Fréttablaðið - 29.07.2006, Page 8

Fréttablaðið - 29.07.2006, Page 8
8 29. júlí 2006 LAUGARDAGUR REYKJAVÍK Ármann Ármannsson 160.848.115 kr. Aðalsteinn Karlsson 132.917.861 kr. Hreiðar Már Sigurðsson 110.032.665 kr. Sigurður Helgason 92.206.665 kr. Jákup á Dul Jacobsen 92.061.383 kr. Þórarinn Elmar Jensen 87.504.752 kr. Ingunn Gyða Wernersdóttir 83.923.596 kr. Jón Ásgeir Jóhannesson 75.053.462 kr. Auður Einarsdóttir 69.611.490 kr. Jón Hjartarson 65.852.791 kr. VESTURLAND Einar S. Ólafsson, Eyja- og Miklaholtshreppi 54.186.285 kr. Jóhannes S. Ólafsson, Akranesi 48.387.511 kr. Ólafur Ólafsson, Eyja- og Miklaholtshreppi 21.533.963 kr. Viðar Björnsson, Stykkishólmi 20.091.719 kr. Hörður Sigurðsson, Stykkishólmi 20.012.148 kr. VESTFIRÐIR Ólafur Magnússon, Patreksfirði 18.958.161 kr. Guðmundur R. Guðmundsson, Drangsnesi 17.305.871 kr. Ásgeir Guðbjartsson, Ísafirði 12.384.524 kr. Jakob Valgeir Flosason, Bolungarvík 12.492.362 kr. Falur Þorkelsson, Bolungarvík 9.991.150 kr. NORÐURLAND VESTRA Ómar Ragnarsson, Blönduósi 9.821.051 kr. Ásgrímur Gunnar Júlíusson, Siglufirði 9.419.979 kr. Þórólfur Gíslason, Sauðárkróki 7.180.566 kr. Hjördís Jónsdóttir, Húnavatnshreppi 7.022.334 kr. Elías Guðmundsson, Húnaþingi vestra 6.372.180 kr. LONDON, AP Nágrannar bandaríska sendiráðsins í London saka bresk stjórnvöld um að veita þeim ekki vernd gegn hugsanlegum árásum hryðjuverkamanna. Nágrannarnir hafa bundist samtökum og krefjast þess að tveimur götum, sem sendiráðið stendur við, verði lokað. Samtök- in birtu á fimmtudag opnuaug- lýsingu í breska dagblaðinu Times og bandaríska dagblaðinu Washington Post til að leggja áherslu á kröfur sínar. Bandaríska sendiráðið tók bygginguna, sem stendur við Grosvenor Square, í notkun árið 1960. - gb Sendiráð BNA í London: Nágrannarnir segjast í hættu NORÐURLAND EYSTRA Þorsteinn Már Baldvinsson, Akureyri 16.317.087 kr. Jóhannes Sigurðsson, Akureyri 14.859.760 kr. Steingrímur Halldór Pétursson, Akureyri 10.975.777 kr. Jón Ingvar Þorvaldsson, Ólafsfirði 10.358.013 kr. Jóhannes Jónsson, Akureyri 9.608.841 kr. AUSTURLAND Elfar Aðalsteinsson, Eskifirði 78.377.661 kr. Jón H. Sigurbjörnsson, Eskifirði 21.455.621 kr. Tómas Már Sigurðsson, Egilsstöðum 8.935.546 kr. Kristín Guttormsson, Neskaupstað 8.740.532 kr. Mark Lennon Stanley, Eskifirði 7.604.525 kr. SUÐURLAND Guðmundur A. Birgisson, Ölfusi 127.494.394 kr. Pétur Kristján Hafstein, Hellu 44.788.296 kr. Ragnar Kristinn Kristjánsson, Flúðum 39.107.676 kr. Jón Sigurðsson, Bláskógabyggð 27.169.004 kr. Páll Breiðdal Samúelsson, Selfossi 21.317.566 kr. Gunnar Andrés Jóhannsson, Rangárþingi ytra 18.438.905 kr. VESTMANNAEYJAR Magnús Kristinsson 44.176.524 kr. Kristín Elín Gísladóttir 12.473.897 kr. Smári Steingrímsson 6.320.313 kr. Guðmundur Huginn Guðmundsson 6.223.011 kr. Gylfi Viðar Guðmundsson 6.006.747 kr. REYKJANES Arngrímur Jóhannsson, Mosfellsbæ, (Akureyri) 170.809.499 kr. Halldór Jón