Fréttablaðið - 24.07.2006, Blaðsíða 6
6 24. júlí 2006 MÁNUDAGUR
Okkar þekking nýtist þér ...www.kælitækni.is s. 440-1800
Tilboð á færanlegum loftkælitækjum
Er heitt og þungt loft á þínum
vinnustað?
*Rétt hitastig og hreint loft
*Nett og flott tæki sem sóma sér
vel hvar sem er.
*Bætir heilsuna og eykur vellíðan
og afköst starfsmanna
Verð aðeins kr. 68.765
����������������������������������������� ������������
�������������
������������
����������������
������������������������������������������������������������������
������
�������
�� ���
�
������
�
������
���
��� ��� ��
�������������� ���
��������������
�����
www.lyfja.is
- Lifið heil
ÁHRIFARÍKT BÓLGUEYÐANDI GEL
VIÐ VÖÐVA- OG LIÐVERKJUM.
Voltaren Emulgel
FÆST ÁN LYFSEÐILS
ÍS
LE
N
SK
A
AU
G
L†
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
L
YF
3
32
04
06
/2
00
6
Garðatorgi - Grindavík - Keflavík - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni - Egilsstöðum - Höfn
Fáskrúðsfirði - Seyðisfirði - Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Patreksfirði - Borgarnesi - Grundarfirði
Stykkishólmi - Búðardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Sauðárkróki - Blönduósi - Hvammstanga - Skagaströnd
Selfossi - Laugarási
Voltaren Emulgel® er notað sem staðbundin útvortis meðferð við vöðva- og liðverkjum. Lyfið má ekki bera á
skrámur, opin sár eða á exem. Varist snertingu við augu og slímhúðir, notist einungis útvortis og má aldrei taka
inn. Á meðgöngu skal ávalt leita ráða læknis eða lyfjafræðings áður en lyfið er notað. Þó skal það ekki notað á
síðasta þriðjungi meðgöngu. Lítil hætta er á ofskömmtun vegna útvortis notkunar lyfsins. Lesa skal vandlega
leiðbeiningar á umbúðum og fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
VEGABRÉF Innan nokkurra vikna
verða kynntar breyttar reglur um
biðtíma vegna nýrra vegabréfa.
Nú er gert ráð fyrir að biðtíminn
sé tíu virkir dagar, en í kjölfar
breytinganna gæti hann styst
niður í örfáa daga.
„Við stefnum að því að stytta
biðtímann talsvert, þegar við
erum búnir að vinna úr byrjunar-
vandamálum á nýju rafrænu
vegabréfunum með örflögunum,“
segir Jóhann Jóhannsson hjá Þjóð-
skrá. Í nýju rafrænu vegabréfun-
um eru margar nýjungar og stefnt
er að því að skrá á þau fingraför,
en það mun þó ekki gerast fyrr en
eftir þrjú ár. Þjóðskrá tók við
málum vegabréfa í vor þegar hún
var færð undir dómsmálaráðu-
neytið.
Engin innköllun er á vegabréf-
unum vegna breytinganna yfir í
rafrænu vegabréfin. „Það eina er
að ef fólk vill fara án áritunar til
Bandaríkjanna þarf vegabréf að
vera gefið út eftir 1. júní 1999,“
segir Jóhann. Að öðru leyti gilda
öll eldri vegabréf, eftir því sem
gildistími segir til um.
„Við erum bjartsýnir á að geta
stytt biðtímann verulega mikið,
niður í örfáa daga, en ég get ekk-
ert sagt nánar um það að svo
stöddu,“ segir Jóhann.
Áfram verður boðið upp á flýti-
meðferð á afgreiðslu vegabréfa
gegn aukagreiðslu. - sgj
Afgreiðsla vegabréfa verður hraðvirkari eftir nokkrar vikur að sögn Þjóðskrár:
Ný vegabréf á örfáum dögum
NÝJU VEGABRÉFIN Mikið hefur verið um
breytingar í afgreiðslu vegabréfa síðustu
mánuði, fyrst með rafrænu vegabréfunum
og nú með styttingu biðtíma.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
NEKTARDANS Dæmi eru um að
nektardansmeyjar séu pantaðar í
heimahús, samkomusali og á
skemmtistaði í lokuð einkasam-
kvæmi, til dæmis í steggjapartí
eða afmælisveislur. Lögreglusam-
þykktir eru óljósar varðandi rekst-
ur nektardans utan þeirra nektar-
dansstaða sem hafa leyfi fyrir
starfseminni.
Í lögreglusamþykkt Reykja-
víkurborgar stendur að þar sem
heimilt sé að sýna nektardans á
næturklúbbi skuli tryggt að sýn-
ing fari fram í rúmgóðu húsnæði
og sé sýnendum óheimilt að fara
um meðal áhorfenda. Hvers konar
einkasýningar séu óheimilar.
Einnig sé lögreglu heimilt að fara
um samkomusali og önnur húsa-
kynni sem gestir eiga aðgang að.
Brynhildur Flóvenz lögfræð-
ingur telur ólöglegt hjá nektar-
dansstöðum að leigja þjónustuna
úr húsi. „Staðirnir hafa ekki leyfi
til að selja sína starfsemi annað, til
dæmis í einkasamkvæmi og heima-
hús, því lögreglan getur ekki fylgst
með á þeim stöðum. Þær kröfur
sem eru í lögreglusamþykktinni
verður að uppfylla,“ segir Bryn-
hildur. Lögregla hefur lítið frétt
um mál af þessu tagi.
Brynhildur telur tvo aðila geta
verið brotlega í slíkum málum,
nektardansstaðinn sem leigir út
dansara og eigendur þeirra staða
sem halda veislur þar sem nektar-
dans fer fram. Kaupandi að dans-
inum brjóti hins vegar ekki af
sér.
„Það vita allir að það er mjög
sterk tenging milli vændis og
nektarstaða. Þess vegna er milli-
leið á Íslandi að leyfa nektarstaði,
en einkadans bannaður. Það eru
mörg atvik á mörkum þess lög-
lega sem hefur aldrei reynt á hjá
dómstólum,“ segir Brynhildur.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins leigir nektardansstaður-
inn Goldfinger í Kópavogi út nektar-
dansmeyjar í einkasamkvæmi.
Verð þjónustunnar mun vera 25
þúsund krónur fyrir stuttan dans.
Ásgeir Davíðsson, eigandi
skemmtistaðarins Goldfinger,
segir ekkert hæft í því að hann
hafi milligöngu um nektardans í
einkasamkvæmum. „Ég kannast
ekkert við þetta. Þetta hefur verið
gert einstaka sinnum í auglýsinga-
skyni fyrir staðinn, en við höfum
aldrei tekið greiðslu fyrir það. Ég
hef ekkert að fela og allir eru vel-
komnir til mín að skoða hvað fer
fram. Ég hef verið hreinskilinn
með mín mál,“ segir Ásgeir.
Ekki náðist í talsmenn annarra
næturklúbba vegna málsins.
steindor@frettabladid.is
Bannað að leigja út
nektardansmeyjar
Nokkuð hefur verið um að nektardansmeyjar séu pantaðar í heimahús og á
vínveitingastaði í lokuð samkvæmi, til dæmis í steggjapartí. Lögreglusamþykkt-
ir eru óljósar varðandi þessi mál, en lögfræðingur telur athæfið ólöglegt.
NEKTARDANSMÆR Löggjöf um nektardans utan nektardansstaða er óljós að mati lögfræð-
ings, en víst er að eitthvað er um að staðirnir standi fyrir slíkri útleigu. Myndin er erlend.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
KÚABÆNDUR Reglugerð um
greiðslumark mjólkur verðlags-
árið 2006-2007 hefur verið birt.
Greiðslumark mjólkur eykst um
fimm milljónir lítra og er nú 116
milljónir lítra. Gangi allt eftir er
það mesta mjólkurframleiðsla
síðan 1978, þegar mjólkurfram-
leiðsla var 120 milljónir lítra.
Samkvæmt mjólkursamningn-
um eru beingreiðslur ársins tæpur
þrír og hálfur milljarður að við-
bættri verðtryggingu samkvæmt
vísitölu neysluverðs, miðað við að
grunnvísitala sé 230. Vísitala júlí-
mánaðar 2006 er 263,1 sem þýðir
að beingreiðslur á lítra eru að
jafnaði 34,17 krónur. - sþs
Greiðslumark mjólkur:
Eykst um fimm
milljónir lítra
KJÖRKASSINN
Hefurðu heimsótt Húsdýragarð-
inn í sumar?
Já 15%
Nei 85%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Hefurðu farið til útlanda á
árinu?
Segðu þína skoðun á visir.is
VERSLUN Forstjóri Haga vill að
skattlagning matvæla sé aðeins í
formi virðisaukaskatts og að vöru-
gjald verði fellt niður. „Ég tel að
það sé eðlilegt að skatturinn sé
tekinn bara á einum stað og það sé
virðisaukaskattur,“ segir Finnur
Árnason, forstjóri Haga. Nýlega
kom út skýrsla nefndar á vegum
forsætisráðherra um orsök hás
matvælaverðs. Nefndin kemst að
þeirri niðurstöðu að matarreikn-
ingur meðalfjölskyldu geti lækk-
að um allt að 130.000 krónur ef
farið verði að öllum tillögum henn-
ar.
Til glöggvunar er dæmi um
skattlagningu strásykurs þar sem
eitt kíló af sykri er skattlagt um
112 prósent. Innkaupsverðið
ásamt flutningskosntaði er 35
krónur en síðan leggur ríkið á 30
króna vörugjald og 14 prósenta
virðisaukaskatt. Sykurpokinn
kostar þá 74 krónur ef gert er ráð
fyrir engri álagningu.
Finnur segir að yfirvöldum sé
algjörlega frjálst að lækka tolla á
matvöru og telur einnig mikilvægt
að samræma virðisaukskattsþrep-
in þar sem stór hluti matvöru sé
skattlagður um 24,5 prósent. Hann
vonast til þess að stjórnvöld fari
að tillögum nefndarinnar og lækki
þar með matarreikning lands-
manna. - gþg
Forstjóri Haga fagnar útkomu skýrslu um matvælaverð:
Vill einfalda skattlagningu
FINNUR ÁRNASON, FORSTJÓRI HAGA Segir
matvöru vera margskattlagða og vill að
vörugjald verði fellt niður.