Fréttablaðið - 23.07.2006, Side 2
2 23. júlí 2006 SUNNUDAGUR
LETTLAND, AP Saur og eggjum var
kastað að hópi samkynhneigðra og
stuðningsmanna þeirra í Ríga í Lett-
landi þegar fólkið var að koma úr
guðsþjónustu í gær. Réttur í Ríga
úrskurðaði á föstudag að ekki skyldi
leyfa skrúðgöngu samkynhneigðra
í borginni og hafði fjöldi baráttu-
fólks um réttindi samkynhneigðra
safnast saman í kirkjunni.
Tuttugu manns mótmæltu mál-
stað fólksins fyrir utan kirkjuna og
voru fimm handteknir fyrir að kasta
eggjum og saur. Fyrr í mánuðinum
skerti þingið í Lettlandi réttindi
samkynhneigðra í lögum um vinnu-
staði og í fyrra tók þingið fyrstu
skrefin til þess að banna hjónaband
samkynhneigðra. - rsg
Mótmæli í Lettlandi:
Saur á sam-
kynhneigða
LÖGREGLA Öryggisvörður Hag-
kaupa í Skeifunni gerði lögreglu
viðvart vegna manns sem virtist í
annarlegu ástandi við verslunina,
um hálf ellefu leytið í gærmorgun.
Maðurinn, sem er um þrítugt,
spígsporaði um bílaplan verslunar-
innar og hélt því staðfastlega fram
að hann ætti verslunina og að hann
þyrfti nauðsynlega að komast inn.
Hann lét öllum illum látum og
lamdi á hurð verslunarinnar og því
ákvað öryggisvörðurinn að kalla til
lögreglu.
Þegar lögregla kom á vettvang
virtist maðurinn í mjög annarlegu
ástandi og er hann grunaður um að
hafa verið undir áhrifum fíkniefna.
Lögregla handtók manninn og
færði til yfirheyrslu.
Þegar á lögreglustöðina var
komið réðst maðurinn á lögreglu-
mann í lyftu, með þeim afleiðing-
um að hann hlaut áverka. Lögreglu-
maðurinn leitaði til slysastofu eftir
árásina og hefur kært atvikið.
Maðurinn er enn í haldi lögreglu
og verður yfirheyrður um leið og
áhrifin renna af honum. - æþe
Maður sem laug því að hann væri eigandi Hagkaupa handtekinn í Skeifunni:
Réðst á lögreglumann í lyftu
VERSLUN HAGKAUPA Í SKEIFUNNI Lögreglan handtók mann sem laug því að hann væri
eigandi verslunarinnar. Hann lét öllum illum látum við verslunina og þegar hann var hand-
tekinn réðist hann á lögreglumann.
FJÁRSVIK Eftir að upp komst um
fjárdráttinn í Tryggingastofnun
ríkisins á dögunum var ákveðið að
taka skipulag stofnunarinnar til
gagngerrar endurskoðunar.
„Við höfum unnið undanfarið í
samvinnu við Ríkisendurskoðun að
því að skoða alla verkferla hér inn-
anhúss sem lúta að fjármálunum
hjá okkur,“ segir Karl Steinar
Guðnason, forstjóri Trygginga-
stofnunar. „Verið er að skoða
hvernig mál eru afgreidd og hvern-
ig gengið er frá skjölum, svo eru
tölvumálin í skoðun líka.“
Spurður hvenær öryggisúttekt-
inni lyki sagði Karl Steinar það alls
óvíst. „Við lítum á þetta sem lang-
tímaverkefni og framvegis verða
mál hjá stofnuninni sífellt í endur-
skoðun,“ sagði Karl Steinar. - æþe
Tryggingastofnun ríkisins:
Allt skipulag
endurskoðað
SAMFÉLAGSMÁL Ráðningarsamn-
ingur sá er Sigursteinn Másson,
formaður Öryrkjabandalags
Íslands, gerði við nýjan fram-
kvæmdastjóra bandalagsins var
ekki opinberaður stjórnarmeð-
limum bandalagsins né öðrum,
þrátt fyrir að lög bandalagsins
kveði á um það.
Áhrifamenn innan bandalags-
ins ætla nú að kæra Sigurstein til
félagsmálaráðuneytisins og vilja
meina að með samningnum við
framkvæmdastjórann sé Sigur-
steinn að ákveða eigin laun, en
framkvæmdastjóri fær sömu
laun og formaður.
Samkvæmt lögunum gerir
framkvæmdastjórn bandalagsins
ráðningarsamning við fram-
kvæmdastjóra, sem staðfestir
skal af aðalstjórn bandalagsins.
Arnþór Helgason, fyrrverandi
framkvæmdastjóri bandalagsins,
segir þetta ekki hafa verið gert.
