Fréttablaðið - 23.07.2006, Side 23
ATVINNA
SUNNUDAGUR 23. júlí 2006 5
Icelandair er fyrirtæki í forystu á alþjóðamarkaði í ferðaþjónustu.
Við erum í öflugri sókn og sækjumst eftir einstaklingum
til að taka þátt í uppbyggingu okkar á komandi árum.
Icelandair er kraftmikið ferðaþjónustufyrirtæki
sem tekur þátt í harðri samkeppni á
alþjóðamarkaði.
Icelandair er framsækið fyrirtæki, leiðandi í
ferðaþjónustu á Íslandi, leiðandi í
markaðssetningu á Internetinu og í fremstu
röð í þróun upplýsingatækni.
Starfsmenn Icelandair eru lykillinn að
velgengni félagsins. Hjá Icelandair starfa um
þúsund manns af mörgum þjóðernum í tíu
löndum.
Icelandair leggur áherslu á að starfsmenn
félagsins séu þjónustusinnaðir og tilbúnir að
takast á við krefjandi og spennandi verkefni í
alþjóðlegu starfsumhverfi.
Icelandair leggur áherslu á þjálfun
starfsmanna og símenntun, hvetur starfsmenn
til heilsuræktar og styður við félagsstarf
starfsmanna.
Icelandair er reyklaust fyrirtæki.
Við erum ein áhöfn með sameiginlegt, skýrt
markmið, berum virðingu fyrir viðskiptavinum
og samstarfsmönnum og höfum gaman að
því sem við gerum.
Við leitum að öflugum starfsmanni með reynslu af sölu- og
markaðsmálum, til starfa í Bretlandi sem hluti af okkar liðsheild þar.
STARFSSVIÐ:
• Greining á sölutölum og markaðsupplýsingum
• Þróa markaðsáætlanir og stýra framkvæmd þeirra
• Útbúa markaðs- og söluskýrslur
• Ábyrgur fyrir Internetsölu
• Ábyrgur fyrir markaðssamskiptum við viðskiptavini
og samstarfsaðila
• Útbúa auglýsingaáætlanir
HÆFNISKRÖFUR:
Við leitum eftir kraftmiklum og áhugasömum einstaklingi með
háskólamenntun í markaðs- og sölufræðum. Viðkomandi þarf að
hafa frumkvæði og brennandi áhuga á að ná góðum árangri í
starfi. Hér er um krefjandi og spennandi starf að ræða í heimi
ferðamála og alþjóðlegrar markaðssetningar. Reynsla í ferðamálum
og markaðs- og sölumálum er æskileg. Mjög góð tölvu- og
enskukunnátta er skilyrði. Hér er um framtíðarstarf að ræða og þarf
viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst. Umsækjendur þurfa að
vera reiðubúnir að flytjast milli starfa og vera tilbúnir í mikil ferðalög.
VILT ÞÚ MÓTA FRAMTÍÐINA MEÐ OKKUR?
Skriflegar umsóknir óskast
sendar inn á veffang Icelandair
www.icelandair.is/umsokn
eigi síðar en 31. júlí.
ÍS
LE
N
S
K
A
A
U
G
LÝ
S
IN
G
A
S
TO
FA
N
/S
IA
.IS
IC
E
3
3
5
4
5
0
7
/2
0
0
6
SÖLU- OG MARKAÐSSTJÓRI
ICELANDAIR Í BRETLANDI
Í SKEMMTILEGU
STARFSUMHVERFI
NÆSTA VETUR?
VILTU VINNA
MEÐ BÖRNUM
Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur I Fríkirkjuvegi 11
Sími 411 5000 I Bréfsími 411 5009 I www.itr.is I itr@itr.is
FRÍSTUNDARÁÐGJAFAR
/LEIÐBEINENDUR
Á FRÍSTUNDAHEIMILUM
Til starfa óskast fólk sem hefur náð 20 ára aldri
og getur tekið að sér skapandi starf með 6–9 ára
börnum á eftirfarandi sviðum:
• List- og verkgreinum, s.s. tónlist, myndlist,
leiklist, smíði, textíl.
• Íþróttum og leikjum
• Útivist og umhverfismennt
• Barnalýðræði og lífsleikni (hópastarf,
barnafundir, vinátta og samvera)
Sveigjanlegur vinnutími og frábær reynsla fyrir fólk sem
hefur áhuga á samskiptum, uppeldi, sálfræði og skapandi
starfi. Mögulegt er fyrir áhugasama að sækja einnig um í
félagsmiðstöðvastarfi fyrir unglinga.
Hægt er að nálgast frekari upplýsingar og
sækja um störfin á heimasíðu ÍTR, www.itr.is
og hjá starfsmannaþjónustu ÍTR, Fríkirkju-
vegi 11, í síma 411 5000.
Laun eru skv. Kjarasamningi Reykjavíkurborgar við
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar.