Fréttablaðið - 30.05.2006, Qupperneq 12
30. maí 2006 ÞRIÐJUDAGUR
��������������������
�������������������
�����������������������������������������������������������������������������������
��������������������������������������������������������������������������������
������������������ ��������� ���� ����������� �������������������� � ���� ���������
������������������������������
�
������������������ �������������� ��������������������������������������������
���������������������������������������������������� ������������
���������������������
NISSAN MICRA
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
18
5
3
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mán – fös kl. 9-18 og lau kl. 12-16
*Miðað við 20% útborgun og bílasaming Lýsingar í 84 mánuði.
ÖLLU MICRA
VERÐUR
ÞAÐ EKKI!
Ný Micra og þú borgar
aðeins 20.814 kr. á mánuði!
6 diska geislaspilari, lyklalaus, sjálfvirkar rúðuþurrkur,
beinskiptur og mjög sparneytin!
Nissan Micra 5 dyra 1.670.000 kr.
150.000kr.
Öllum Nissan Micra sem keyptir
eru fylgja álfelgur, aukadekk
og bensínkort frá EGO
með 50.000 kr. inneign!
INDÓNESÍA, AP Hjálpargögn tóku að
berast í gær til svæða í Indónesíu
sem jarðskjálftinn á laugardag
lagði í rúst, en yfirvöld sögðu
birgðir ekki berast nógu hratt til
fólksins, enda samgöngur á eyjunni
í lamasessi eftir skjálftann.
Samkvæmt upplýsingum félags-
málaráðuneytis Indónesíu í gær
fórust 5.138 í skjálftanum á eynni
Jövu. Skjálftinn mældist 6,3 að
styrkleika á Richterskala. Talsmað-
ur ráðuneytisins sagði lík sem graf-
in voru í fjöldagröfum strax eftir
jarðskjálftann vera inni í þessari
tölu, en óttast er að hún eigi enn
eftir að hækka.
Fyrsta flugvél Sameinuðu þjóð-
anna lenti í borginni Solo á Jövu í
gær, nærri Bantul-héraðinu sem
varð einna verst úti. Vélin var full
af vatni, tjöldum og eldunaráhöld-
um. Áður höfðu Sameinuðu þjóð-
irnar sent þrjá vörubíla fulla af
neyðarmatvælum á sunnudag, og
tvær herflugvélar komu frá
Singapúr með lækna og skyndi-
hjálparbirgðir. En yfirvöld sögðu
ekki nóg að gert.
„Við höfum fengið mat og lyf frá
ríkinu, en það er ekki nóg,“ sagði
Suparno, opinber starfsmaður í
Bantul, sem heitir aðeins einu nafni
líkt og margir Indónesíumenn.
„Hvernig á ég að dreifa 40 kílóum
af hrísgrjónum til 1,200 manns?“
Forseti Indónesíu, Susilo
Bambang Yudhoyono, viðurkenndi
„skort á samhæfingu“ í dreifingu
hjálpargagna þegar hann heimsótti
verst leiknu svæðin í gær, og bað
opinbera starfsmenn um að „vera
liprari.“
Starfsmenn Rauða krossins
voru í viðbragðsstöðu á svæðinu
vegna eldgosahættunar í Merapi-
eldfjallinu, og var það vel því þeir
gátu brugðist strax við og hafist
handa við að dreifa mat og vatni
til fólks, að sögn Sólveigar Ólafs-
dóttur hjá Íslandsdeild Rauða
krossins. Tveir sendifulltrúar
Rauða kross Íslands eru nú við
störf í Aceh-héraði á Indónesíu,
sem er fjarri jarðskjálftasvæðun-
um, að sögn Sólveigar.
Talið er að um 200.000 manns
séu heimilislaus eftir jarðskjálft-
ann, og þau sjúkrahús sem ekki
hrundu eru yfirfull. Tvisvar hefur
hellirignt síðan jarðskjálftinn reið
yfir, sem eykur á óþægindi hinna
heimilislausu.
Fjölmargar þjóðir brugðust við
kalli Indónesíu í gær, og lofuðu að
senda fé, matar- og vatnsbirgðir og
sérhæft starfsfólk á svæðið.
Eldvirkni í Merapi hefur þre-
faldast síðan á laugardag og
streymdi glóandi hraun niður fjalls-
hlíðarnar í gær, að sögn eldfjalla-
fræðingsins Subandriyo, en 76 eld-
fjöll eru í Indónesíu.
Þetta var fjórði stóri jarðskjálft-
inn sem ríður yfir Indónesíu á
síðustu 17 mánuðunum.
smk@frettabladid.is
Minnst 5.100
fórust á Jövu
Hlutar Indónesíu eru í rúst eftir jarðskjálfta á Jövu á
laugardag. Virkni í eldfjallinu Merapi hefur þrefald-
ast og er óttast um afdrif íbúa á svæðinu.
ALLT Í RÚST Karlmaður leitar í rústum heimilis síns að hlutum sem nota megi í bráða-
birgðaskýli. Um 200.000 manns urðu heimilislaus á laugardag, þegar jarðskjálfti sem
mældist 6,3 á Richter reið yfir eyna Jövu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
��������
KOSNINGAR Alls 117, eða þriðjungur
kosningabærra, höfnuðu öllum
þremur tillögum að nöfnum á
nýsameinuðu sveitarfélagi Hólma-
víkurhrepps og Broddaneshrepps
á Ströndum.
Ásdís Leifsdóttir, sveitarstjóri á
Hólmavík, segir það hlutverk full-
trúa nýrrar sveitarstjórnar að taka
ákvörðun um hvað þeir geri. „Yfir-
strikanirnar náðu ekki fimmtíu
prósentum. Ákvörðunin er blátt
áfram að staðfesta nafngiftina eða
ekki,“ segir Ásdís og bætir við að
gamla nafngiftin, Hólmavíkur-
hreppur, verði áfram nafn sveitar-
félagsins staðfesti nýja stjórnin
ekki nafnið Strandabyggð.
Valdemar Guðmundsson, full-
trúi meirihlutans, segir enga
ákvörðun tekna fyrr en sveitar-
stjórnin kemur saman, fimmtán
dögum eftir kosningar. - gag
Hólmvíkingar ósáttir við nafnið Strandabyggð:
117 höfnuðu tillögum
GAMLI BÆRINN Á HÓLMAVÍK Fjöldi Hólm-
víkinga vildi ekki nöfnin Strandabyggð,
Sveitarfélagið Strandir eða Strandahreppur.
FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN