Fréttablaðið - 23.07.2006, Síða 23

Fréttablaðið - 23.07.2006, Síða 23
ATVINNA SUNNUDAGUR 23. júlí 2006 5 Icelandair er fyrirtæki í forystu á alþjóðamarkaði í ferðaþjónustu. Við erum í öflugri sókn og sækjumst eftir einstaklingum til að taka þátt í uppbyggingu okkar á komandi árum. Icelandair er kraftmikið ferðaþjónustufyrirtæki sem tekur þátt í harðri samkeppni á alþjóðamarkaði. Icelandair er framsækið fyrirtæki, leiðandi í ferðaþjónustu á Íslandi, leiðandi í markaðssetningu á Internetinu og í fremstu röð í þróun upplýsingatækni. Starfsmenn Icelandair eru lykillinn að velgengni félagsins. Hjá Icelandair starfa um þúsund manns af mörgum þjóðernum í tíu löndum. Icelandair leggur áherslu á að starfsmenn félagsins séu þjónustusinnaðir og tilbúnir að takast á við krefjandi og spennandi verkefni í alþjóðlegu starfsumhverfi. Icelandair leggur áherslu á þjálfun starfsmanna og símenntun, hvetur starfsmenn til heilsuræktar og styður við félagsstarf starfsmanna. Icelandair er reyklaust fyrirtæki. Við erum ein áhöfn með sameiginlegt, skýrt markmið, berum virðingu fyrir viðskiptavinum og samstarfsmönnum og höfum gaman að því sem við gerum. Við leitum að öflugum starfsmanni með reynslu af sölu- og markaðsmálum, til starfa í Bretlandi sem hluti af okkar liðsheild þar. STARFSSVIÐ: • Greining á sölutölum og markaðsupplýsingum • Þróa markaðsáætlanir og stýra framkvæmd þeirra • Útbúa markaðs- og söluskýrslur • Ábyrgur fyrir Internetsölu • Ábyrgur fyrir markaðssamskiptum við viðskiptavini og samstarfsaðila • Útbúa auglýsingaáætlanir HÆFNISKRÖFUR: Við leitum eftir kraftmiklum og áhugasömum einstaklingi með háskólamenntun í markaðs- og sölufræðum. Viðkomandi þarf að hafa frumkvæði og brennandi áhuga á að ná góðum árangri í starfi. Hér er um krefjandi og spennandi starf að ræða í heimi ferðamála og alþjóðlegrar markaðssetningar. Reynsla í ferðamálum og markaðs- og sölumálum er æskileg. Mjög góð tölvu- og enskukunnátta er skilyrði. Hér er um framtíðarstarf að ræða og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst. Umsækjendur þurfa að vera reiðubúnir að flytjast milli starfa og vera tilbúnir í mikil ferðalög. VILT ÞÚ MÓTA FRAMTÍÐINA MEÐ OKKUR? Skriflegar umsóknir óskast sendar inn á veffang Icelandair www.icelandair.is/umsokn eigi síðar en 31. júlí. ÍS LE N S K A A U G LÝ S IN G A S TO FA N /S IA .IS IC E 3 3 5 4 5 0 7 /2 0 0 6 SÖLU- OG MARKAÐSSTJÓRI ICELANDAIR Í BRETLANDI Í SKEMMTILEGU STARFSUMHVERFI NÆSTA VETUR? VILTU VINNA MEÐ BÖRNUM Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur I Fríkirkjuvegi 11 Sími 411 5000 I Bréfsími 411 5009 I www.itr.is I itr@itr.is FRÍSTUNDARÁÐGJAFAR /LEIÐBEINENDUR Á FRÍSTUNDAHEIMILUM Til starfa óskast fólk sem hefur náð 20 ára aldri og getur tekið að sér skapandi starf með 6–9 ára börnum á eftirfarandi sviðum: • List- og verkgreinum, s.s. tónlist, myndlist, leiklist, smíði, textíl. • Íþróttum og leikjum • Útivist og umhverfismennt • Barnalýðræði og lífsleikni (hópastarf, barnafundir, vinátta og samvera) Sveigjanlegur vinnutími og frábær reynsla fyrir fólk sem hefur áhuga á samskiptum, uppeldi, sálfræði og skapandi starfi. Mögulegt er fyrir áhugasama að sækja einnig um í félagsmiðstöðvastarfi fyrir unglinga. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar og sækja um störfin á heimasíðu ÍTR, www.itr.is og hjá starfsmannaþjónustu ÍTR, Fríkirkju- vegi 11, í síma 411 5000. Laun eru skv. Kjarasamningi Reykjavíkurborgar við Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.