Fréttablaðið - 23.07.2006, Síða 72

Fréttablaðið - 23.07.2006, Síða 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 ������������������������������ ������������������������������ �������������� ������� ���������� ���� ������������ �������������� � Express Fer›ir, Grímsbæ, Efstalandi 26, sími 5 900 100 Fer›askrifstofa í eigu Iceland Express Nánar á www.expressferdir.is/tonleikar eða í síma 5 900 100 www.expressferdir.is/tonleikar F í t o n / S Í A F I 0 1 8 0 3 4 TÓNLIST Í PAKKA TIL LONDON EXPRESS FERÐIR TELJA Í FRÁBÆRA TÓNLEIKA Express Ferðir koma þér auðveldlega til London, Mekka tónlistarunnenda, ásamt því að útvega þér miða á hvern tónlistarviðburðinn á fætur öðrum. Madonna, Rolling Stones, Robbie Williams og George Michael eru meðal næstu viðburða á planinu hjá Express Ferðum. Innifalið í verðinu er flug, gisting í tvær nætur á glæsilegu fjögurra stjörnu hóteli að ógleymdum miða á tónleikana. Það er síðan minnsta mál að lengja ferðina ef áhugi er fyrir því. Skelltu þér strax á www.expressferdir.is/tonleikar og bókaðu næsta túr. Láttu eftir þér að hlusta á poppdrottn- inguna sjálfa á fjölmennum tónleikum þar sem stemningin er engu lík. Brottför frá Keflavík er kl. 7:15, 14. ágúst og frá London 16. ágúst kl. 20:40. Gisting á Holiday Inn Regents Park Madonna í Wembley Arena 15. ágúst Verð 69.900 kr. Að upplifa Stones á tónleikum er reynsla sem enginn ætti að neita sér um í þessu lífi, krafturinn og rokkið í sinni tærustu og upprunalegustu mynd. Þessir síungu rokkarar svíkja engan. Brottför frá Keflavík er kl. 15:50, 19. ágúst og frá London 21. ágúst kl. 20:40. Gisting á Holiday Inn Bloomsbury Rolling Stones á Twickenham Stadium 20. ágúst Verð 69.900 kr. Öll vinsælustu lögin hins eina og sanna George Michael munu hljóma á þessum tónleikum en þau hafa mörg hver skrifað sig óafmáanlega í poppsöguna. Það er ljóst að margir hafa beðið lengi eftir endurfundum við þennan einstaka diskótrylli svo það er eins gott að drífa sig til að missa ekki af þessu tækifæri. Brottför frá Keflavík 27. nóvember kl. 7:15 og frá London 29. nóvember kl. 11:30. Gisting á Holiday Inn Regents Park George Michael í Earls Court 28. nóvember Verð 69.900 kr. Söngvarinn með mögnuðu röddina heldur áheyrendum sínum heldur betur við efnið. Þetta er einstakt tækifæri til að hlýða á þennan frábæra listamann. Leiðin til London er stutt á stefnumót við Robbie Williams. Brottför frá Keflavík er 13. september kl. 15.50 og frá London 15. september kl. 20:40. Gisting á Holiday Inn Regents Park Robbie Williams á Milton Keynes Bowl 14. september Verð 69.900 kr. ��������������������� ���������� Á unglingsárum mínum bjó ég eitt ár í Bandaríkjunum. Einn vina minna þar var af gyðingaætt- um, en þegar ég spurði hann hvort hann væri gyðingur svarði hann: „Nei, ég er anarkisti.“ Í hans huga hafði orðið gyðingur merkingu sem engan veginn samræmdist því að vera anarkisti. ÞAÐ er nefnilega alls ekki aug- ljóst hvað átt er við þegar talað er um gyðinga. Fólki hættir jafnvel til að taka sér orðið gyðingur í munn án þess að gera sér grein fyrir því sjálft hvort það er að tala um þjóðerni, kynþátt, trúarbrögð eða jafnvel alþjóðastjórnmál. Þessa dagana er alveg sérstaklega mikilvægt að gera sér grein fyrir þessu til að forðast að réttlætis- kennd manns geri mann að rasista. ÉG ber mikla virðingu fyrir gyð- ingum og finnst reyndar ekki ein- leikið að ekki stærri hluti jarðar- búa skuli hafa getið af sér svona marga af helstu snillingum mann- kynssögunnar á sviði menningar, vísinda og heimspeki. Ég læt mér nægja að nefna Bob Dylan, Albert Einstein og Jesú Krist. Ég ber líka djúpa virðingu fyrir gyðingdómi, þeim fornu og göfugu trúarbrögð- um. Elstu trúarrit gyðinga voru skrifuð fyrir um 3000 árum og segja sögur sem þá höfðu varð- veist í munnlegri geymd í um 1000 ár. Til samanburðar má geta þess að Íslendingasögurnar voru ritað- ar fyrir 700 - 800 árum og segja frá atburðum sem gerðust 200 - 300 árum fyrr. Það er hreint ótrú- legt hve krónólógía sköpunarsög- unnar er lík þeim hugmyndum sem færustu vísindamenn nútím- ans gera sér um þróun lífsins á jörðinni. Hún er mun nútímalegri en sköpunarsaga norrænna manna sem þó er mun yngri. Í Gamla Testamentinu er að finna elsta þekkta mannréttindasáttmála sög- unnar. Þar er kveðið skýrt á um skyldur manna gagnvart fólki af öðrum þjóðernum og því tryggð ákveðin grundvallarréttindi, hug- myndafræði sem aðrir uppgötv- uðu þúsöldum síðar. VIÐ megum ekki rugla gyðingum og gyðingdómi saman við Ísrael. Við megum ekki gleyma sögunni og láta framferði Ísraelsríkis gera lítið úr minningu og þjáningum milljónanna sem fórust í ofsókn- um nasista. Við verðum að gæta þess að ímugustur okkar á fjölda- morðum Ísraelsmanna á óbreytt- um borgurum í Líbanon veki ekki með okkur óbeit á fólki eða trúar- brögðum sem aðeins eiga skilið virðingu okkar og samúð. Gyðingahatur

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.