Fréttablaðið - 30.05.2006, Side 59
ÞRIÐJUDAGUR 30. maí 2006 27
Myndlistarkonan Þórunn Hjartar-
dóttir sýnir um þessar mundir í
sýningarýminu Suðsuðvestri við
Hafnargötu 22 í Reykjanesbæ.
Sýninginuna kallar hún „Hvernig
er Suðsuðvestur?“. Þar eru stað-
og tímabundin verk sem hún hefur
unnið beint inn í sýningarýmið en
hún hefur ekki unnið með þessum
hætti áður. Þetta er fimmta einka-
sýning listakonunnar. Þórunn
hefur einkum fengist við geó-
metrísk abstraktmálverk en á síð-
ustu einkasýningu bættust ljós-
myndir, hljóðverk og málverk með
orðum bæst við.
Gallerí Suðsuðvestur er opið
fimmtudaga og föstudaga frá kl.
16-18 og laugardaga og sunnudaga
frá kl. 14-17. Annars er opið eftir
samkomulagi. Sýningin stendur til
18. júní.
Suðsuðvestur kannað
ÞÓRUNN HJARTARDÓTTIR Sýnir stað- og tímabundin verk í Suðsuðvestri.
„Ég hef unnið sem leiðsögumaður
fyrir íslenska ferðamenn í Kaup-
mannahöfn í átta ár og því er þessi
bók rökrétt framhald af starfi
mínu. Fyrir ári gaf ég út bók sem
fjallaði um gömlu góðu Kaup-
mannahöfn innan borgarveggj-
anna, en nýja bókin er jafnframt
framhald af henni“, segir Guð-
laugur Arason um nýútkomna
ferðahandbók sem hann tók saman
og ber titilinn „Kaupmannahöfn –
ekki bara Strikið“.
„Margur Íslendingurinn hefur
haft það á orði við mig að það
hljóti að vera fleiri staðir í Kaup-
mannahöfn að heimsækja en
Strikið og er það mikið rétt. Það
eru ótal spennandi staðir sem
liggja út fyrir akra borgarsíkj-
anna og hægt er að gera sér far
um að skoða. Það er ekki síst að
áeggjan þessarra Íslendinga sem
ég ákvað að skrifa þessa göngu-
ferðbók“. Eins og segir í lýsing-
unni á bókinni greinir Guðlaugur
frá „tíu gönguleiðum um borgina,
útskýrir heiti gatna, lýsir stað-
háttum, sögulegum byggingum og
minnist á þekkta einstaklinga sem
tengjast þeim“.
Þegar Guðlaugur er inntur
eftir ástæðum þess að gönguleið-
irnar bera heiti hinna ýmsu teg-
unda dýraríkisins, segir hann
„það einfaldlega gert til heiðurs
húsdýrum sem voru innan borg-
arveggjanna í gömlu Kaupmanna-
höfn, alveg fram á miðja 19. öld.
Það var ekki bara fólkið sem setti
svip sinn á bæinn heldur öll hús-
dýrin sem þar var að finna. Í
hverjum bakgarði var búskapur“,
heldur Guðlaugur áfram. „Ég
gætti þess þó að velja ekki leið
rottunnar og valdi músina í stað-
inn, enda aldeilis munur á fríð-
leika þeirra frænkna. Fleiri
myndu eflaust vilja ganga í fót-
spor músarinnar en rottunnar,“
segir Guðlaugur og hlær dátt.
„Fyrri hluti bókarinnar er ætl-
aður sem ferðavísir fyrir þá sem
eru á hlaupum um borgina og
vantar einhverjar smá upplýsing-
ar um hvað skal skoða. Hér hef ég
textann knappan og forðast allt
orðagjálfur. Ef fólk vill lesa sér
eitthvað meira til um viðkomandi
götur, torg eða hús í gamla bænum
þá verður fólk einfaldlega að
verða sér úti um fyrri bók mína.
Seinni hlutinn í nýju bókinni er
ítarlegri, en hann er hugsaður
sem ítarefni. Þennan hluta bókar-
innar reyni ég að hafa svolítið
léttan og skemmtilegan“, útskýrir
Guðlaugur.
Spurður hvort hann óttist ekki-
samdrátt í leiðsögu sinni um
Kaupmannahöfn í sumar með til-
komu ferðahandbókarinnar, hlær
Guðlaugur og segist „vissulega
uggandi yfir því að nú verði ekki
lengur þörf fyrir nærveru hans
þar sem bókin muni eflaust duga
til, en bætir svo við að það sé allt í
lagi, enda ætli hann sér ekki að
verða ellidauður í þessum
bransa“. -brb
GÖNGULEIÐABÓK UM KAUPMANNAHÖFN
Ótal spennandi staðir eru innan marka
borgarinnar.
Meira en bara Strikið
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
MAÍ
27 28 29 30 31 1 2
Þriðjudagur
■ ■ TÓNLEIKAR
20.00 Söngkonan Ragnheiður
Gröndal og trúbadorinn Helgi Valur
halda tónleika í Hveragerðiskirkju
og flytja frumsamið efni ásamt töku-
lögum. Sérstakur gestur er Magnús
Þór Sigmundsson.
■ ■ FUNDIR
20.00 Framhaldsstofnfundur
Félags sjálfstætt starfandi fræði-
manna á Norðurlandi verður hald-
inn í Húsmæðraskólanum gamla
við Þórunnarstræti á Akureyri.
■ ■ SÝNINGAR
10.00 Afmælissýning Braga
Ásgeirssonar stendur yfir í Galleríi
Fold við Rauðarárstíg. Sýningin
stendur til 11. júní.
12.00 Sýning á verkum þýska
myndlistarmannsins Rudolfs
Reiter stendur yfir í Listasafninu á
Akureyri.
■ ■ LJÓÐAKVÖLD
20.00 Síðasta Skáldspírukvöld
Lafleaur útgáfunnar í vetur verður
í Iðuhúsinu við Lækjargötu. Gestur
kvöldsins verður Sveinn Snorri
Sveinsson sem les úr nýrri ljóðabók
sinni Að veiða drauminn.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.