Fréttablaðið - 29.07.2006, Side 4
4 29. júlí 2006 LAUGARDAGUR
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 28.7.2006
Bandaríkjadalur 72,85 73,19
Sterlingspund 135,38 136,04
Evra 92,33 92,85
Dönsk króna 12,375 12,447
Norsk króna 11,735 11,805
Sænsk króna 9,996 10,054
Japanskt jen 0,6301 0,6337
SDR 107,67 108,31
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
127,9599
Gengisvísitala krónunnar
HERÆFINGAR Rússneski herinn mun
ekki halda neinar flotaæfingar
nærri Íslandi nú eða síðar á þessu
ári, að sögn Victors I. Tatarintsev,
sendiherra Rússlands á
Íslandi.
„Við komumst að því í
gegnum fjölmiðla nýverið að
íslensk félagasamtök, þar
með talin Samtök herstöðva-
andstæðinga, hefðu áhyggj-
ur af því að herflotaæfingar
yrðu haldnar við Ísland, svo
við sendum inn fyrirspurn
og fengum opinbert nei-
kvætt svar í morgun frá yfirmanni
rússneska sjóhersins,“ sagði Tatar-
intsev í samtali við Fréttablaðið.
Hann sagði að þó engin bein
fyrirspurn hefði borist rússneska
sendiráðinu varðandi málið hefði
hann tekið spurninguna til sín.
„Þetta voru óbeinar
spurningar, en spurningar
samt sem áður og því
ákváðum við að leita upp-
lýsinga um málið, enda er
það réttur hvers einstakl-
ings að spyrja spurninga
sem þessara og starf
okkar að svara þeim, sér-
staklega þegar kemur að
málefnum hersins,“ sagði
Tatarintsev.
Samtök herstöðvaandstæð-
inga gagnrýndu í júní meintar
fyrirhugaðar æfingar rússneskra
herskipa í grennd við Ísland og
óttuðust félagar samtakanna að
með í för yrðu kjarnorkuknúin
farartæki og skip sem gætu verið
búin kjarnavopnum. - smk
Sendiherra Rússlands á Íslandi segir rússneska herinn ekki væntanlegan:
Engar æfingar við Ísland
VICTOR I.
TATARINTSEV
FJARSKIPTI Stjórn Og Vodafone
hefur ekki enn ákveðið hvort
úrskurði Póst- og fjarskipta-
stofnunar um skyldulækkun á
lúkningagjöldum verði áfrýjað.
Póst- og fjarskiptastofnun
hefur skyldað farsímafélögin til
þess að lækka lúkningagjöld niður
í 7,49 krónur á mínútu fyrir 1. júní
2008. Lækkunin verður í fjórum
þrepum og er fyrsta lækkunin 1.
september næstkomandi.
Forstjóri Og Vodafone greindi
frá því í gær að fyrirtækið íhugaði
að áfrýja úrskurðinum. Síminn
fagnar lækkuninni, þar sem hún
sé til hagsbóta fyrir neytendur.
- mh
Úrskurður um lækkun gjalda:
Ekki ákveðið
með áfrýjun
MS drykkjarvörur í útileguna
MS mjólkurdrykkirnir eru prótein- og kalkríkir og stútfullir
af næringarefnum. Veldu þér ískaldan mjólkurdrykk í
handhægum umbúðum í næstu verslun.
LÍBANON, AP Ísraelar fengu ekki
„grænt ljós“ á áframhaldandi
árásir á Líbanon, þótt engin niður-
staða hafi fengist á alþjóðaráð-
stefnunni um Líbanon í Róm á
miðvikudag. Þetta kom fram í máli
Adam Ereli, talsmanns utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna í gær.
Tók hann þar undir með Erkki
Tuomioja, talsmanni Evrópusam-
bandsins, sem lét sömu orð falla í
fyrradag.
Haim Ramon, dómsmálaráð-
herra Ísraels, hélt þessu hins vegar
fram á fimmtudag, enda hefur
árásum Ísraela á Líbanon ekki
linnt þó dragi nú úr mannfalli þar
sem flestir hafa flúið átakasvæðin.
