnefndar Hildur Bjarnadóttir fyrir yfirlitssýn- inguna Unraveled í Boise í Idaho- ríki í Bandaríkjunum, Katrín Sigurð- ardóttir fyrir verkið High Plane III á sýningunni The Here and Now í The Renaissance Society í Chicago og Margrét H. Blöndal fyrir inn- setningu á samsýningunni Buenos Dias Santiage – an exhibition as expedition í samtímalistasafninu í Santiago í Chile í fyrra. Í flokki hönnunar eru tilnefnd Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir hönn- uður fyrir húsgögn í framleiðslulín- unni Inner Beauty og húsgögn í lín- unni FLAT pack „antiques“, Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður fyrir vor- og haustlínu sem hún hannaði fyrir vörumerkið STEINUNN og Mar- grét Harðardóttir og Steve Christer, arkítektar hjá Studio Granda, fyrir nýjan nemendagarð, rannsóknar- og frumkvöðlasetur Viðskiptaháskólans að Bifröst. Sýning á verkum þeirra sem hlutu tilnefningu í ár verður opnuð í Listasafninu á Akureyri í ágúst en úrslitin verða kynnt í september og munu tveir hljóta Sjónlistarorðuna 2006, auk peningaverðlauna að upphæð tvær milljónir hvor. Sjö tilnefndir til Sjónlistarorðunnar STEINUNN SIGURÐARDÓTTIR FATAHÖNNUÐUR Tilnefnd fyrir vor- og haustlínu sem hún hann- aði fyrir eigið vörumerki. Löngunin til þess að fara eigin leiðir með ímyndunar- aflið að vopni hefur gert djasstónlist Anders Wid- mark að almenningseign langt út fyrir landsteina Svíþjóðar. Djasspíanistinn leikur ásamt tríói sínu á Listahátíð í Reykjavík. Fyrir tíu árum tók Anders Wid- mark sér fyrir hendur að leika meira en þrjú hundruð sálma upp úr sænsku sálmabókinni. Sextán þeirra útsetti hann með Jan Adefelt bassaleikara og Egil Johansen trommuleikara og gaf út á plötu árið 1997. Útsetningarnar vöktu mikla athygli og platan hlaut afar góða dóma. Árið eftir hélt Widmark-tríóið um eitt hundrað tónleika á Norðurlöndum, Þýska- landi, Bretlandi, Bandaríkjunum og víðar. „Widmark hefur gert það fyrir sálmana sem Jan Johansson gerði fyrir sænsku þjóðlögin,“ sagði sænskur gagnrýnandi. Þegar Widmark tók við styrk úr tónlistarsjóði Jans Johansson á síðasta ári sagði úthlutunarnefnd- in í umsögn sinni að Widmark hefði á sinn nærgætna hátt notað djassinn til að hlúa að sálmalög- um og vísnasöng. Widmark kveðst ætla að leika tónlist úr óperunni Carmen fyrir hlé á tónleikunum í Reykjavík, en djassútsetning hans á þessu verki George Bizet er margrómuð. Eftir hlé ætlar hann að koma víðar við. „Ég spilaði þegar sjö ára gam- all minn fyrsta blús og rætur mínar liggja í sálar- og blústón- list. Ég fylgi ekki neinu sérstöku þema á nýju plötunni sem kom út fyrir nokkrum vikum líkt og ég hef gert svo oft áður. Þar ræður meira löngunin til að leika lög eins og No Woman, No Cry, Waiting for a Train og Light My Fire.“ Widmark er ótvírætt braut- ryðjandi í djasstónlist í Svíþjóð. „Ég vildi standa á eigin fótum, helst án styrkja og kanna nýjar lendur. Það mætti kannski orða það svo að ég hafi brotið mér leið á tímum þegar yngri sænsku djasstónlistarmennirnir eins og Esbjörn Svensson og fleiri voru nánast óþekktir. Ég þori að minnsta kosti að segja að ég hafi átt þátt í að hefja eitthvað nýtt til vegs, gera eitthvað nýtt. Menn fóru að skrifa meira um tengsl djasstónlistarnnar við blús og popp. Það var mjög tímafrekt að fara eigin leiðir og vinna þessari stefnu sess. Þessi blanda af poppi og djass hefur slegið í gegn. En þegar ég var að byrja með þetta var engin Norah Jones eða önnur sambærileg fyrirmynd til staðar. Við prófuðum okkur áfram á þess- ari braut.“ Widmark þykir athyglisverður útsetjari en ímyndunarafl skiptir hann miklu máli. „Stíllinn er ekki tilviljun. Þetta er mikil vinna en hefur einnig með innsæi að gera. Hvernig á að miðla stemningu, koma henni frá sér? Það er eins með tónlistar- manninn og sögumanninn. Sögu- maðurinn nær með einhverjum hætti athygli og samkennd áheyr- enda sinna þegar best lætur. Þátt- ur ímyndunaraflsins í tónlistinni hefur fylgt mér alla tíð. En ímynd- unaraflið hefur líka sína sérstöku málfræði rétt eins og tunga og tjáning sögumannsins,“ segir Anders Widmark. Tónleikar Anders Widmark verða á Nasa við Austurvöll á fimmtudags- og föstudagskvöld. johannh@frettabladid.is Djass og allt aðrir sálmar DJASSPÍANISTINN ANDERS WIDMARK LEIKUR Á LISTAHÁTÍÐ UM HELGINA Popptónlist, sálmar og klassík í athyglisverðum útsetningum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.