Fréttablaðið - 30.05.2006, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 30.05.2006, Blaðsíða 70
 30. maí 2006 ÞRIÐJUDAGUR38 FRÉTTIR AF FÓLKI Bubbi Morthens fagnar fimmtugs-afmæli sínu með stórtónleikum í Laugardalshöll eftir slétta viku. Aðdáendur kappans láta ekki bjóða sér svona tækifæri tvisv- ar og seldist upp á tónleikana á mettíma. Óhætt er að fullyrða að færri komast að en vilja enda tekur Höllin ekki nema um fimm þúsund gesti og Bubbi selur jafnan helmingi fleiri eintök af plötum sínum. Það er því gleðiefni fyrir þá sem ekki fengu miða að Stöð 2 mun sýna beint frá tónleikunum. Sjónvarps- áhorfendur geta því komið sér þægilega fyrir í sófanum að viku liðinni og horft á Bubba á tónleikum í næstum þrjár klukkustundir. Fyrsta tölublað Reykjavíkmag kemur út á fimmtudaginn og samhliða því verður vefurinn Reykjavík.com opnaður. Hér er um að ræða nýjar upplýsinga- veitur um lífið í Reykjavík, en blaðið og vefurinn eru á ensku og eru sérstaklega ætluð erlendum ferða- mönnum. Reykjavíkmag verður dreift um alla borg og í blaðinu, sem og á vefnum, verður að finna ferska umfjöllun um menningarviðburði, veitingastaði, tísku og fleira. Ritstjóri blaðsins er Anna Margrét Björnsson, fyrrum ritstjóri Iceland Review og ritstjórnarfulltrúi er Hanna Björk Valsdóttir, fyrrum ritstjóri Málsins. Þá hefur frést að ljósmyndarinn Silja Magg sé viðriðin útgáfuna en hún hefur sést á nokkrum fundum. Íslendingar gerðu það gott á kvik-myndahátíðinni í Cannes sem lauk um helgina. Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær fékk kvikmyndatökumaður- inn Jakob Ingimundarson Gullpálmann fyrir norsku stuttmyndina Sniffer. Önnur norsk mynd var verðlaunuð í Critic‘s Week flokknum, Den bryesomme mann, en meðframleiðendur hennar eru þeir Ingvar Þórðar- son og Júlíus Kemp hjá kvikmyndafélaginu Kisa. Myndin var að hluta til tekin upp hér á landi á síðasta ári. Ásgrímur Sverrisson greinir frá því á vef Lands og sona að sjálfur Brad Pitt hafi keypt réttinn á að endurgera myndina svo það er hreint ekki útséð með velgengni Íslendinga í kvikmynda- heiminum. -hdm 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 F í t o n / S Í A „Þetta er náttúrlega mjög fyndinn þáttur enda erum við ekkert eðli- lega skemmtilegir,“ segir Egill Einarsson, betur þekktur sem Gillzenegger í Köllunum.is. Egill og félagar hans Hjöbbi Ká og Partí-Hjálmar eru farnir að stjórna nýjum útvarpsþætti á X- inu 977 á laugardögum á milli 14- 17. „Við munum auðvitað bjarga laugardeginum fyrir vinnandi menn, drengi sem eru að vinna á lager og eitthvað slíkt. Loksins er kominn skemmtilegur útvarps- þáttur á dagskrá hér á landi,“ segir Egill kokhraustur. Fyrsti þáttur Kallanna var síðasta laug- ardag og tókst þeim strax að vekja ómælda eftirtekt. „Við auglýstum þetta ekkert en samt stoppaði sím- inn ekki. Það sem vakti mesta eft- irtekt var keppnin um þyngsta punginn. Það verður fastur liður þar sem menn vigta á sér punginn í beinni útsendingu og sá sem er með þyngsta punginn sigrar,“ segir Egill sem viðurkennir að þetta hafi verið með því ógeðfelld- ara sem hann hefur séð. Kallarnir voru eitt sinn með útvarpsþátt á KissFM en eru nú komnir á X-ið. Egill segist kunna ágætlega við það að vera kominn á rokkstöð. „Þetta er nú bara nýbyrj- að en við fílum alveg góða rokk- slagara og líst afskaplega vel á þetta.“ Kallarnir aftur í útvarpið EGILL EINARSSON Gillzenegger og félagar stjórna nýjum útvarpsþætti á X-inu á laugardögum. LÁRÉTT: 2 íþrótt 6 ryk 8 þrep í stiga 9 kóf 11 guð 12 langt op 14 örðu 16 tímaeining 17 flana 18 tilvist 20 í röð 21 gera við. LÓÐRÉTT: 1 tif 3 klukka 4 þora 5 hljóma 7 mýrakalda 10 starfsgrein 13 líða vel 15 þraut 16 fiskur 19 skóli. LAUSN: LÁRÉTT: 2 júdó, 6 im, 8 rim, 9 kaf, 11 ra, 12 klauf, 14 agnar, 16 ár, 17 asa, 18 líf, 20 tu, 21 laga. LÓÐRÉTT: 1 tikk, 3 úr, 4 dirfast, 5 óma, 7 malaría, 10 fag, 13 una, 15 raun, 16 áll, 19 fg. Tónlist: Ég hlusta mikið á tónlist en ég er rosalega léleg að muna nöfn. Í vinnunni hlusta ég mikið á teknó að hætti Jón Atla samstarfsmanns míns og ég fíla það mjög vel en þegar ég kem heim til mín eftir vinnu er það gömul dægurtónlist sem verður fyrir valinu. Lög Gylfa Ægissonar eru alltaf góð. Ég er einnig einlægur aðdáandi Erykuh Badu og finnst mér hennar tónlist alltaf standa fyrir sínu. Bókin: „The Camino“ eftir leikkonuna Shirley McLaine er í miklu uppáhaldi hjá mér. Hún fjallar um göngu leikkonunnar milli Spánar og Frakklands en það er þekkt gönguleið fyrir fólk sem er að leita að sjálfu sér. Það er víst einhver ákveðin orka sem fylgir þessari leið. Ég væri meira en lítið til í að ganga þessa leið sjálf. Borgin: Ég er nú ekki mikið borgarbarn og finnst best að vera úti í náttúrunni. Þess vegna verð ég að segja að Reykjavík sé mín uppáhaldsborg vegna þess að hún er nógu lítil og nógu stór fyrir mig. Í sérstöku uppáhaldi er auðvitað hornið á Klapparstíg og Hverfisgötu þar sem stofan mín er staðsett. Bíómyndin: Það sem kemur fyrst upp í huga minn eru myndirnar Gammo og Kung Fu Hustle. Mér finnst Gammo góð vegna þess að hún sat lengi í mér bæði á óþægilegan og góðan hátt. Svo kom Kung Fu Hustle mér á óvart með brjálæðislega fyndnum húmor og skemmti- legum stíl en hún er sett í eins konar teiknimyndastíl. Ég er ekki mikið fyrir svona amerískar þvælumyndir þar sem endirinn er fyrirsjáanlegur og maður fær ekkert út úr að horfa á. Búðin: Ég bjó í London fyrir nokkrum árum og þar fann ég mína uppáhaldsbúð. Þetta er lítil hönnunarbúð sem staðsett er á einni af skemmtilegustu götum Lundúna- borgar, Brick Lane. Þetta er búð sem var opnuð af ungum hönnuðum og vinna þeir mikið með að breyta gömlum jakkafötum. Þeir gera bara eitt eintak af hverri flík þannig að það er ekki möguleiki á að hitta einhvern í alveg eins flík og maður á. Ég er mikið fyrir það. Verkefnið: Sumarfrí er nú bara ofarlega í huga mér þessa dagana enda farin að þrá að komast í frí eftir strembinn vetur. Ég er að fara ásamt kærasta mínum og hóp af góðu fólki á tónlistarhátíð rétt fyrir utan Leeds í júlí. Hún heitir „Moore, music festival“ og er þetta annað árið sem að hún er haldin. Þar er spiluð teknó- og elektró-tónlist og hlakka ég til að fara og dansa undir berum himni. Einnig ætlum við samstarfsfélagarnir á Geli að gera saman myndband sem verður ekki þetta týpíska hárgreiðslu- myndband heldur skemmtilegt myndband sem verður vonandi sýnt í glugganum á Gel í vetur. AÐ MÍNU SKAPI: ANNA SIGRÍÐUR PÁLSDÓTTIR EIGANDI HÁRSTOFUNNAR GEL Erykah Badu, Brick Lane og tónlistarhátíð í Leeds. Hljómsveitin Baggalútur lýkur upptökum á sinni annarri breið- skífu á Flúðum í næsta mánuði. Fyrsta plata Baggalúts, Pabbi þarf að vinna, hlaut mjög góðar viðtök- ur á síðasta ári, þar sem kántrílög voru í fyrirrúmi. Þeim til aðstoðar í titillagi plötunnar var enginn annar er Rúnar Júlíusson og náði lagið töluverðum vinsældum. Að sögn Guðmundar Pálssonar, Baggalúts, hafa upptökurnar fyrir nýju plötuna gengið ljómandi vel. „Þetta verður tímamótaplata og við verðum með alveg glænýtt „sánd“. Þetta hefur aldrei verið gert áður; svona landsbyggðar Hawaii-glimmer-köntrí,“ segir Guðmundur í léttum dúr. „Við erum með glæsilegt lið hljóðfæra- leikara með okkur, þar á meðal nokkra frá Nashville sem eru ein- hverjir þeir færustu í heimi,“ segir hann. „Við komumst í sam- band við hljóðver í Nashville í gegnum síðustu plötu. Þar náðum við sambandi við banjóleikara sem var gjörsamlega trylltur því hann spilaði svo vel og hratt. Okkur vantaði þessi ekta gömlu amerísku hljóðfæri fyrir þessa plötu sem voru mikið notuð upp úr aldamótunum 1900 þegar Hawaii- köntrí tónlistin var hvað vinsæl- ust,“ segir Guðmundur. „Það eru ekki margir á Íslandi sem ráða við svona hljóðfæri. Reyndar er Guð- mundur Pétursson að spila líka og ég held að hann sé búinn að slá öll met í gítarleik á þessari plötu. Hann er ótrúlegur.“ Guðmundur bætir við að þeir félagar í Baggalúti hafi einnig haft samband við panflautusnill- ing frá Rúmeníu, Gheorghe Zamfir, og óskað eftir kröftum hans á plötunni. „Hann er búinn að gefa út plötu með öllum helstu slögurum sögunnar. Við höfum náð sambandi við hann og hann er að bræða það með sér hvort hann ætli að leggja sitt af mörkum.“ Ef allt gengur að óskum mun nýja platan koma út í sumar en hún hefur enn ekki fengið nafn. Vegna anna við gerð hennar mun Baggalútur lítið spila í sumar. Ein- hverjir tónleikar eru þó fyrirhug- aðir, þar á meðal á þjóðhátíðar- daginn 17. júní. Heimasíða Baggalúts, hin óborganlega baggalutur.is, fer síðan í sumarfrí samkvæmt venju í júní og opnar aftur í ágúst. freyr@frettabladid.is ÖNNUR PLATA BAGGALÚTS: UPPTÖKUM LÝKUR Á FLÚÐUM Glænýtt Hawaii-sánd með landsbyggðarívafi BAGGALÚTUR Baggalútsmenn verða í Hawaii-stuði á nýju plötunni sinni sem er væntanleg í sumar. MYND/GUÐMUNDUR FREYR VIGFÚSSON HRÓSIÐ ...fær Völundur Snær Völundars- son fyrir að ætla að deila visku sinni um grillmat með lands- mönnum í sumar. Nýtt upphaf – ný ævintýri Við opnum 2. júní VEISTU SVARIÐ svör við spurningum bls. 8 1 Útrýmingarbúðir nasista í Auschwitch 2 Ómar Stefánsson 3 Fernando Alonso 1 Fjallabyggð 2 Svanfríður Jónasdóttir 3 Kristján Jónasson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.