Fréttablaðið - 30.05.2006, Blaðsíða 23
ÞRIÐJUDAGUR 30. maí 2006 3
Fólk stendur oft ráðþrota þegar
það verður fyrir því að vera lagt
í einelti. Fer það þá líka eftir því
á hvaða aldri eineltið á sér stað
og hvernig viðkomandi er í stakk
búinn til að takast á við þá miklu
höfnun sem fylgir eineltinu.
Hægt er að segja að einelti sé
eins og hægfara sálarmorð. Það
er eins og eitthvað deyi innra
með manneskjunni í hvert skipti
sem hún lendir í einelti.
Einelti getur átt sér stað á
mörgum sviðum lífsins. Margir
hafa orðið fyrir einelti í skóla
eða hafa séð einhvern lagðan í
einelti. Margir kannast líka við
að hafa sjálfir lagt í einelti. Ein-
elti á sér stað á vinnustöðum, í
félagasamtökum, innan íþrótta-
hreyfingarinnar, í fjölskyldunni,
í vinahópum og í raun alls staðar
þar sem hópur fólks kemur
saman.
Það er skrítin iðja að leggja
fólk í einelti og ástæðurnar fyrir
því að níðast á öðrum geta verið
margar og mismunandi. Skortur
á tilfinningagreind stendur þó
kannski upp úr. Viðkomandi
skynjar ekki hversu mikil áhrif
eineltið hefur á sálarlíf þess sem
fyrir því verður. Sumir fá líka
útrás fyrir minnmáttarkennd
sína og óöryggi með því að leggja
aðra í einelti. Á vinnustöðum
finnst sumum gott að hafa ein-
hvern sem athyglinni er beint að,
svo það verði síður tekið eftir
þeim sjálfum og þeirra brestum.
Eineltið getur tekið á sig
margar myndir. Í skólanum er
oft hreinlega hrópað að viðkom-
andi, hann kallaður nöfnum og
jafnvel lagðar á hann hendur. Í
fjölskyldunni gerist það stund-
um að eldri systkini leggja það
yngra í einelti. Hér þurfa for-
eldrar að fylgjast vel með og
vera á varðbergi, því ef viðkom-
andi líður ekki vel í fjölskyld-
unni er fokið í flest skjól. Í vina-
hópum er oft einn aðili sem alltaf
er gert grín að. Það er nú þannig
að saklaust grín er oft á tíðum
alls ekki saklaust grín fyrir þá
sem fyrir því verða.
Það fylgir því mikil skömm að
vera lagður í einelti. Það að
standa andspænis því að hópur
fólk sameinast um að setja út á
einn einstakling getur skapað
mikinn sársauka og djúpstæða
vanmáttarkennd. Verst er þegar
börn og unglingar lenda í þessu
þar sem sjálfsmynd þeirra er
ennþá að mótast. Sá sem lendir í
eineltinu fer hægt og rólega að
trúa að eitthvað sé að honum.
Þessi tilfinning getur í raun sest
að og verið erfitt að losa um hana
seinna meir.
Þeir sem hafa orðið fyrir ein-
elti búa gjarnan við ótta við að
lenda í einelti aftur. Ekki er óal-
gengt að þeim sem fyrir einelt-
inu verða eigi eftir að líða illa í
hópum seinna meir og upplifa
óöryggi og kvíða. Einelti tekur
sinn toll af sjálfsmyndinni og
sumir hafa þurft að sækja sér
viðtalsmeðferð til að vinna úr
eineltinu síðar á ævinni. Reiði og
sársauki samfara skömm og
niðurlægingu eru þær tilfinning-
ar sem eftir sitja og eru þær mis-
sterkar eftir því hversu lengi
eineltið stóð yfir og hversu svæs-
ið það var.
Þeir sem fyrir eineltinu verða
bregðast misjafnlega við og fer
það þá oft eftir upplagi hvers og
eins og einnig hvers konar ein-
elti er um að ræða. Sumir hafa
átt það til að fyllast hatri og ráð-
ast á þá sem voru valdir að ein-
eltinu. Aðrir fara inn í sig og
reyna að láta líta út eins og allt
sé í lagi. Aðrir reyna að svara
fyrir sig með orðum og eineltis-
aðferðum. Algengast er að
skömmin og niðurlægingin sem
fólk finnur til verði það mikil að
viðkomandi dragi sig ósjálfrátt
inn í skel sína.
Þeir sem verða fyrir einelti
eru oft fólk sem á erfitt með að
standa með sér. Einnig segir
sagan okkur að það fólk sem er
öðruvísi en fjöldinn er líklegra
til að verða fyrir háði og spotti
en aðrir. Þetta er þó ekki algilt og
í raun má segja að allir geta orðið
fyrir einelti við ákveðnar aðstæð-
ur.
Þeim sem orðið hafa fyrir ein-
elti má benda á samtök Regn-
bogabarna, en þau eru samtök
fólks sem lent hefur í einelti.
Vert er að hafa í huga að einelti
er dauðans alvara, þar sem dæmi
eru um að fólk hafi fyrirfarið sér
í kjölfar langvarandi eineltis.
Sárin eru til staðar, þó ekki blæði
úr þeim. Maður þarf að nota til-
finningaaugað til að sjá þau.
Persona.is
PÁLL EINARSSON
SÁLFRÆÐINGUR SKRIFAR
Einelti
1) Í bragðprófun meðal 100 reykingamanna var Nicorette Fruitmint borið saman við helsta keppinautinn - Fruit nikótíntyggigúmmí. Nicorette Fruitmint var talið bragðbetra
nikótíntyggigúmmí. RSSL Pharma, 2005. Markaðsathugun gerð fyrir Pfizer. Nicorette nikótínlyf eru fáanleg án lyfseðils og eru notuð þegar reykingum er hætt eða þegar dregið er úr
reykingum. Til að ná sem bestum árangri skal ávallt fylgja leiðbeiningum í fylgiseðli. Skammtar eru einstaklingsbundnir eftir því hve mikið er reykt, hvort hætta á reykingum eða draga úr
þeim. Því ber að kynna sér upplýsingar um notkun í fylgiseðli. Í fylgiseðlinum eru upplýsingar um: verkun og notkun, varúðarreglur, mikilvægar upplýsingar sem nauðsynlegt er að lesa áður
en lyfin eru notuð, hugsanlegar aukaverkanir og aðrar upplýsingar. Leitið til læknis eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingumum lyfin. Þeir sem fengið hafa ofnæmi fyrir nikótíni eða
öðrum innihaldsefnum lyfsins, nýlegt hjartaáfall, óstöðuga versnandi hjartaöng, alvarleg hjartsláttarglöp eða nýlegt heilablóðfall eiga ekki að nota Nicorette nikótínlyf. Börn yngri en 15 ára,
þungaðar konur og konur með barn á brjósti eiga ekki að nota Nicorette nikótínlyf nema að ráði læknis.
Handhafimarkaðsleyfis: Pfizer ApS. Umboð á Íslandi: Vistor hf., Hörgatúni 2, Garðabæ.
Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Geymið
fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann síðar. www.nicorette.is
Við fylgjum nú eftir þeim vinsældum sem nýja kynslóðin af
Nicorette nikótíntyggigúmmíi hefur aflað sér og kynnum nýja
bragðtegund - Nicorette Fruitmint.
Nicorette Fruitmint er mjúkt að innan, hefur stökkt yfirborð og
frískandi bragð með gómsætri blöndu af ávöxtum og myntu.
Lestu meira á nicorette.is
*Meðan birgðir endast
Nýjung!
Nicorette Fruitmint
Sumartilboð
afsláttur
25%
*
Sumartilboð
40% afsláttur
af 3ja mánaða
kortum
Dansrækt JSB er staður fyrir
konur á öllum aldri. Notalegt
andrúmsloft og fjölbreyttir
tímar í boði í opna kerfi nu.
Vertu velkomin
í okkar hóp!
Hafðu samband!
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
t e
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
r a
f í
s
k
h
ö
n
n
u
n
JSB tímar,
teygjutímar, lóð,
sveifla, pallar,
púl, einkaþjálfun,
yoga
E
F
L
I R
a
l m
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
r a
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
l
l
l
ler kominn!Þinn tími
550 5000
Hringdu ef blaðið berst ekki
- mest lesið