Fréttablaðið - 23.07.2006, Síða 56

Fréttablaðið - 23.07.2006, Síða 56
 23. júlí 2006 SUNNUDAGUR20 Vestur-íslenska kvikmyndagerðarkonan Kyja Nelson fór nýlega af landi brott eftir að hafa búið ásamt eiginmanni sínum í tæpt ár á Hofsósi þar sem hún vann að heimildarmynd um heimaslóðir langömmu sinnar. Bergsteinn Sigurðsson hitti Kyju að máli fyrir flugtak. Við dúkað eldhúsborð vestur í bæ situr Kyja Kristjana Kristjansson-Nelson, jafn smávaxin og nafnið er langt, og drekkur te. Eiginmaður hennar, Christopher Nelson, lætur sér nægja að stinga höfðinu stöku sinnum inn í eldhús til að lauma inn orði til áréttingar eða upp- rifjunar. Hann er í óðaönn við að pakka niður því daginn eftir fljúga þau aftur heim til Minne- sota eftir tæplega ársdvöl hér á landi. „Ég hlakka ekkert sérstak- lega mikið til að fara heim, er eiginlega hálf kvíðin,“ segir Kyja og hlær. „Við ætlum að búa hjá mömmu og pabba til að byrja með, áður en við finnum okkar eigin íbúð og ég var að komast að því að þau eru orðin vegan, það er algjörlega hætt að neyta nokk- urra dýraafurða. Heimilishaldið verður dálítið skrýtið býst ég við.“ Á heimaslóðum langömmu Í vetur bjó Kyja (borið fram Kæja) á Hofsósi þar sem hún vann að heimildarmynd um Vesturfara úr Skagafirði, en hún á sjálf rætur að rekja þangað. „Móðurætt afa míns er frá Skagafirði. Guðrún Sveinsdóttir, langamma mín flutti þaðan á barnsaldri en langafi, Lárus Ívar Kristjánsson, flutti frá Snæfells- nesi ásamt foreldrum sínum og systkinum. Hann þurfti að breyta ættarnafni sínu í Christianson þegar hann kom vestur um haf til að það félli betur að enskri tungu,“ segir Kyja sem breytti ættarnafni sínu aftur í Kristjans- son fyrir stuttu. Guðrún og Lárus fluttu bæði til Norður-Dakota en þangað fóru margir vesturfarar. Þar kynnt- ust þau og giftu sig þegar þau voru vaxin úr grasi. Þau eignuð- ust nokkur börn, þar á meðal afa Kyju, Theódór Elmo. „Afi lærði ekki ensku fyrr en hann var sex ára en ég held samt að hann og hans kynslóð, sem fæddist í Bandaríkjunum, hafi frekar litið á sig sem Bandaríkjamenn en innflutta Íslendinga og leitaðist við að samlagast bandarísku samfélagi sem mest þau gátu, til dæmis með því að notast bara við ensku nöfnin og tala bara ensku. Þá held ég að börnum fæstra af þessari kynslóð hafi verið kennd íslenska, sú var að minnsta kosti raunin með föður minn og frændsystkini hans. Afi barðist líka í seinni heimsstyrj- öld fyrir hönd Bandaríkjanna og það hefur sjálfsagt styrkt sjálfs- mynd hans sem Bandaríkja- manns ennþá frekar, það er að hætta lífinu fyrir „ættjörðina.“ Þegar Kyja kom í heiminn tveimur kynslóðum síðar árið 1979, hafði afi hennar fengið heilablóðfall og átti erfitt með mál. „Og þar með dó íslenskan í fjölskyldunni.“ Kyja tekur fram að þótt afi hennar hafi fyrst og fremst litið á sig sem Bandaríkjamann, hafi hann ekki gert lítið úr íslensk- um uppruna sínum. „Munurinn liggur í því að eldri kynslóðir litu á sig sem Vestur-Íslendinga en kynslóð afa míns leit á sig sem íslensk-ameríska. Banda- ríkjamenn eru ung þjóð og sjálfsmynd margra helgast af þjóðerni áa þeirra, þótt það sé liðin öld frá því þeir fluttust búferlum, og tengslin við heima- landið séu lítil eða engin. Minn- ingin um Vesturfarana var mjög sterk í Norður-Dakota þegar ég var að alast upp og þótt ég hefði hvorki komið til landsins né talaði tungumálið fannst mér ég alltaf vera íslensk í aðra röndina.“ Skiptinemi á Íslandi Það varð til þess að upp úr alda- mótum ákvað Kyja að koma til Íslands í þeim tilgangi að kynn- ast heimalandi langömmu sinnar og langafa. „Ég kom hingað sem skiptinemi og fór í Háskóla Íslands þar sem ég ætlaði að læra íslensku. Það gekk hins vegar ekki sem skyldi,“ segir hún og hlær. „Ég fékk herbergi á Gamla garði, stúdentagarðinum þar sem allir erlendu nemarnir eru settir. Íslendingarnir í hús- inu voru teljandi á fingrum ann- arrar handar. Við töluðum ensku á hverjum degi og flestir sem ég kynntist voru aðrir erlendir nemar. En þegar ég fór hafði ég hvorki náð þeim tökum á tungumálinu sem ég vildi né kynnst samfélaginu nógu mikið og vissi að ég þyrfti að koma aftur síðar.