„Þessi samningur var sagður
vera trúnaðarmál milli Sigur-
steins og framkvæmdastjórans,
sem getur hreinlega ekki verið.
Samkvæmt lögunum er það fram-
kvæmdastjórnin sem ræður
framkvæmdastjóra en ekki for-
maðurinn,“ segir Arnþór. „Aðal-
stjórnin er æðsta vald Öryrkja-
bandalagsins á milli aðalfunda og
framkvæmdastjórnin vinnur í
umboði aðalstjórnar. Þetta hlýtur
núverandi formaður bandalags-
ins að vita.“
Guðmundur Johnsen, einn
þeirra sem ætla að kæra Sigur-
stein, segir ráðningu fram-
kvæmdastjóra hafa verið knúna
fram í gegnum stjórnina án þess
að nokkur umræða um málið hafi
verið leyfð og án þess að samn-
ingurinn hafi verið lagður fram.
„Þetta stangast á við allt sem
heitir lýðræði og eðlileg stjórn-
sýsla. Það kaus minna en helm-
ingur manna með samningnum,
meirihlutinn sat hjá. Við teljum
að enn hafi ekki farið fram nein
umræða sem réttlætir að samn-
ingurinn sé staðfestur. Menn stað-
festa ekki samninga sem menn
hafa ekki séð, það er grundvallar-
atriði í samningum.“
Guðmundur segir rangt að
kæran sé til komin vegna per-
sónulegrar óvildar í garð Sigur-
steins. „Á sínum tíma kaus ég
Sigurstein vegna þess að ég taldi
hann ágætlega vel greindan. Ég
sé ekki hvernig það lýsir persónu-
legri óvild.“
Ekki náðist í Sigurstein Más-
son vegna málsins í gær.
salvar@frettabladid.is
Enginn fékk að sjá
kjarasamninginn
Áhrifamenn innan Öryrkjabandalags Íslands segja Sigurstein Másson hafa brot-
ið lög bandalagsins þegar hann neitaði að opinbera samning við framkvæmda-
stjóra. „Þetta stangast á við allt sem heitir lýðræði,“ segir stjórnarmeðlimur.
FRÁ FRAMKVÆMDASTJÓRNARFUNDI Fyrrverandi framkvæmdastjóri Öryrkjabandalagsins segir ráðningarsamning framkvæmdastjóra ekki
geta verið trúnaðarmál milli formanns og framkvæmdastjóra. Samkvæmt lögum sé framkvæmdastjóri ráðinn af framkvæmdastjórn, ekki
formanni.
SPURNING DAGSINS
Garðar, ákvaðstu að hjálpa
bræðrum þínum í ÍA í fallbar-
áttunni?
„Ég veit alla vega að þeir verða mjög
ánægðir með að losna við mig fyrir
leikinn.“
Knattspyrnumaðurinn Garðar Gunnlaugsson
gengur úr herbúðum Vals í raðir sænska 1.
deildarliðsins Norrköping eftir tvær vikur og
missir því af stórum hluta Íslandsmótsins.
10. ágúst mæta Valsmenn ÍA, sem er undir
stjórn Arnars og Bjarka Gunnlaugssona.
AUSTURRÍKI, AP Andstaða Rússa við
orðalag í uppkasti að ályktun Örygg-
isráðs Sameinuðu þjóðanna um
kjarnorkumál Írans ógnar samstöðu
stórveldanna sex um hvernig skuli
bregðast við mótþróa Írans við að
stöðva auðgun úrans. Bandaríkin,
Kína, Bretland, Frakkland, Þýska-
land og Rússland ákváðu hinn 12.
júlí að hefja viðræður á ný um
aðgerðir Sameinuðu þjóðanna, í
kjölfar þess að Íranar neituðu að
svara hvort þeir myndu verða við
vilja stórveldanna sex og fá í stað-
inn ýmis vilyrði.
Leiðtogar Rússlands höfðu áður
sagst vera tilbúnir til að beita Íran
hörku og því komu sinnaskiptin
fulltrúum hinna ríkjanna fimm á
óvart. Ali Larijani, sem er í forsvari
fyrir Írana í kjarnorkuviðræðun-
um, sagði í gær að auðgun úrans til-
heyrði „óafsalanlegum rétti írönsku
þjóðarinnar,“ en Íranar hafa hvorki
afþakkað tilboðið né sýnt merki um
að það verði gert. Ráðamenn í
Teheran segjast munu gefa svar 22.
ágúst en Bandaríkjamenn og banda-
menn hafa sagt að það sé of seint.
Ósamstaða ríkjanna gæti skaðað
tilraunir þeirra við að sannfæra
Írana um að komast að samkomu-
lagi um að hætta auðgun úrans.
