Fréttablaðið - 24.07.2006, Blaðsíða 58
24. júlí 2006 MÁNUDAGUR30
Dagur Tími Lið Völlur
19:15 ÍA – Kefl avík Akranesvöllur
19:15 KA – Þróttur Akureyrarvöllur
19:15 Valur – Víkingur Laugardalsvöllur
19:15 KR – ÍBV KR-völlur
8 LIÐA ÚRSLIT
Sunnudagur
23. júlí 2006
Mánudagur
24. júlí 2006
VISA-bikar karla:
VALUR-VÍKINGUR 1-2
1-0 Garðar Jóhannsson (11.), 1-1 Daníel Hjaltason
(17.), 1-2 Höskuldur Eiríksson (76.).
ÍA-KEFLAVÍK 3-4
0-1 Þórarinn Brynjar Kristjánsson (18.), 1-1 Arnar
Gunnlaugsson (36.), 1-2 Guðmundur Steinarsson,
víti (47.), 2-2 Arnar Gunnlaugsson (60.), 2-3 Guð-
mundur Steinarsson (75.), 2-4 Simun Samuelsen
(80.), 3-4 Jón Vilhelm Ákason (86.).
KA-ÞRÓTTUR 1-5
0-1 Sinisa Valdimar Kekic (17), 1-1 Sveinn Elías
Jónsson (42.), 1-2 Halldór Arnar Hilmisson (67.),
1-3 Sinisa Valdimar Kekic (73.), 1-4 Magnús Lúð-
víksson (77.), 1-5 Andrés Vilhjálmsson (82.).
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
FÓTBOLTI Þróttur tryggði sér sæti í
undanúrslitum VISA-bikarkeppn-
innar í gær með ótrúlegum sigri á
KA, 1-5, norður á Akureyri.
Jafnræði var með liðunum í
fyrri hálfleik og liðin gengu jöfn
til leikhlés og fátt sem benti til
þess að Þróttur myndi rúlla yfir
heimamenn. Um miðjan hálfleik-
inn duttu gestirnir í gírinn og í
hönd fór örugglega einar eftir-
minnilegustu fimmtán mínútur
sem hafa verið spilaðar í knatt-
spyrnuleik á Akureyri lengi.
Þróttur skoraði þá fjögur mörk
og mark Sinisa Kekic var sérstak-
lega eftirminnilegt en hann lék þá
leikmenn KA upp úr skónum áður
en hann setti boltann í netið. Magn-
aður leikur hjá Kekic, sem skoraði
tvö mörk og virðist ætla að vera
drjúgur fyrir Þróttara.
- hbg
Fjör á Akureyri:
KA steinlá
gegn Þrótti
STÓRSIGUR Á AKUREYRI Atli Eðvaldsson
stýrði lærisveinum sínum í Þrótti til stórsig-
urs gegn KA á Akureyri í gær.
FÓTBOLTI Keflvíkingar eru komnir
í undanúrslit VISA-bikars karla
eftir 4-3 sigur á Skagamönnum.
Fyrri hálfleikur liðanna í gær var
hin besta skemmtun. Heimamenn
fengu sýnu betri færi í fyrri hálf-
leik en það voru þó gestirnir sem
skoruðu fyrsta markið. Þar var að
verki Þórarinn Brynjar Kristjáns-
son sem smellti boltanum glæsi-
lega upp í samskeytin af 25 metra
færi.
Heimamenn héldu áfram að
pressa og uppskáru loksins jöfn-
unarmark þegar Arnar Gunn-
laugsson vippaði snyrtilega yfir
Ómar Jóhannsson, markmann
Keflvíkinga. Glæsilegt mark hjá
hinum spilandi þjálfara en sá sem
gegnir sama starfi hjá ÍA, bróðir
hans Bjarki, fór mjög illa að ráði
sínu þegar hann slapp aleinn í
gegn eftir frábæra sendingu Þórð-
ar en var allt of lengi að athafna
sig og Keflvíkingar náðu að bjarga
á síðustu stundu.
Það var ekki mínúta liðin af síð-
ari hálfleik þegar Igor Pesic
sparkaði í andlitið á Guðjóni Árna
Antoníussyni og Einar Örn Daní-
elsson, góður dómari leiksins,
dæmdi vítaspyrnu. Úr henni skor-
aði fyrirliði Keflvíkinga, Guð-
mundur Steinarsson, örugglega og
kom gestunum yfir á nýjan leik.
Skagamenn bitu í skaldarrend-
ur og náðu að jafna leikinn á nýjan
leik. Eftir góða sókn sendi vara-
maðurinn Dean Martin fyrir þar
sem Arnar var mættur á fjær-
stöngina á nýjan leik og í þetta
skipti skallaði hann boltann í tómt
markið og jafnaði þar með leikinn
í 2-2.
Þessi stórskemmtilegi leikur
stóð svo sannarlega undir vænt-
ingum og Guðmundur Steinarsson
kom Keflvíkingum aftur yfir
þegar hann skoraði eftir lipra sókn
þegar stundarfjórðungur lifði
leiks. Færeyingurinn Símun Samu-
elsen skoraði svo glæsilegt mark
þegar hann vippaði frábærlega
yfir Bjarka, markmann Skaga-
manna, utarlega í vítateignum.
Jón Vilhelm Ákason minnkaði
muninn í 4-3 með enn einu glæsi-
markinu þegar hann þrumaði bolt-
anum í bláhornið úr vítateignum
en það dugði ekki til og Keflvík-
ingar fóru með sigur af hólmi af
Akranesi. - hþh
Mikil dramatík í leik ÍA og Keflavíkur:
Keflavíkursigur í
æsilegum leik
FÖGNUÐUR Færeyingurinn Simun Samuelsen fagnaði marki sínu gegn ÍA með miklum
tilþrifum eins og sjá má. FRÉTTABLAÐIÐ/EIRÍKUR
FÓTBOLTI Keflvíkingar unnu Skaga-
menn 4-3 í VISA-bikar karla í gær-
kvöldi í æsilegum leik liðanna sem
var frábær skemmtun. Skaga-
menn voru mjög ósáttir við að fá
ekki dæmt mark þegar þeir sköll-
uðu að marki undir lok leiksins og
boltinn virtist fara inn fyrir lín-
una. „Hann var langt fyrir innan,
það sáu það allir, en línuvörðurinn
þorði ekki að dæma mark, það er
alveg skelfilegt,“ sagði Bjarni
Guðjónsson, leikmaður ÍA, eftir
leikinn.
Guðmundur Steinarsson, fyrir-
liði Keflvíkinga, var að vonum
glaður eftir leikinn en hann skor-
aði helming marka Suðurnesja-
liðsins. „Þetta var ekta bikarleik-
ur og ég held að það hafi allir
skemmt sér frábærlega vel, nema
kannski Skagamennirnir. Það var
boðið upp á frábær mörk og gott
spil hjá báðum liðum en munurinn
lá kannski í því að við höfðum
meira blóðbragð í munninum,“
sagði Guðmundur. - hþh
Hiti í mönnum:
Skagamenn
ósáttir
FÓTBOLTI Víkingar komust í undan-
úrslit VISA-bikarsins í gær með
því að leggja Valsmenn 2-1 á
Laugardalsvellinum. Valsmenn
þurftu að leika einum færri allan
seinni hálfleikinn eftir að Guð-
mundur Benediktsson fékk að líta
rauða spjaldið í stöðunni 1-1. Þegar
boltinn var ekki í leik féll Valur
Úlfarsson, varnarmaður Víkinga,
með tilþrifum og var Guðmundi
vísað af velli en það var Sigurður
Óli Þórleifsson aðstoðardómari
sem lét Magnús Þórisson vita af
því að Guðmundur ætti að fá rautt.
Skiljanlega voru Valsmenn mjög
ósáttir við þennan dóm enda virt-
ist þetta sárasaklaust og ekki
verðskulda brottvísun.
Þetta gerðist á 40. mínútu og
var vendipunkturinn í leiknum en
eina ógn Valsmanna í seinni hálf-
leik kom úr föstum leikatriðum.
Sigurmarkið kom þegar um
stundarfjórðungur var eftir en
það var enginn annar en fyrirlið-
inn Höskuldur Eiríksson sem skor-
aði eftir að Grétar Sigfinnur Sig-
urðsson skallaði boltann til hans
eftir horn. Höskuldur er ekki
þekktur fyrir markaskorun en
hann skoraði þó bæði mörk Vík-
inga í sigri á FH í sextán liða
úrslitum og heldur því uppteknum
hætti í bikarkeppninni.
Fjölmenni var á leiknum í gær
en athygli vakti að Garðar
Jóhannsson fór strax inn í byrjun-
arlið Vals og var ekki lengi að
stimpla sig inn því hann skoraði
fyrsta mark leiksins á elleftu mín-
útu eftir að hafa fengið langa send-
ingu fram og varnarmenn Víkings
réðu ekkert við hann. Daníel
Hjaltason jafnaði metin á
sautjándu mínútu með laglegum
skalla eftir hornspyrnu Arnars
Jóns Sigurgeirssonar.
Einum fleiri voru Víkingar betri
í seinni hálfleiknum og heldur því
bikarævintýri liðsins áfram með
þessum 2-1 sigri og undan-
úrslitaleikur á Laugardalsvelli
bíður. „Allt liðið spilaði vel að mínu
mati og við vorum kraftmiklir nán-
ast allan leikinn ef smá kafli í byrj-
un leiks er undanskilinn. Bikar-
keppnin er frábær keppni og nú
erum við búnir að leggja Íslands-
meistarana og bikarmeistarana á
útivöllum,“ sagði Magnús Gylfa-
son, þjálfari Víkings, eftir leik.
Spurður út í hina umdeildu
brottvísun Guðmundar sagðist
Magnús ekki hafa séð atvikið
nægilega vel. „Ég sá bara minn
mann detta en ef aðstoðardómari
flaggar og lætur dómara reka leik-
mann af velli hlýtur hann að hafa
séð eitthvað, hann er varla að búa
þetta til. Annars veit ég ekkert
hvað gerðist.“
elvargeir@frettabladid.is
Bikarmeistararnir slegnir
út af fersku Víkingsliði
Eftir að Víkingur sigraði Íslandsmeistarana í sextán liða úrslitum var komið að
bikarmeisturunum í gær. Sigurmarkið skoraði fyrirliðinn Höskuldur Eiríksson.
HVAÐ ERTU AÐ DÆMA, MAÐUR? Guðmundur Benediktsson sendir hér Sigurði Óla Þorleifs-
syni aðstoðardómara tóninn en Guðmundur var sendur í bað eftir ábendingu Sigurðar Óla.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON