Fréttablaðið - 24.07.2006, Blaðsíða 54
Leikkonan Alicia Silverstone lét
sig engu varða þó kjaftasögur
gengu um að hún væri lesbía.
Ástæða þess var sú að hún vildi
halda ástarævintýri sínu með
Chris Jarecki fyrir sig. Alicia lét
því sem hún tæki ekki eftir því að
fréttir birtust í fjölmiðlum um að
hún væri lesbía. Alicia og Chris
gengu í hjónaband fyrir ári síðan
eftir að hafa hist á laun um nokk-
urt skeið. Fram að því höfðu fjöl-
miðlar furðað sig á því að hún
væri ekki orðuð við neina heita
piparsveina eða sæist á stefnu-
mótum. Þess vegna fóru kjafta-
sögurnar af stað.
„Ég hitti Chris fyrst þegar ég
var tvítug,“ segir Alicia, sem í dag
er 29 ára. „Við byrjuðum ekki
saman fyrr en löngu seinna því ég
var svo upptekin við að leika í
kvikmyndum. Síðar uppgötvaði ég
að hann væri besti maður sem ég
hefði nokkurn tímann hitt og að ég
myndi eflaust aldrei hitta annan
slíkan. Þegar hlutirnir gerðust svo
vildum við ekki auglýsa samband-
ið í fjölmiðlum. Þannig er ég bara
þegar kemur að einkalífi mínu,“
segir Alicia, sem sér ekki eftir
neinu.
Lét sem hún væri lesbía
ALICIA SILVERSTONE Leyndi sambandi sínu
við núverandi eiginmann sinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
ULTRAVIOLET kl. 4.50, 8 og 10.10 B.I. 12 ÁRA
OVER THE HEDGE ÍSL. TAL kl. 3, 5 og 7
OVER THE HEDGE ENSKT TAL kl. 3, 5, 7, 9 og 11
SÝND Í LÚXUS ENSKT TAL kl. 3, 5, 7, 9 og 11
STICK IT kl. 3, 5.30, 8 og 10.20
CLICK kl. 9 B.I. 10 ÁRA
RAUÐHETTA ÍSL. TAL kl. 3
ULTRAVIOLET kl. 5.50, 8 og 10.10 B.I. 12 ÁRA
THE BENCHWARMERS kl. 6, 8 og 10 B.I. 10 ÁRA
CLICK kl. 5.30, 8 og 10.30 B.I. 10 ÁRA
DA VINCI CODE kl. 6 og 9 B.I. 14 ÁRA
STICK IT kl. 8 og 10
STAY ALIVE kl. 8 og 10 B.I. 16 ÁRA
THE BENCHWARMERS kl. 6 B.I. 10 ÁRA
CLICK kl. 6 B.I. 10 ÁRA
!óíbí.rk004
Gildir á allar sýnin
gar í
Regnboganum me
rktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
50.000
MANNS
BYGGÐ Á VINSÆLUSTU BÓK Í HEIMI!
Blóðstríðið er hafið!
Milla Jovovich í mögnuðum
Sci-Fi spennutrylli!
ÓVÆNTASTA,
KYNÞOKKAFYLLSTA
OG SKEMMTILEGASTA
GRÍNMYND ÁRSINS
FRÁ HÖFUNDI BRING IT ON
Í Gróttu á Seltjarnarnesi er nú
rekið kaffihús í tengslum við sýn-
inguna Eiland. Kaffihúsið er til
húsa í Fræðasetrinu og er þar
hægt að fá vöfflur, kaffi og kakó.
„Við verðum líka með súpu og
brauð með hummus á kvöldin og
aðra smárétti,“ segir rekstrar-
stjórinn Sigríður Stella Guð-
brandsdóttir. Hún segir að flestir
þeir sem leggi leið sína út í Gróttu
til þess að skoða sýninguna komi
við á kaffihúsinu en þar er bæði
hægt að sitja úti og inni. „Það er
mjög kósý stemning hjá okkur. Við
erum með húsgögn frá Góða hirð-
inum og svo spilum við bara
íslensk sixtíslög með Ellý Vil-
hjálms og fleirum,“ segir Sigrður
Stella. Ellý fær þó af og til hvíld
frá fóninum því á kaffihúsinu
verða líka reglulega ýmsar tón-
listaruppákomur. Þannig lék
nýlega kontrabassaleikari úr Sin-
foníuhljómsveitinni á kaffihúsinu
og fleiri uppákomur eru fyrirhug-
aðar á kvöldin. Kaffihúsið verður
starfrækt jafnlengi og sýningin
Eiland er í gangi eða til 20. ágúst.
„Opnunartímar fara eftir flóða-
töflum. Við erum með gjallarhorn
sem við köllum í til að láta fólk
vita þegar farið er að falla að.“
Nánari upplýsingar um sýninguna
og opnunartíma hennar er hægt að
fá á heimasíðunni www.eiland.is
Kósy kaffihús í Gróttu
NÝTT KAFFIHÚS Kaffihúsið í Gróttu er opið til 20. ágúst. Sigríður Stella ber þar fram bæði
súpur og sætabrauð.
Hundrað og tuttugu Pólverjar,
glaðir og reifir Rússar og fjöldi
annarra af erlendu og innlendu
bergi brotnu mættu í hvalaskoðun-
arferð Alþjóðhúss á fimmtudags-
kvöld, en alls fóru 330 manns í
ferðina. „Þetta var mjög sérstakt,
magnað að vera með fólki af svo
fjölbreyttu þjóðerni og allir með
bros á vör,“ segir Helga Ólafsdótt-
ir, starfsmaður Alþjóðahúss.
Auk fjörutíu Íslendinga var
mætti fólk frá Georgíu, Palestínu,
Grænhöfðaeyjum, Danmörku,
Bretlandi, Perú, Finnlandi, Portú-
gal, Brasilíu, Japan, Kína, Banda-
ríkjunum, Litháen, Tyrklandi,
Spáni, Taílandi, Filippseyjum,
Kenýa, Níkaragua og fleiri löndum
og virtust tungumálaerfiðleikar
engin áhrif hafa á gleði bátsmanna.
Fjölmargir höfrungar létu sjá sig
við mikinn fögnuð en lítið sást af
hvölum. „Þetta var mikið ævintýri
því margir hafa aldrei farið í hvala-
skoðun. Allir voru úti á dekkinu og
það var mjög gaman að sjá litlu
höfrungana hoppa og skoppa,“
segir Helga, en bátarnir voru á
vegum Hafsúlunnar og Eldingar,
sem tóku vel í að aðstoða Alþjóða-
húsið og voru með tilboð á barnum
svo ekki vantaði drykkina.
Höfrungar skemmta þrjú
hundruð innflytjendum
GENGIÐ UM BORÐ Ístak splæsti rútu á
sitt fólk og stórir hópar komu frá öðrum
fyrirtækjum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ELDING OG HAFSÚLAN Hvalaskoðunarferðin var hluti af vikulegri dagskrá Alþjóðahúss, sem
stendur fyrir uppákomum á fimmtudögum til að hrista saman ínnflytjendur og Íslendinga.
STEMNING Í BÁTUNUM Hvalaskoðunarferð-
in þótti takast mjög vel þrátt fyrir að lítið
hefði sést af hval.
GÓÐ MÆTING Hópurinn gekk fylktu liði frá
Alþjóðahúsi niður að bryggju.
Aðstandendur þriðju kvikmyndar-
innar um sjóræningjana á Karíba-
hafinu óttast að Keith Richards
gæti slasast í tökum en gítarleik-
ari Rolling Stones hefur ákveðið
að leika föður Jack Sparrow í
næstu mynd. Richards féll niður
úr kókostré í apríl þegar hann var
í fríi á Fídjieyjum og segir leik-
stjórinn Gore Verbinski að ein-
hver atriði gætu reynst honum
erfið en Richards þarf að klifra
upp í mastur á sjóræningjaskipi.
„Fyrir mann sem féll úr kókos-
hnetutré gætu þessi skref orðið
smá vandamál,“ sagði leikstjórinn
en Pirates of the Caribbean: Dead
Man‘s Chest hefur slegið í gegn
um allan heim að undanförnu og
er væntanleg til sýningar hér á
landi í þessari viku.
Richards gæti slasast
KEITH RICHARDS Leikur pabba Jack
Sparrow í þriðju myndinni um sjóræn-
ingjana á Karíbahafinu. Leikstjóri myndar-
innar óttast um heilsu hans.