Fréttablaðið - 30.05.2006, Blaðsíða 22
[ ]
Gönguvertíðin gengur senn
í garð. Iðnir fætur halda því
af stað upp á fjöll og niður á
strandir og í löngum göngum
er mikilvægt að vera í góðum
skóm.
Gísli Páll Hannesson, verslunar-
stjóri hjá Útilíf í Glæsibæ, segir
mikilvægast að fólk hugi að réttri
stærð á gönguskóm þegar fjár-
festa á í nýju pari. „Skórnir mega
auðvitað hvorki vera of stórir né
of litlir en fólk á það til að hengja
sig of mikið í stærðirnar,“ segir
Gísli Páll. „Stærðirnar eiga ein-
göngu að vera til viðmiðunar.
Stærðirnar geta verið mismun-
andi eftir sniði og framleiðend-
um. Skórnir fást flestir í heilum
og hálfum númerum og fólk verð-
ur að prófa sig áfram.“
Gísli Páll segir það vandaverk
að velja sér góða gönguskó og því
býður Útilíf meðal annars upp á
fjórtán daga skilafrest en þann
tíma geta viðskiptavinir nýtt sér
til að prófa skóna heima í stofu í
ró og næði.
Gísli Páll segir fólk einnig falla
í þá gryfju að kaupa sér hlaupa-
skó til þess að nota í létta útivist.
„Hlaupaskórnir eru sérstaklega
hannaðir fyrir hlaup, þeir eru
mjúkir en þessir skór þreyta
mann mikið á venjulegri göngu.
Fyrir léttar göngur um Skerja-
fjörðinn eða í Heiðmörk þar sem
er halli og malarstígar þá er betra
að vera í útivistarskóm. Þó fólki
finnist harðara að ganga í þeim
þá eru þeir gerðir fyrir slíkar
göngur. Skórnir þurfa að hafa
ákveðinn stífleika og ákveðna
mótstöðu í sólanum. Í grófara
landslagi þarf svo gönguskó sem
hafa ökklastuðning. Hjá Útilíf
erum við til dæmis með skó frá
Scarpa og Meindl sem henta vel
fyrir hvers konar útivist.“
Fólki er ráðlagt að nýta sér
þekkingu starfsfólksins í útivist-
arbúðunum og fá aðstoð við val á
réttum skóm. „Fólk verður að
gefa sér tíma í að velja réttu
skónna,“ segir Gísli Páll. „Þegar
skórnir eru keyptir í flýti eru
meiri líkur á að maður
geri mistök. Fyrir öllu er
að velja þá skó sem
manni líður best í.“
johannas@frettabladis.is
Tennis er að ryðja sér til rúms á Íslandi. Góð hreyfing
þar sem reynir á þol, kraft og tækni.
Stærðin skiptir máli
Scarpa Sabbia-
gönguskór. Útilíf
16.990.-
Meindl Island-fjall-
gönguskór. Útilíf
24.990.-
Trezeta-fjallgönguskór,
Gore tex. Everest 24.995.-
Léttir Raichle Goretex-gönguskór. Henta
vel í styttri göngur. Everest 15.995.-
Léttir götuskór frá
Salomon. Intersport 15.390.-
Scarpa-fjallgönguskór.
Intersport 24.990.-
North Face Hedgehog-götuskór.
Þrátt fyrir lágan hæl veita
þeir nokkurn stuðning fyrir
ökklann. Skór af þessu tagi
njóta æ meiri vinsælda til
gönguferða innan og
utan bæjar-
marka. Útilíf
10.990.-
Samkvæmt rannsóknum
bandarískra lækna getur tón-
list haft jákvæð áhrif í barátt-
unni við króníska verki.
Frá þessu er greint á vef BBC.
Sextíu sjúklingum, sem að með-
altali höfðu þolað þráláta verki í
sex og hálft ár, var skipt í hópa og
hlustuðu sumir þeirra á tónlist í
klukkutíma á dag í eina viku. Nið-
urstöðurnar urðu á þá leið að þeir
sem hlustuðu á tónlist sögðu
verkinn minnka um 21% að með-
altali og depurð að sama skapi
um 25%. Enn fremur fannst tón-
elsku sjúklingum þeir ekki jafn
heftir af sársaukanum og fyrr.
Fyrri rannsóknir hafa einnig
sýnt að róleg tónlist í 45 mínútur
geti bætt svefn um þriðjung.
Ekki eru allir sammála þessum
niðurstöðum og benda á að engar
rannsóknir sýni langtímaáhrif
þess að hlusta á tónlist. Batinn sé
að öllum líkindum skammvinnur
og ekki læknisfræðilegur, heldur
hjálpi tónlistin fólki að dreifa
huganum svo það hættir að ein-
blína á sársaukann.- tg
Tónlist minnkar sársauka
Ekki kemur fram í rannsókninni hvernig tónlist er best til þess fallin að róa taugarnar.
FRÁTABLAÐIÐ/DANÍEL
STÆRSTA
HEILSUVÖRUVERSLUN
Á LANDSBYGGÐINNI
Póstsendum um land allt
Glerártorg Akureyri S: 462-1889
heilsuhorn@simnet.is
www.simnet.is/heilsuhorn
Laugavegi 2 - 101 Reykjavík - Sími 552 1103 - www.jurtaapotek.is
Embla
fyrir konur
á besta aldri