Talið er að Rússar trúi ekki að Íran-
ar muni taka boðinu og vilji þess
vegna ekki að ályktunin sé of harð-
orðuð og leiði til hernaðaraðgerða
Sameinuðu þjóðanna ef Íranar fara
ekki eftir henni. Bandaríkjamenn
segja hins vegar að málamynda-
ályktun sem krefjist ekki stöðvunar
á auðgun úrans sé merkingarlaus
og þrýsta því á Rússa að skipta um
skoðun. - rsg
Bandaríkjamenn segja að málamyndaályktun um kjarnorkuáætlun Írana komi ekki til greina:
Rússar ógna samstöðu stórveldanna
ALI LARIJANI Fulltrúi Írans í kjarnorkuviðræðunum varaði við því á laugardag að stórveldin
þrýstu of hart á Íran um að hætta auðgun úrans.
SJÁVARÚTVEGUR Hjá Fiskmarkaði
Húsavíkur varð hlutfallslega
mesta söluaukningin fyrstu sex
mánuði þessa árs en þar nam sala
á sjávarafurðum 490 tonnum.
Þetta er meira en tvöfalt magn
frá sama tímabili í fyrra en þá
nam salan 215 tonnum.
Hlutfallsleg aukning var einn-
ig töluverð hjá Fiskmarkaðnum á
Kópaskeri en þar nam aukningin
133 tonnum.
Þá nam aukningin á Fiskmark-
aði Grímseyjar 484 tonnum eða
97,8 prósentum.
Ef einungis er miðað við magn
var mesta aukningin í sölu á
sjávarafurðum hjá FMÍS í Reykja-
vík eða 1.291 tonn. - hs
Mest söluaukning á Húsavík:
Tvöföldun í
sölu milli ára
ALDRAÐIR Landssamband eldri
borgara krefst þess að umsjón
með málefnum aldraðra verði
flutt í heild frá ríki til sveitar-
félaga.
Nefnd ríkis og aldraðra leggur
til að ríkisvaldið og Samband
sveitarfélaga endurskoði verka-
skiptingu sína um þjónustu og
búsetumál aldraðra sem fyrst.
Fulltrúar ríkisins telja að
ganga eigi til þess starfs með
opnum huga en eldri borgarar
vilja málaflokkinn á eina hendi
og það á hendi sveitarfélaganna.
- bþs
Málefni eldri borgara:
Verði flutt til
sveitarfélaga
MÓTMÆLI Hátt í tvö hundruð
manns eru nú komnir í mótmæla-
búðir Íslandsvina undir Snæ-
felli, sem settar voru upp á föstu-
dag. Hópurinn kom til landsins í
fyrra til að halda uppi mótmæl-
um gegn Kárahnjúkavirkjun og
verður það sama uppi á teningn-
um í ár.
Helmingur þeirra sem dvelja
í búðunum er útlendingar en á
meðal þeirra eru einstaklingar
sem handteknir voru af lögregl-
unni í fyrra fyrir skemmdir á
virkjanasvæðinu.
Lögregla á svæðinu verður
ekki með neina sérstaka vakt við
Snæfell en eftirlit verður haft
með virkjanasvæðinu. - sþs
Íslandsvinir komnir:
Mótmæli hafin
á ný í Snæfelli
TJALDBÚÐIRNAR Lögregla ætlar að hafa
eftirlit með virkjanasvæðinu ef eitthvað
kemur upp á.
LÖGREGLUMÁL Tveir menn og ein
kona voru handtekin aðfaranótt
laugardags fyrir vörslu eitur-
lyfja.
Fólkið, sem lögregla kannast
við, var stöðvað í miðborginni, um
hálf sex leytið í gær í bifreið við
hefðbundið eftirlit lögreglu.
Þau vöru öll með fíkniefni á
sér, eitthvað af kannabis, amfet-
amíni og e-töflum. Þar að auki
hafði konan stera í töfluformi í
fórum sínum.
Lögregla lagði hald á um tíu
grömm af efni og var fólkinu
sleppt að loknum yfirheyrslum.
Málið telst upplýst. - æþe
Þremenningar handteknir:
Tekin með
steratöflur
Slasaðist á fjórhjóli Maður á fjórhjóli
slasaðist í Látravík á Vestfjörðum í dag.
Hann missti stjórn á hjóli sínu þegar
hann fór yfir smásprænu sem hafði
myndast í sandfjörunni. Maðurinn kvart-
aði yfir verkjum í baki og fótum og var
fluttur með þyrlu til Reykjavíkur.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Ekið á vegfaranda Ekið var á mann á
níræðisaldri við Hveravík hjá Drangsnesi
seinnipartinn í gær. Hann var fluttur
með þyrlu til Reykjavíkur og er talinn
alvarlega slasaður en ekki í lífshættu.
Lögregla rannsakar málið, en ekki leikur
grunur á ölvun eða hraðakstri.