Fréttablaðið - 30.05.2006, Blaðsíða 14
30. maí 2006 ÞRIÐJUDAGUR14
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Nýlega var rifinn einn
af minnisvörðunum um
rúmlega 40 ára hugmynd
um veg í sjö metra hæð
yfir norðurhluta miðborgar
Reykjavíkur.
Stórvirkar vinnuvélar rifu á dög-
unum niður brúarstubb við Toll-
húsið í Reykjavík. Sjálfsagt hafa
fæstir borgarbúar velt þessum
brúarstubbi fyrir sér enda löngu
orðinn eðlilegur hluti af umhverf-
inu. Eldri íbúar kunna þó að minn-
ast stórtækra hugmynda um veg
yfir miðborgina sem liggja átti í
sjö metra hæð. Stubburinn var
hluti samgöngumannvirkja sem
aldrei voru byggð.
Hugmyndin var að gatan næði
frá Skúlagötu að Mýrargötu. Aka
átti upp á aðrein við Útvarpshúsið
við Skúlagötu, yfir Faxaskála, að
Tollhúsinu og þaðan meðfram
Hafnarhúsinu. Við það áttu að
vera gatnamót og var annað hvort
hægt að halda áfram og niður veg-
inn við slippinn í Mýrargötu eða
beygja niður í göng sem liggja
áttu undir Grjótaþorpið. Líkt og
sést á líkaninu var gert ráð fyrir
að gömlu húsin í Grjótaþorpinu
yrðu rifin eða flutt og ný reist í
staðinn. Athyglisvert er raunar að
hugmyndasmiðirnir gerðu ekki
ráð fyrir að eitt einasta gamla
timburhús fengi að standa áfram í
miðborginni heldur áttu nýjar og
stærri byggingar að koma í þeirra
stað.
Eitt þeirra húsa sem þurfti að
víkja samkvæmt hugmyndinni
var Iðnó. Þess í stað var gert ráð
fyrir að Ráðhús Reykjavíkur yrði
reist á lóðinni, líkt og sjá má efst á
myndinni.
bjorn@frettabladid.is
EKIÐ UNDIR GRJÓTAÞORPIÐ Í stað gömlu
húsanna í Grjótaþorpinu áttu að koma
nýbyggingar og bílastæði. Umferðinni átti
að beina í stokk undir hús og stæði.
Miðborgin sem aldrei varð
RÚSTIR EINAR Brúarstubburinn við Tollhús-
ið var malaður mélinu smærra.
RÁÐHÚS Í STAÐ IÐNÓS Hugmynd frá 1964
gerði ráð fyrir að Iðnó yrði rifið og Ráðhús
Reykjavíkur byggt á lóðinni við norðaustur
horn Tjarnarinnar. Rúmum 30 árum síðar
var Ráðhúsið reist í norðvestur horninu.������������������������������������������������������
�� ��������������������������������������������������������������
������ ������������������������������������������������������
������������������������������������������������������������
��������������������������������������������������������������
������������������������������������������������������������
�������������������������������
��������������������������������������������
������������������������������������������������������������������
��������������������������������������������������������
�������������������������������������������������������������������
1.890.000,- Beinskipt - 1.6 lítra
Nýr, fallegri og miklu
betri Opel.
Þinn daglegi
skammtur af gleði
Mánaðargreiðsla 23.061,-*
���������������� �������������������� ���� �����������������
„Ég var að klára fyrsta árið í Listaháskólan-
um þar sem ég er að kynna mér fræðilegu
hliðina á leikhúsi. Ég fór í þetta nám til
að komast að því hvað virkar fyrir sviðið,
þennan töfraflöt,“ sagði Elísabet Jökulsdóttir
þegar blaðamaður sló á þráðinn til hennar.
Elísabet er, eins og alþjóð veit, afkastamikill
rithöfundur og hefur einnig verið áberandi í
leiklistarlífi og blaðamennsku á undanförn-
um árum. „Mér fannst upplagt að ná mér í
verkfæri og kynnast leikhúsinu betur. Ég hef
alltaf verið rosalega hrifin af verkfærum og
finnst þau mjög spennandi. Í skúrnum hjá
afa mínum var til dæmis alltaf fullt af verk-
færum en verkfæri til að skrifa eru ósýnileg,
en alveg jafnskemmtileg.“
Elísabet fékk hugmyndir að tveimur
nýjum leikritum nýlega og vinnur nú að
því að klára þau. En ekki er það allt. Hún
ætlar að gefa út geisladisk með ljóðum á
næstunni, vinnur að nýrri skáldsögu auk
þess að skrifa bók fyrir Mál og menningu
um geðhvarfasýki, en það er sjúkdómur
sem Elísabet glímir við. „Ég hef haft mikið
af hugmyndum en ekki getað komið öllu
í framkvæmd. Þetta er spurning um að
vinna með meiri einbeitni og kunna að
skipuleggja sig. Það er eitthvað sem ég
læri kannski í skólanum. Það er blessun að
fá mikið af hugmyndum og þá fær maður
löngun til að deila þeim með fólki.“
En er líf rithöfundarins bara eintóm
vinna? Spurð að því hvort hún ætli ekki að
taka sér frí segist hún ekki vita það ennþá af
því henni þyki svo gaman að skrifa. „Maður
fer auðvitað eitthvað út úr bænum og mig
langar að heimsækja barnabörnin mín
sem eru á Spáni. Svo langar mig austur að
Heklu og upp á öræfin en ég er
ekkert búin ákveða neitt. Svo fer
maður reglulega á Víkings-
völlinn og Gróttuvöllinn því
strákarnir mínir eru að spila
þar.“ Hún syrgir það ekki að
þeir spili ekki lengur í Vest-
urbænum. „Það getur
alltaf eitthvað
frjósamt gerst
þegar skipt er um
lið. Það gerist
alltaf eitthvað
spennandi við
breytingar og
maður lærir
mest af þeim.“
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? ELÍSABET JÖKULSDÓTTIR RITHÖFUNDUR
Heilluð af hvers konar verkfærum
REYKJAVÍK Í GÖMLU LJÓSI Umbylta átti
miðborg Reykjavíkur samkvæmt hugmyndum
sem lagðar voru fram upp úr 1960. Gömlu
timburhúsinu áttu að hverfa og stór stein-
steypuhús að rísa í þeirra stað. Gatan með-
fram höfninni átti að vera í sjö metra hæð.
Brúarstubburinn sem liggur frá Tollhúsinu var
rifinn á dögunum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Vinslit
Ég tók það fram að
Bandaríkjamenn hefðu
brugðist vináttu okkar og
trausti með því að segja
samningnum upp einhliða.
Össur Skarphéðinsson alþingismaður í
Fréttablaðinu 29. maí.
Stór spurning
Kynbundið ofbeldi er
dauðans alvara. Við verðum
að hvetja konur til að taka
hótanir alvarlega og
hvetjum kerfið til að
bregðast við.
Drífa Snædal, fræðslu- og framkvæmda-
stýra Samtaka um kvennaathvarf í
Fréttablaðinu 29. maí.