Fréttablaðið - 23.07.2006, Page 63
FRÉTTIR AF FÓLKI
Orðrómur hefur verið um að Katie Holmes sé með fæðingarþunglyndi
og sumum hefur þótt það grunsamlegt
að engar myndir hafa fengist
af barninu. En Leah Rim-
ini, sem er góð vinkona
Cruise og einnig í
vísindakirkjunni, segir
að allt sé í himnalagi
með mæðgurnar.
„Hún er ungbarn og
stærðin er eðlileg.
Tom og Katie
vilja bara lifa
lífinu og ala upp barnið. Þau eru ósköp
venjulegir foreldrar,“ sagði Leah við US
Weekly og bætti því við að Kaitie ljóm-
aði af hamingju. „Ég öfunda hana, hún
jafnaði sig strax eftir fæðinguna.“ Nú eru
þrír mánuðir síðan Suri litla fæddist og
hingað til hefur foreldrunum tekist að
halda henni frá sviðsljósinu.
Fregnir af því að glamúrmódelið Jordan hefði misst fóstur láku í fjöl-
miðla nýlega og var Jordan að
vonum miður sín yfir því að
slúðurblöð gerðu sér mat úr
óhamingju hennar. Jordan
og eiginmaður hennar
fréttu af fósturmissinum í
reglubundnu lækniseftirliti,
en hún var komin þrjá og
hálfan mánuð á leið. „Þau
eru bæði harmi slegin,“
sagði umboðsmaður
Jordan, en Peter og Jordan
eiga fyrir einn son.
Paris Hilton og systir hennar Nicky eru erfingjar að Hilton-hótelunum
en þær eru nú báðar að stofna eigin
hótelkeðjur. Fyrst tilkynnti Nicky um
sín áform og svo fylgdi París í kjölfarið.
„Þetta verður rosalega skemmtilegt.
Hótelin mín verða eins og Sanderson
hótelið í London, svolítið íburðarmeiri
en kúl,“ sagði Paris. „Fyrsta hótelið verð-
ur í Las Vegas. Ég elska póker og ég vinn
alltaf - ég hef spilað póker frá
því að ég var tólf ára, þegar
ég vann 15.000 dollara,“
sagði Paris. Nicky opnar
fyrsta hótelið í Miami en
það mun búa yfir sér-
stakri svítu sem hönn-
uð er af fatahönnuðin-
um Roberto Cavalli.
Hægt er að keppa í öllu og sér-
staklega þegar stjörnurnar í
Hollywood eiga í hlut. Bandaríska
tímaritið Life and Style stóð fyrir
kosningu á dögunum meðal les-
enda sinna um sætasta stjörnu-
barnið. Þar hafnaði Maddox Jolie-
Pitt, ættleiddi sonur Angelinu
Jolie og Brad Pitt, í fyrsta sætinu,
en Sean Preston, sonur Britney
Spears og Kevins Federline, náði
öðru sæti. Í þriðja sæti lenti svo
Apple, dóttir Chris Martin, söngv-
ara Coldplay, og leikkonunnar
Gwyneth Paltrow.
Kosið um sætustu
stjörnubörnin
FYRSTA SÆTIÐ Maddox Jolie Pitt var valinn sætasta stjörnubarnið af lesendum tímaritsins
Life and Style.
ANNAÐ SÆTIÐ Sean Preston, sonur Britney
Spears nýtur greinilega meiri vinsælda en
foreldrar hans um þessar myndir.
Leikararnir Matthew Fox og Josh
Holloway eru íslenskum sjón-
varpsáhorfendum að góðu kunnir
fyrir leik sinn í hinum geysivin-
sælu Lost-þáttum sem Ríkisjón-
varpið sýnir á mánudagskvöldum.
Þeir voru miklir félagar þegar
þættirnir hófust en hafa varla tal-
ast við að undanförnu. Ástæðan
mun vera sú að Matthew Fox fékk
tveggja milljóna krónu bónus á
meðan Holloway fékk ekkert.
Þegar þetta komst upp var ðHoll-
oway brjálaður og segir blaðið
InTouch að stutt hefði verið í að
slagsmál brytust út. Þá heldur
blaðið því einnig fram að Fox sé
fúll yfir því að Holloway sé vin-
sælasti leikari þáttanna að mati
áhorfenda.
Rífast um laun
og vinsældir
MATTHEW FOX Fékk 2 milljón króna bónus
sem enginn annar í þáttunum fékk.
Leikkonan Michelle Pfeiffer
hefur verið orðuð við aðalhlut-
verkið í kvikmynd sem byggð
verður á söngleiknum vinsæla
„Mamma Mia“ en hann segir frá
sögu sænsku hljómsveitarinnar
ABBA. The Daily Mail segir frá
því að framleiðandinn Judy
Craymer leggi allt undir til að
láta kvikmyndina verða að veru-
leika enda er söngleikurinn sýnd-
ur úti um allan heim við miklar
vinsældir.
Höfundar söngleiksins eru
engir aðrir en Benny Andersson
og Björn Ulvaeus, fyrrum með-
limir Abba, og hala þeir inn millj-
ónir á viku vegna leikritsins.
Aðrar leikkonur hafa einnig verið
orðaðar hlutverk í myndinni og
má þar nefna Kim Basinger,
Nicole Kidman og Meryl Streep.
Pfeiffer í Abba
MICHELLE PFEIFFER Þessi reynda leikkona
er orðuð við hlutverk í kvikmynd byggðri á
söngleiknum Mamma Mia sem fjallar um
sænsku hljómsveitina ABBA.