Liðsmenn Hizbollah-samtakanna
svara áfram í sömu mynt og skutu
nýrri tegund öflugra sprengja á
Ísrael í gær.
Sameinuðu þjóðirnar ákváðu í
gær að færa óvopnaða alþjóðlega
eftirlitsmenn sína frá bækistöðum
sínum í Suður-Líbanon. Ákvörðun-
in var tekin eftir að Ísraelar skutu
ítrekað á bækistöðvar eftir-
litsmanna síðastliðinn þriðjudag,
þrátt fyrir ítrekuð tilmæli frá SÞ
um að hætta þeim. Fjórir eftirlits-
menn fórust í árásunum.
Talsmenn SÞ hafa farið fram á
að taka þátt í rannsókn hersins á
þeim árásum, en Dan Gillerman,
sendiherra Ísraela hjá SÞ, sagði í
gær það ekki koma til greina.
George W. Bush tilkynnti á
blaðamannafundi í Wahington í
gær að Condoleezza Rice, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, færi
aftur til Mið-Austurlanda nú um
helgina. Haft var eftir Rice að hún
ætlaði sér að koma á „varanlegu“
vopnahléi.
Átökin valda sífellt meiri usla í
alþjóðapólitík og hafa nær öll þau
ríki sem teljast til bandamanna
Bandaríkjanna, auk Evrópusam-
bandsins og SÞ, kallað eftir tafar-
lausu vopnahléi og lofað Líbanon
aðstoð.
Bandaríkjamenn hafa hins
vegar sagt að áður en til vopnahlés
komi verði að semja um varanleg-
an frið milli Hizbollah og Ísraels.
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, fundaði með George W.
Bush Bandaríkjaforseta í gær og
sagðist ætla að leita samþykktar
öryggisráðs SÞ snemma í næstu
viku á ályktun sem gæti orðið
grundvöllur vopnahlés. Blair sætir
nú auknum þrýstingi heima fyrir
um að sýna samstöðu með ESB og
SÞ, frekar en Bandaríkjunum.
Sameinuðu þjóðirnar munu
halda fund á mánudag með þeim
löndum sem gætu boðist til að
senda liðsmenn í alþjóðlegt
friðargæslulið sem sent yrði til
Líbanons. smk@frettabladid.is
Ísrael var ekki gefið
„grænt ljós“ á árásir
Sameinuðu þjóðirnar fjarlægja óvopnaða eftirlitsmenn sína úr Suður-Líbanon,
því árásir Ísraela á Líbanon halda áfram og svara liðsmenn Hizbollah enn í
sömu mynt. Talið er að á sjöunda hundrað Líbanar hafi farist í árásunum.
ÁFRAMHALDANDI ÁRÁSIR Ísraelskur hermaður ber sprengju að skriðdreka áður en sveit hans hélt inn í Líbanon í gær. Á sjöunda hundrað
Líbanar hafa farist í átökunum undanfarnar rúmar tvær vikurnar og yfir fimmtíu Ísraelar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Varðandi myndbirtingu með fréttinni
um eldri borgara á síðu 2 í blaðinu á
fimmtudaginn s.l. skal það tekið fram að
konan á myndinni tengist ekki fréttinni
á nokkurn hátt. Hún er mjög ánægð
með sitt hjúkrunarheimili sem er nálægt
fyrra heimili hennar.
ATHUGASEMD
����������������������������������
�������������
�������
����
�������� ��
���������
������
�����
���������
���������������
������
��������
��������
�������
����
������� ��
������������������
�������� ��������
�������������
�������������
�������������
���������������
���������������
�����������
�����������
�����������
���������������
���������������
���������������
���������������
��������������
�������� ����
������������������
�� ��������������������
���� ����������������
�������� ������� ������ ��
�������������������
�������������� ��
���������� ���������
���������������������
���� ��� ��������������
��������������� �����
�������� ������������
��������������������� ��
���������������������
������ ����������
������� ������
����� ��� ������������
������ ��������������
����� �������������
�����������
�����������
�����������
��������� ��������� ��
��������� �������������
������������������� �
����� �������������� ��������������� ���
��������
�� ������ �� ����������
������� �� ���
��
��
��
�� ��
��
��
��
��
��
��
�
�
�
� �
�
�
�
�
�
�
��
��
��
��
��
��
��
��
��
����
RÚSSNESKT HERSKIP Flotaæfingar eru ekki
ráðgerðar hér við land á þessu ári.
LÖGREGLUMÁL Vörubíll valt á hlið-
ina í Bakkabakka á Norðfirði um
hádegisbil í gær. Var verið að hífa
byggingarefni af palli bílsins og
varð þunginn til þess að hann valt.
Enginn var í bílnum þegar
óhappið átti sér stað en bílstjórinn
var að vinna við stjórnbúnað
kranans. Bíllinn slapp mjög vel og
var honum ekið af vettvangi þegar
hann var kominn á réttan kjöl. - öhö
Vörubíll á Norðfirði:
Féll á hliðina
Á HLIÐINNI Bíllinn var mannlaus þegar
hann valt. MYND/DANÍEL GEIR
LÖGREGLUMÁL Lögreglan í Reykja-
vík varar við erlendum karlmanni
sem reynt hefur að koma fölsuðum
evrum í umferð. Maðurinn talar
bjagaða ensku, er lágvaxinn, dökkur
yfirlitum og líklega með gleraugu.
Til hans hefur bæði sést við BSÍ í
Reykjavík og í iðnaðarhverfi í Hafn-
arfirði.
Lögreglan veit um eitt tilfelli þar
sem maðurinn bauð téðar evrur í
skiptum fyrir bifreið en af þeim við-
skiptum varð ekki. Fólk sem tekur
við evrum í viðskiptum sínum er
beðið að grandskoða útlit seðlanna
vel og láta lögreglu vita ef það verð-
ur vart við eitthvað óeðlilegt. - sh
Varað við erlendum manni:
Reynir að nota
falsaðar evrur
STJÓRNMÁL Árni M. Mathiesen fjár-
málaráðherra ætlar að leggja
fram frumvarp þegar Alþingi
kemur saman í haust til að leið-
rétta þær skerð-
ingar sem orðið
hafa á vaxtabót-
um.
Um 10.000
færri einstakl-
ingar fá vaxta-
bætur nú en í
fyrra og helsta
ástæðan er
hækkun fast-
eignamats sem nemur allt að 35
prósentum árið 2005. Greiðslur
vaxtabóta eru um 700 milljónum
lægri nú en í fyrra samkvæmt
álagningarseðlum yfirvalda en
framteljendum fjölgar þó um 2,9
prósent á milli ára. Ráðherra ætlar
að kanna hvort eðlilegt sé að
greiða dráttarvexti af þeim vaxta-
bótum sem greiddar verða. - shá
Fjármálaráðherra:
Frumvarp um
endurgreiðslur
ÁRNI M. MATHIE-
SEN
OSLÓ, AP Norskir dómstólar hafa
dæmt spænska útgerð til að greiða
rúmar 342 milljónir króna í lausn-
argjald fyrir þrjá togara sem
gripnir voru við ólöglegar þorsk-
veiðar nálægt Svalbarða fyrr í
mánuðinum. Greiðslan er innborg-
un á endanlega sekt útgerðarinn-
ar, sem verður ákveðin fyrir dóm-
stólum seinna á árinu.
Saksóknarinn í Tromsö fór
fram á 890 milljónir króna í refs-
ingu fyrir að veiða um 600 tonnum
af þorski ólöglega. Lögfræðingur
útgerðarinnar var ánægður með
útkomu mála og sagði að til stæði
að kæra norsku landhelgisgæsl-
una fyrir frelsissviptingu, eigna-
nám og ólögmæta leit, á þeim
grundvelli að fiskislóðir kringum
Svalbarða tilheyri ekki Norðmönn-
um einum. - kóþ
Úrskurður í Tromsö:
Togarar greiða
lausnargjald