Fréttablaðið - 23.07.2006, Síða 26
ATVINNA
8 23. júlí 2006 SUNNUDAGUR
Á veturna fylla raun-
greinanemar ganga
Öskju Náttúrufræðihúss.
Nokkrir staldra við á
sumrin og fást við ýmis
verkefni.
Líffræðingar nýta sumrin
vel til rannsókna. Oftar en
ekki þurfa þeir á aðstoðar-
mönnum að halda og eru líf-
fræðinemar tilvaldir
kandídatar. Hvort sem um
er að ræða tegundagrein-
ingu, skýrslugerðir eða
erfðarannsóknir öðlast nem-
arnir dýrmæta reynslu og
fá um leið laun sem koma
sér vel þegar þrauka þarf
veturinn á lánum frá LÍN.
Saga Snorradóttir er 1.
árs nemi í líffræði en hún
hefur fengið það verkefni
að greina og lýsa áður
óþekktum krabbadýrum.
„Við fengum sent sýni frá
Fídjieyjum og nú er ég að
skoða krabbadýrin og
athuga hvort það séu nýjar
tegundr í sýninu. Við erum
búin að finna eitt sem ég hef
verið að lýsa og teikna upp
og nú þurfum við að fara að
finna nafn á það,“ segir
Saga. „Þetta er náttúrlega
svakalegt tækifæri og frá-
bær reynsla, sérstaklega
fyrir 1. árs nema.“
Í sama herbergi og Saga
situr Birna Daníelsdóttir
yfir bunka af blöðum. „Ég
er að vinna að samstarfs-
verkefni Umhverfisstofn-
unar og Háskólans sem snýr
að Vatnstilskipun Evrópu-
sambandsins. Ég meðal ann-
ars safna saman og skráset
sjávarrannsóknir sem til
eru hérlendis og eru kannski
bara að safna ryki í hillum,“
segir Birna.
Þegar farið er upp á
þriðju hæð Öskju víkja vist-
fræðirannsóknirnar fyrir
sameindalíffræði. Hvítir
sloppar, tilraunaglös, píp-
ettur og skilvindur fylla
herbergin og í miðjum hópn-
um er Lárus Viðar Lárusson
sem nú stundar masters-
nám við Háskólann í Skövde
í Svíþjóð. Hann er kominn
heim í sumar til að aðstoða
Halldór Þormar og Hilmar
Hilmarsson við rannsóknir
sínar. „Við erum að rann-
saka aðferðir til að drepa
campylobacter í kjúkling-
um með ákveðnu efni sem
kallast monocapri,“ segir
Lárus. „Til dæmis gefum
við smituðum kjúklingum
efnið í fóðri og vatni og
athugum hvort það minnki
magn campylo í kjöti.“
Vonir standa til að hægt
með þessu sé að sleppa
frystingu og annarri með-
höndlun á kjúklingaafurðum
og sparar það framleiðend-
um gríðarlegar fjárhæðir.
Þar að auki getur þetta leitt
til lengra geymsluþols
kjúklingakjöts.
Lárusi, Birnu og Sögu
líkar öllum vel við vinnuna í
Öskju. Auk þess að veita
þeim ómetanlega reynslu
líkar þeim afslappaða and-
rúmsloftið. „Maður þekkir
flesta hér og hér er afskap-
lega lítið stress,“ segir
Lárus að lokum.
tryggvi@frettabladid.is
Afslappað
andrúmsloft
Lárus, Birna og Saga vinna öll í Öskju. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
Starfandi fólki á Íslandi
fjölgaði um 7.800 á einu
ári.
Á íslenska vinnumarkaðin-
um voru alls 178.700 manns
á öðrum ársfjórðungi þessa
árs, það er að segja frá 1.
apríl til 1. júlí. Í þeirri tölu
eru allir þeir sem eru í vinnu
eða tilbúnir til atvinnuþátt-
töku á aldrinum 16 til 74
ára. Sá hópur hafði stækkað
um 9.800 manns frá sama
tímabili 2005, mest fólki á
aldrinum 25-54 ára eða um
6.300. Starfandi voru
171.600 á þessu tímabili og
hafði fjölgað um 7.800 frá
sama tíma í fyrra.
Vinnustundir hjá þeim
sem voru starfandi nú voru
að meðaltali 42,1 klukku-
stund á viku, 47,3 hjá körl-
um en 35,7 klukkustundir
hjá konum. Á sama tíma í
fyrra voru vinnustundir að
meðaltali 43,1 klukkustund,
48,6 hjá körlum og 36,4 hjá
konum.
Að meðaltali voru 7.200
manns án vinnu og í atvinnu-
leit á öðrum ársfjórðung
þessa árs, eða 4,0% vinnu-
aflsins. Mest var atvinnu-
leysi meðal fólks á aldrin-
um 16-24 ára, eða 12,7%
sem skýrist helst af því að
skólum var nýlega lokið
þegar könnunni lauk.
Heimild:www.hagstofa.is
Starfandi fólki
fjölgar
Mötuneyti
Starfmenn óskast í mötuneyti í skóla í Grafarvogi.
Um er að ræða bæði 75% og 100% störf.
Góð laun. Reynsla æskileg.
Upplýsingar eru veittar í síma 864 3747.
Járnabindingar
Kraftafl ehf. auglýsir.
Vant járnabindingateymi getur bætt við sig
verkefnum. Upplýsingar í 866-8744.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI