Fréttablaðið - 30.05.2006, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 30.05.2006, Blaðsíða 42
Margrét Harðardóttir og Steve Christer, arkitektar hjá Studio Granda, eru tilnefnd fyrir nýjan nemendagarð og rannsóknar- og frumkvöðlasetur Viðskiptaháskól- ans að Bifröst. 14 ■■■■ { norðurland } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Sjónlist er ný verðlaun sem veitt verða fyrir sjónlistir nú á haustmán- uðum á Akureyri. Sex listamenn hafa verið tilnefndir til verðlaun- anna í ár og munu tveir þeirra hljóta verðlaun annars vegar fyrir mynd- list og hins vegar fyrir arkitektúr og hönnun. Vinningshafarnir fá hvor um sig tvær milljónir króna, en fyr- irtæki eins og Glitnir, Inn fjárfesting- ar og húsgagnafyritækið Montana í Danmörku eru styrktaraðilar. Verð- launaafhendingin fer fram í beinni útsendingu í september og jafn- framt verður sett á laggirnar sýn- ing á verkum þeirra sem tilnefndir eru. Auk þess verður haldin serstök alþjóðleg ráðstefna um sjónlistir þar sem innlendir og erlendir aðilar fag- aðlilar munu halda fyrirlestra. „Ég hugsaði með mér að sjón- listir þyrftu á svipaðri viðurkenn- ingu að halda og aðrar listgreinar,“ segir Hannes Sigurðsson, forstöðu- maður Listasafns Akureyrar, sem er upphafsmaður verðlaunanna. Hann hafði gengið með þá hugmynd í maganum í nokkur ár að setja á laggirnar verðlaun og uppskeruhátið fyrir sjónlistir. Hugmyndina reifaði hann svo á síðasta ári við formann menningarmálanefndar Akureyrar og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráherra og fékk góðan hljómgrunn. „Ég hjólaði í verkefn- ið og nú er staðan sú að búið er að stofna verðlaun sem kallast Sjónlist og verða veitt árlega, vonandi um ókomna tíð,“ segir Hannes. Hann segir hugmyndina hafa snúist um það að verðlauna ekki aðeins mynd- list, heldur allar sjónlistir landsins, þar á meðal arkitektúr og hönnun. „Mér fannst mjög mikilvægt að ná samstöðu í íslensku sjónlistarfjöl- skyldunni með þessum verðlaunum. Hugsunin er þó ekki sú að búa til nýtt kerfi, heldur fá menn til að snúa bökum saman til að kynna hvað er að gerast,“ segir Hannes. „Við fengum til liðs við okkur alla sem snerta þetta svið. Inni í þessu eru Samtök íslenskra myndlistarmanna og Forum Ísland, einnig hönnun- arvettvangur og kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar. Listaháskólinn tengist þessu líka. Jafnfamt er þetta samstarf millli Akureyrarbæjar, menntamálaráðuneytis og iðnaðar- ráðuneytis.” Hannes segir fagmennsku hafa vera ráðandi í kringum framkvæmd verðlaunanna og hafi dómnefnd skipuð fagaðilum séð um tilnefn- ingarnar. „Ég fagna því hvað dómnefnd- in tekur ferskan pól í hæðina. Næstum allt eru þetta konur sem eru á mjög framúrstefnulegri línu og sýna mjög víða erlendis,“ segir Hannes. Framúrskarandi listafólk á heimsmælikvarða Sjónlist er ný verðlaun sem sett hafa verið á laggirnar fyrir tilstilli Listasafns Akur- eyrar. Hannes Sigurðsson, forstöðumaður safnsins, hafði gengið með hugmyndina í maganum í nokkur ár en það var í fyrra sem boltinn fór fyrst að rúlla. Hannes Sigurðsson, forstöðumaður Listasafns Akureyrar. Margrét H. Blöndal er tilnefnd í mynd- list fyrir innsetninguna Anchor, strings, ballooning/rejoice inside out / pulled and parades / partly floating / bright, balancing / torn apart / bouyant Úr verki Margrétar H. Blöndal. Hildur Bjarnadóttir er tilnefnd í myndlist fyrir yfirlitssýninguna Unraveled í Boise- listasafninu í Idaho í Bandaríkjunum.Vor- og haustlína STEINUNNAR. Steinunn Sigurðardóttir er tilnefnd fyrir hönnun, fyrir vor- og haustlínu sem hún hannaði undir vörumerkinu STEINUNN. Katrín Sigurðardóttir er tilnefnd í myndlist fyrir verk sitt High Plane III á sýningunni The Here and Now í The Renaissance Society í Chicago í Bandaríkjunum. Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir er tilnefnd fyrir hönnun, fyrir húsgögn í framleiðslulínunni Inner Beauty og í línunni FLAT pack „antiques“.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.