Fréttablaðið - 23.07.2006, Síða 64

Fréttablaðið - 23.07.2006, Síða 64
28 23. júlí 2006 SUNNUDAGUR sport@frettabladid.is Fimleikadeild Ármanns leitar að reyndum og metnaðarfullum þjálfurum fyrir næsta vetur Við deildina fer fram kraftmikið uppbyggingarstarf í áhaldafimleikum kvenna, karla og í hópfimleikum. Haustið 2006 flytur deildin í nýtt og fullkomið fimleikahús í Laugardal. Góð kjör í boði fyrir góða þjálfara, samvinnufús stjórn og frábært samstarfsfólk. Fullt starf og hlutastörf koma til greina. Upplýsingar veitir Jón Þór í netfangið jon.thor@internet.is eða í s. 893 8989. Fimleikaþjálfarar óskast! FÓTBOLTI Framherjinn Garðar Jóhannsson er búinn að skrifa undir tveggja og hálfs árs samn- ing við bikarmeistara Val en hann hefur leikið með KR undanfarin ár. Garðar fær það verkefni að leysa nafna sinn Gunnlaugsson af hólmi en hann er á leið til Svíþjóð- ar. Garðar er kominn með leik- heimild og verður væntanlega í leikmannahópi Vals í kvöld gegn Víkingi. „Það er frábært að vera kom- inn í Val. Það verður gaman að fá að spila á ný en tækifærin hafa verið af skornum skammti upp á síðkastið,“ sagði Garðar, sem náði aldrei að sýna hvað í sér býr með Vesturbæingum. „Ég tel mig hafa mikið að sanna enda fann ég mig aldrei almenni- lega hjá KR. Tíminn með KR er mér persónulega vonbrigði en vonandi gengur mér betur hjá Val og ég hef fulla trú á því að ég kom- ist í gang þegar ég kemst í betri leikæfingu og fæ aftur gleðina af því að leika fótbolta. Mér líst mjög vel á Valsliðið og það er gott að vera kominn á Hlíðarenda. Ég þurfti líka sjálfur á breytingu að halda og það er gott að endurnýja kynnin við Willum en hann fékk mig til KR á sínum tíma og mér líkaði vel að spila undir hans stjórn á sínum tíma.“ Sigurður Helgason, fram- kvæmdastjóri KR Sports, sagði kaupverð Garðars trúnaðarmál en Valur keypti Garðar af KR. Samn- ingaviðræðurnar tóku skamman tíma og gengu snurðulaust fyrir sig. Ferill Garðars með KR byrjaði ágætlega en hann lenti síðan í erf- iðum meiðslum og hefur í raun ekki fundið sig hjá félaginu síðan hann meiddist. - hbg Garðar Jóhannsson leysir nafna sinn Gunnlaugsson af hólmi: Ég þurfti á breytingu að halda FARINN Í VAL Garðar hefur leikið sinn síðasta leik fyrir KR. FÓTBOLTI Þrátt fyrir tap gegn stöll- um sínum frá Svíþjóð getur íslenska ungmennalandsliðið borið höfuðið hátt eftir árangur sinn á opna Norðurlandamótinu í Noregi. Niðurstaðan varð fjórða sætið, sem er besti árangur ungmenna- landsliðsins frá upphafi. Frammi- staða íslenska liðsins var frábær en liðið var hársbreidd frá því að spila til úrslita. Í leiknum um þriðja sætið í gær skoruðu þær sænsku snemma leiks og fengu svo vítaspyrnu sem Guð- björg Gunnarsdóttir varði glæsi- lega. „Dómararnir slógu okkur út af laginu með fáránlegri dómgæslu sem við létum fara í taugarnar á okkur, við erum kannski að gjalda þess að vera litla liðið. Þær áttu fyrri hálfleikinn en við þann seinni þar sem við gerðum allt nema að skora,“ sagði Elísabet Gunnars- dóttir, þjálfari landsliðsins, við Fréttablaðið í gær. „Við erum búnar að spila þetta mót frábærlega en heppnin var ekki með okkur. Það er ekki annað hægt en að vera svekktur þegar maður er nálægt því að ná settum árangri og það tekst ekki, en við sönnuðum fyrir sjálfum okkur að við eigum alveg heima á meðal þeirra bestu. Þrjár ef ekki fjórar bestu knatt- spyrnuþjóðir heims í kvennaflokki eru hérna á mótinu. Við erum búnar að spila fjóra leiki á átta dögum og gera þetta virkilega vel. Ég get ekki annað en verið ánægð með frammi- stöðu liðsins en ég tel án efa að hún hefði átt að fleyta okkur lengra,“ sagði Elísabet. „Við erum stolt af okkar frammistöðu en ég tel að við höfum átt meira skilið. Við verð- um bara að taka því, en að skora tíu mörk í þremur leikjum en fara ekki áfram er hálfgert grín,“ sagði þjálfarinn, en Ísland gerði meðal annars jafntefli við bandaríska liðið sem hafði unnið þetta árlega mót sjö ár í röð þar til Þjóðverjar bundu enda á sigurgöngu þess eftir sigur í úrslitaleiknum í gær. Íslenska liðið þótti spila mjög vel og hefur fengið mikið lof fyrir frammistöðu sína á mótinu. „Það gengur fólk upp að okkur á hverj- um degi og vottar okkur samúð sína að vera ekki komnar lengra en við gerðum því það hefur aldrei séð jafn sterkt íslenskt lið. Það er fólk frá öllum þjóðunum og það er stigsmunur á virðingunni sem okkur er sýnd núna, það vilja allt í einu allir tala við okkur, annað en kannski áður þegar við vorum bara litla þjóðin,“ sagði Elísabet. „Það sem við höfum lært á þessu móti er að trúa á getu okkar fyrst og fremst. Núna getum við lagt bestu þjóðirnar að velli og heilt yfir mun þetta nýtast okkur upp í A-landsliðið og á þessu móti. Við eigum auk þess klárlega besta leikmann mótsins, Margréti Láru. Hún hefur verið stórkostleg og þessi frammistaða hjá stelpunum mun opna dyr fyrir stelpur í lands- liðinu. Til að deildin heima jafnist út verða okkar bestu leikmenn að fara út í sterkari deildir,“ sagði Elísabet Gunnarsdóttir. hjalti@frettabladid.is Erum stolt af árangrinum U21 árs landslið kvenna varð í fjórða sæti á opna Norðurlandamótinu sem lauk í Noregi í gær. Ísland tapaði leiknum um þriðja sætið fyrir Svíum en getur þó unað vel við árangurinn á mótinu, sem hefur vakið verðskuldaða athygli. ÍSLENSKI HÓPURINN Stillir hér sér upp saman eftir glæsilegan sigur á Dönum í riðlakeppn- inni. Þrátt fyrir að skora tíu mörk komst liðið ekki áfram; bandarísku stúlkurnar fóru áfram þar sem þær fengu færri mörk á sig. GOLF Birgir Leifur Hafþórsson heldur áfram að gera góða hluti á Evrópsku áskorendamótaröðinni en hann keppir nú á Adamstal- vellinum í Austurríki á Man No mótinu svokallaða. Birgir Leifur var í 15. til 21. sæti eftir annan hringinn á samtals fjórum högg- um undir pari en lét mikið að sér kveða í gær. Hann byrjaði með látum og lék á 29 höggum á fyrri níu holunum þar sem hann fékk fimm fugla, einn örn og einn skolla. Hann sla- kaði örlítið á í síðari hringnum og lék hann á pari eða 35 höggum þar sem hann fékk einn tvöfaldan skolla og tvo fugla. Birgir er á meðal efstu manna fyrir loka- hringinn í dag og verður spenn- andi að sjá hvort hann nái að halda uppteknum hætti. - hþh Birgir Leifur Hafþórsson: Spilaði frábært golf í gær BIRGIR LEIFUR Hefur staðið sig virkilega vel í Austurríki og er smátt og smátt að þokast upp listann á áskorendamótaröðinni þar sem hann er nú í 105. sæti en hefur hæst verið í sæti 85. FRÉTTABLAÐIÐ/EIRÍKUR MEÐ GUÐBJÖRGU GUNNARSDÓTTUR60 SEKÚNDUR Fótbolti er... lífið. Valur er... besta lið í heimi. Íslensk kvennaknattspyrna er... á uppleið. Elísabet Gunnarsdóttir er... besti þjálfari sem ég hef haft. Að verja vítaspyrnu er... 50/50 Af hverju markið? Flottasta staðan á vellinum. Hver er skrýtnust í Val? Katrín Jóns- dóttir. Verður Valur Íslandsmeistari? Við verðum að sjá til. Efnilegasta knattspyrnukona lands- ins... Guðný Óðinsdóttir. Besta íslenska knattspyrnukona frá upphafi... Margrét Lára Viðarsdóttir, Ásthildur Helgadóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir. Myndarlegasti knattspyrnumaður- inn... Ólafur Gunnarsson, markmaður. Besti drykkurinn... Fjörmjólk. FM eða X-ið.. FM Bold and the Beautiful eða Neighbours? Klárlega Bold and the Beautiful. KÖRFUBOLTI Sigurður Ingimundar- son, landsliðsþjálfari í körfubolta, greindi frá því í viðtali sem birtist á heimasíðu alþjóða körfuknatt- leikssambandsins að íslenska liðið treysti alls ekki bara á þá Jón Arnór Stefánsson og Jakob Sig- urðsson sem taldir eru upp sem bestu menn liðsins. Íslenska lands- liðið er að undirbúa sig fyrir undankeppni Evrópumótsins og hefur æft saman frá 14. júlí. „Við erum með marga hæfi- leikaríka leikmenn í öllum stöðum en við treystum á að binda vörnina okkar saman. Við treystum ekki á einstaka leikmenn, við spilum sem ein liðsheild. Liðið tapar ekki ef Jakob eða Jón skorar ekki mikið, þannig virka hlutirnir ekki hjá okkur. Við þurfum að vera ein- beittir og tilbúnir í alla leiki í keppninni. Við vitum að við þurf- um að eiga okkar besta leik til að eiga möguleika,“ sagði Sigurður. „Við stefnum á að komast áfram, en vitum að það verður mjög, mjög erfitt. Það væri stórkostlegt fyrir íslenska körfubolta ef við kæm- umst í lokakeppnina,“ bætti lands- liðsþjálfarinn við en Ísland er í riðli með Georgíu, Finnlandi, Lúxemborg og Austurríki. - hþh Sigurður Ingimundarson: Við spilum sem ein liðsheild SIGURÐUR Landsliðsþjálfarinn telur að verkefnið framundan verði mjög erfitt. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Lyn vann íslendingaslaginn Stefán Gíslason og félagar hans í norska liðinu Lyn unnu góðan 2-1 sigur á Vål- erenga, liði Árna Gauts Arasonar. Báðir landsliðsmennirnir spiluðu allann leik- inn fyrir lið sín en Lyn er þar með komið upp í áttunda sæti deildarinnar, tveimur sætum fyrir neðan Vålerenga. > Indriði farinn frá Ipswich Indriði Sigurðsson er enn að leita sér að nýju liði á Englandi en hann fékk ekki samning hjá Ipswich þar sem hann var til reynslu í vikutíma. Indriði meiddist lítillega í æfingaleik með liðinu en hann fór til Ipswich fyrir tilstilli Hermanns Hreiðarssonar, sem mælti með landsliðsfélaga sínum. „Ég vil þakka Indriða fyrir allt sem hann lagði á sig í vikunni. Við munum þó ekki halda áhuga okkar áfram á þessu stigi,“ sagði Jim Magilton, stjóri Ipswich, á opinberri heimasíðu félagsins en Indriði var til reynslu hjá Southamp- ton áður en hann fór til Ipswich.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.