Fréttablaðið - 18.06.2006, Side 53
NÁMS- OG STARFSRÁÐGJAFI
Borgarhólsskóli og Þekkingarsetur
Þingeyinga óska eftir náms- og starfsráð-
gjafa til starfa skólaárið 2006-2007.
Um er að ræða ráðningu til eins árs í
u.þ.b. 50% starfshlutfall hjá hvorri stofnun
(alls 100%).
STARFSVIÐ:
Helstu verkefni fyrir Borgarhólsskóla eru eftirtalin:
• Náms- og starfsfræðsla
• Persónuleg ráðgjöf
• Fræðsla til foreldra
• Leiðbeiningar um námsvenjur og námstækni
• Almenn nemendavernd
Helstu verkefni fyrir Þekkingarsetur Þingeyinga eru
eftirtalin:
• Náms- og starfsráðgjöf á vinnustöðum
• Þarfagreining með fyrirtækjum og stofnunum
• Þróun námskeiðsleiða á sviði fullorðinsfræðslu
• Kennsla á námskeiðum
• Ýmis önnur verkefni fyrir Þekkingarsetrið
MENNTUNAR OG HÆFNISKRÖFUR:
Menntun á sviði náms- og starfsráðgjafar er skilyrði
• Sjálfstæði í vinnubrögðum
• Metnaður
• Sveigjanleiki
• Samskiptahæfni
Borgarhólsskóli er 380 nemenda heildstæður
grunnskóli á Húsavík.
Þekkingarsetur Þingeyinga hefur aðsetur á Húsavík
og starfar á sviði símenntunar, rannsókna og há-
skólanáms.
Upplýsingar um starfið veita:
Halldór Valdimarsson, skólastjóri Borgarhólsskóla í
símum 464 6140 og 846 7603 og Óli Halldórsson,
forstöðumaður Þekkingarseturs Þingeyinga í símum
464 0444 og 868 7600.
Umsóknir sendist til Þekkingarseturs Þingeyinga,
Garðarsbraut 19, 640 Húsavík eða á netföngin
oli@hac.is og hvald@borgarholsskoli.is fyrir 30. júní.
Smiðir
Kraftafl ehf auglýsir
Erum með vana smiði sem óska eftir mikilli vinnu.
Upplýsingar í síma 891 8667
Gullsmiður
óskast
Gullsmiður óskast til starfa í fullt starf.
Upplýsingar í síma 863 9450
og 421 1011.
Meiraprófsbílstjóri óskast
AÐFÖNG óska eftir meiraprófsbílstjóra.
Viðkomandi þarf að hafa próf á vörubifreið með
eftirvagn. Unnið er á vöktum við útkeyrslu á
vörum í verslanir Haga.
Umsóknareyðublöð má fá í móttöku Aðfanga að
Skútuvogi 7, 104 Reykjavík.
einnig er hægt að sækja um á www.adfong.is
Upplýsingar gefur Ársæll í síma 693-5620
Sveitarstjóri Húnavatnshrepps
Húnavatnshreppur óskar eftir
að ráða sveitarstjóra.
Starfsvið:
• Daglegur rekstur sveitarfélagsins.
• Yfirumsjón með bókhaldi og áætlanagerð.
• Vinna með sveitarstjórn og fylgja eftir ákvörðunum
hennar.
• Gæta hagsmuna sveitarfélagins út á við og annast
samskipti við stofnanir, fyrirtæki og samtök.
Menntunar og hæfniskröfur:
• Reynsla af rekstri og stjórnun og góð bókhaldskunnátta
• Góð þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
• Áhugi á atvinnu- og markaðsmálum.
• Frumkvæði til að takast á við uppbyggingu nýs sveitarfélags.
Æskilegt er að sveitarstjóri hafi háskólamenntun og
búi yfir þekkingu á málefnum sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til 30. júní 2006.
Umsóknir ásamt ferilskrá sendist til oddvita
Húnavatnshrepps Björns Magnússonar, Hólabaki,
541 Blönduós og veitir hann jafnframt frekari
upplýsingar um starfið. Símar: 452-4661, 452-4473
og 895-4473. Netfang: hunavatnshreppur@emax.is
Húnavatnshreppur er sameinað sveitarfélag fimm hreppa í Austur
Húnavatnssýslu með um 470 íbúa. Hreppurinn er landfræðilega mjög
stór nær frá sjó inn til jökla
Grunnatvinnuvegur í sveitarfélaginu er landbúnaður en mikils virði
er að ná fram atvinnunýsköpun. Grunnskóli er á Húnavöllum, þar er
einnig stjórnsýsla sveitarfélagsins. Framundan eru mörg krefjandi
verkefni s.s. við mótun á stjórnsýslu í nýju sveitarfélagi, uppbyggingu
leikskóla og íbúða á Húnavöllum, skipulagsmál og fleira.
Margháttaðar upplýsingar um Húnavatnshrepp er að finna á
heimasíðu sveitarfélagsins. www.hunavatnshreppur.is.
ATVINNA
SUNNUDAGUR 18. júní 2006 15