“ Sem og varð. Árið 2004 sneri Kyja aftur til Íslands, í þetta sinn með myndavél og eiginmann, og fór til Skagafjarðar þar sem hún tók upp stuttmyndina Landslag. Stuttu síðar sótti hún um og fékk styrk frá Fulbright stofnuninni til að búa á Hofsósi í einn vetur og vinna að heimildarmyndinni sem hún er að leggja lokahönd á. Undanfarin ár hefur hún búið í Fargo í Minnesota, sem er smá- bær á bandarískan mælikvarða en telur álíka marga og höfuð- borgarsvæðið á Íslandi. Hún segir það þó ekki hafa verið mikil viðbrigði að flytja í afvikið smá- þorp á Íslandi með innan við tvö hundruð íbúa. „Hofsós er frábær staður, afskaplega fallegur og fólkið gott. Valgeir Þorvaldsson, framkvæmda- stjóri Vesturfarasetursins var okkur sérstaklega hjálplegur. Ég vona að Íslendingar geri sér grein fyrir hvers lags dýrgripur hann er. Það starf sem hann hefur unnið til að koma á og rækta tengslin milli Íslands og Norður-Ameríku er ómetanlegt.“ Hofsós er frábær staður Kyja segir það hafa verið síður en svo erfitt að sannfæra Chris- topher um að koma með henni og búa í smáþorpi á Íslandi í einn vetur. „Hann var æstur í að koma með. Hann er líka jarðfræðingur að mennt þannig að Ísland er sannkallað gósenland að því leyti. Hann gerði ýmsar rann- sóknir á Þórðarhöfða og gerði meðal annars drög að kortlagn- ingu á landlögum þar. Hann lærði líka smá íslensku, meðal annars með því að þýða Fréttablaðið en útkoman var stundum býsna skondin,“ segir hún og skellir upp úr. Reyndar gat vistin á Hofsósi tekið á, að sögn Kyju, til dæmis í þau fáu skipti sem fannfergi var mikið. „Einu tengsl okkar við umheiminn og Bandaríkin voru í gegnum netið og við fengum að nota þráðlausu tenginguna á grunnskólanum á Hofsósi. Einu sinni var skólinn lokaður og ekki nokkur leið að komast inn fyrir snjóskafli og þá var ekki um annað að ræða en að dúða sig upp og sitja með fartölvuna fyrir utan í snjón- um. En þetta var mögnuð reynsla á heildina litið.“ Bakgrunnur Kyju er fyrst og og fremst í tilraunakenndri kvik- myndagerð, sem setur brag á myndina. „Myndin snýst ekki síst um upplifjun og skynjun, þannig að stór hluti af verkefninu fólst í að aðlagast daglegu lífi á Hofsósi. Mig langar til að leika mér með tengslin milli þjóðsagna, sögunnar, lands og þjóðar og hvaða áhrif þetta hefur á sjálfsmynd fólks, hvernig tíminn og minnið breytir sögunni og svo framvegis. Til dæmis skiptir sú staðreynd að fjölskyldan mín er „íslensk“ en talar ekki tungumálið heilmiklu fyrir verkefnið.“ Í myndinni ræðir Kyja meðal annars við grunnskólabörn í 1. til 4. bekk um hugmyndir þeirra um Vesturferðirnar auk þess sem hún tók myndir úr hversdagslífinu á Hofsósi, til dæmis úr Fánasauma- stofunni. Svo fórum við líka í réttir og náðum virkilega góðum mynd- um þar.“ Ætlar að koma aftur Nýlega þáði Kyja stöðu við Moorehead-háskóla í Minnesota þar sem hún kennir kvikmynda- fræði og kvikmyndaframleiðslu, en hún gerir ráð fyrir að reyna að sýna heimildarmyndina á Íslandi fljótlega eftir að hún hefur lagt lokahönd á hana og fundið sér vett- vang. „Ég vona að ég komist til baka sem allra fyrst,“ segir hún áköf. „Ég veit að ég á eftir að koma margoft hingað aftur, meðal annars til að læra íslensku almennilega.“ Hún hefur reyndar þegar fengið hug- mynd að því hvernig hún getur kost- að íslenskunámið. „Ég tók eftir því í vetur að Ísland er orðið stútfullt af listfengum milljónamæringum sem moka peningum í menningarlífið. Ég er að spá í að bjóða einum slíkum að ætttleiða mig eða gerast velgjörðar- maður minn,“ segir hún og hlær. „Heldurðu að þeir séu ekki til í það? Ég er að spá í að spyrja þennan í teinóttu jakkafötunum. Hann virkar fínn.“ Vestur-Íslendingur vill láta ættleiða sig KYJA OG CHRISTOPHER Hún segir það hafa verið lítið mál að sannfæra eiginmann sinn um að koma til Íslands og búa þar í afskekktum smábæ í einn vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGEIRU SAMBAND VIÐ UMHEIMINN Þegar ófært var í grunnskólann á Hofsósi þar sem Kyja komst í þráðlausa nettengingu lét hún sig hafa það að kíkja á tölvupóstinn úti í skafli. Ég tók eftir því í vetur að Ísland er orðið stútfullt af listfengum milljóna- mæringum sem moka peningum í menningar- lífið. Ég er að spá í að bjóða einum slíkum að ættleiða mig eða gerast velgjörðarmaður minn.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.