Fréttablaðið - 30.05.2006, Page 32
4
Í október á síðasta ári urðu eigenda-
skipti á veitingastaðnum Fiðlaran-
um, að Skipagötu 14. Við það fékk
staðurinn nýtt heiti, Strikið, og var
breytt úr gamaldags matsölustað í
nýtískulegt veitingahús. Ingi Þór
Ingólfsson, einn eigenda Striks-
ins, segir að í flestum tilvikum hafi
breytingunum verið vel tekið.
„Segja má að breytingarnar hafi
gengið hratt fyrir sig, þar sem við
hófum þær skömmu eftir að við
tókum við staðnum og lukum þeim
í desember,“ segir Ingi Þór. Við
sigldum því á milli skers og báru á
meðan þessu stóð, ef svo má að orði
komast.“
Ekki er nóg með að stórtækar
breytingar hafi verið gerðar á útliti
staðarins, heldur fékk gamli matseð-
illinn að fjúka. „Við erum nú með
tvo matseðla, annars vegar hádeg-
ismatseðil sem inniheldur allt frá
hamborgurum upp í nautasteikur,
og hins vegar kvöldmatseðil, með
pastaréttum, humri og nautalund-
um með bernaise-sósu, svo dæmi
séu nefnd,“ segir Ingi Þór. „Sumir
réttanna njóta alveg ótrúlegra vin-
sælda hérna og má þar nefna kola-
glóðaða hamborgara í hádeginu
og nautalundir á kvöldin. Svo eru
matseðlarnir okkar í stöðugri end-
urskoðun og þeim breytt í takt við
tískustrauma,“ bætir hann við.
Þess má líka geta að Strikið býður
ekki aðeins upp á ljúffengan mat
heldur verður einnig lifandi tónlist
leikin fyrir gesti á þemakvöldum alla
fimmtudaga í sumar. „Hérna verða
ýmsir tónlistamenn sem sýna listir
sínar og ráðgera má að lagasmíðar
eftir meistara eins og James Taylor,
David Bowie, Simon & Garfunkel og
fleiri verði spilaðar,“ segir Ingi Þór.
Fyrsta flokks veitingahús á heimsvísu
Nafni staðarins var breytt úr Fiðlaranum í Strikið og skipt um innréttingar og matseðil til að ná fram léttari áhrifum. Hér sést Ingi Þór, einn eigenda staðarins, skenkja viðskiptavini í glas á
nýja barnum. FRÉTTABLAÐIÐ/KK
Þrír útskriftarnemar við Myndlistar-
skólann á Akureyri, þær Hanna Hlíf
Bjarnadóttir, Dögg Stefánsdóttir og
Karen Dúa Kristjánsdóttir, hafa í ár
rekið Gallerí BOX við Kaupvangs-
stræti 16, þar sem galleríið Kompan
var áður til húsa. Að sögn Hönnu
hafa sýningar almennt verið vel
heppnaðar og viðtökur góðar.
Innt eftir því af hverju þær hafi
ráðist í reksturinn segir Hanna
þær hafa séð sér leik á borði eftir
að húsnæðið losnaði. „Við hófum
rekstur á meðan við vorum enn í
námi og fengum styrki til að bjóða
listamönnum til okkar,“ segir hún.
„Við stöndum þannig algjörlega
undir kostnaði og rekum galleríið
á núlli.“
Hanna og samstarfskonur henn-
ar standa um þessar mundir fyrir
sýningu á verkum Sólveigar Ein-
arsdóttur, sem að hennar mati er
ung og efnileg listakona að fást við
áhugaverða hluti. „Í I8 var hestur
í fullri stærð eftir hana, eingöngu
gerður úr pez-sælgæti,“ segir hún.
„Hjá okkur er hún með ljósmyndir
af gæludýrunum sínum. Svo hefur
hún búið til eftirmynd hundsins
síns og kattar úr hunda- og katta-
mat, sem hægt er að skoða. Þetta
er mjög falleg og krúttleg sýning
sem hefur fengið góða dóma,“ segir
hún.
Að sögn Hönnu hafa þær stöllur
staðið fyrir ýmsum uppákomum auk
sýninga, þar á meðal gjörningum.
„Svo erum við alltaf með grænmet-
isveislur á opnunum,“ segir hún.
„Þá er boðið upp á mat til að ná
fram afslöppuðu andrúmslofti og
láta sýningargesti staldra ögn leng-
ur við. Okkur finnst hafa tekist vel
til,“ segir hún loks.
Gæludýr gerð úr dýrafóðri
Hanna Hlíf Bjarnadóttir og starfssystur hennar standa fyrir áhugaverðum sýningum í
Gallerí BOX.
Dögg, Karen og Hanna Hlíf hafa rekið Gallerí BOX í rúmt ár. Á myndinni sést einnig dóttir Hönnu Hlífar, Marsibil Þórarinsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/KK
■ { norðurland } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Ingi Þór segist vera ánægður með þær
breytingar sem gerðar hafi verið á Strikinu
og að þær hafi yfirleitt lagst vel í fólk.
FRÉTTABLAÐIÐ/KK
Ingi Þór Ingólfsson, einn
eigenda veitingahússins
Striksins, býður upp á
ljúffenga rétti sem eru í
stöðugri endurskoðun.
Menningarhús og tónlistarskóli
mun rísa við Strandgötu á Akureyri
og hefjast framkvæmdir á næstu
mánuðum. Í dag hefst afhend-
ing útboðsgagna vegna byggingar
hússins en samningur um hönnun
menningarhúss og tónlistarskóla
var undirritaður 2. júní 2005. Upp-
haflega var gert ráð fyrir því að
tónlistarskóli mundi rísa síðar í sér-
stöku húsi tengdu menningarhús-
inu. Á frumhönnunarstigi var hins
vegar bætt við hæð ofan á menn-
ingarhúsið þar sem starfsemi tón-
listarskólans mun að mestu verða.
Tilboð í fyrsta útboð vegna fram-
kvæmda við menningarhús og tón-
listarskóla voru opnuð 4. nóvember
2005 um framkvæmd sem felur í sér
fergja svæði (til að láta jarðveginn
síga) og reka niður stálþil. Sigmæl-
ingar á svæðinu hófust um miðjan
desember 2005 og verður svæðið
tilbúið til framkvæmda um mán-
aðamótin.
Áætluð verklok fyrir menning-
arhús og tónlistarskóla ásamt lóð
og umhverfi er vorið 2008.
Menningarhús og
tónlistarskóli
Framkvæmdir hefjast á næstu mánuðum.
Menningarhús og tónlistarskóli mun rísa við Strandgötu á Akureyri,.