Kristjánsson, Garðabæ 94.348.461 kr. Styrmir Þór Bragason, Seltjarnarnesi 80.764.366 kr. Eiríkur Sigurðsson, Seltjarnarnesi 70.534.866 kr. Jón Sigurðsson, Seltjarnarnesi 69.275.082 kr. HÁLENDI Ferðafélag Íslands vígði á fimmtudagskvöld nýja brú yfir ána Farið sem er til móts við Ein- ifellið um einn og hálfan kíló- metra í suðvestur frá skála félagsins. Steingrímur J. Sigfússon alþingismaður fór þessa leið í fyrrasumar og sagði brúarleysið hafa bætt fjórum til sex tímum við ferðina. „Ég skrifaði um það í gestabókina við Hagavatn að það hefði gert okkur daginn tals- vert erfiðari að hafa ekki brú á þessum stað. Það er mjög erfið gönguleið þarna þegar það þarf að krækja fyrir Hagavatn og ganga upp á Hagafellsjökul en nú er hægt að fara beina leið yfir Farið með tilkomu brúarinnar.“ Steingrímur segir spennandi að fara hina leiðina fyrir þá sem vilja leggja það á sig en þægindi og öryggi fylgi því að hafa þessa brú. „Þarna verður til mjög skemmtileg gönguleið þar sem til dæmis er hægt að fara að Blá- fellshálsi, ganga með Jarlhettun- um, koma við hjá Hagavatni, fara svo yfir Farið og áfram.“ Ferðafélag Íslands hefur látið byggja þrjár brýr á Farið, tvær uppi við útfall vatnsins og aðra á klöppunum neðan útfallsins. Nýja brúin er enn neðar og í beinni leið frá skálanum að Mosaskarði. - sdg NÝJA BRÚIN Brúnni er ætlað að vera fær gangandi mönnum, vélsleðum og jafnvel hestum ef varlega er farið. MYND/SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON Ferðafélag Íslands vígði brú yfir ána Farið á fimmtudagskvöld: Ný brú skapar aukið öryggi tveir fyrir einn á a›eins 100 flús. Nissan Sunny ´91 ekinn a›eins 124.000 + Combi Camp 2000 (sá appelsínuguli). Hafa fengi› afbrag›svi›hald. Seljast saman á a›eins 100.000. Uppl‡singar í síma 844 7920. 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI ÁLAGNING Framteljendum á Íslandi fjölgaði meira á síðasta ári en dæmi eru um áður. Fjölg- unin frá árinu á undan nam 6.900 manns og stafar hún fyrst og fremst af auknum fjölda útlend- inga sem eru hér við störf. Heildarfjöldi framteljenda að þessu sinni er 241.344 og greiða þeir samtals 163,5 milljarða króna í tekjuskatt og útsvar. Er það 13 prósenta hækkun frá fyrra ári. Frá þessari upphæð dragast síðan tæpir átta milljarðar króna sem koma til útborgunar um mánaðamótin í formi vaxta- og barnabóta auk ofgreiddrar stað- greiðslu og fyrirframgreiddra skatta af tekjum síðasta árs. Greitt útsvar til sveitarfélaga á síðasta ári nam alls 77,7 millj- örðum króna og hækkar um 12,5 af hundraði frá árinu á undan. Útsvarsgreiðendur eru samtals 234.171 og álagt útsvar á hvern gjaldanda hækkar um níu prósent frá ári til árs. Reykvíkingar og Reyknesing- ar greiða hæstu meðalálagning- una en lægst er hún á Norður- landi vestra og á Vestfjörðum. Þannig koma sjö af tíu gjald- hæstu einstaklingunum að þessu sinni frá Reykjavík, tveir úr skattaumdæmi Reykjaness og einn af Suðurlandi. Arngrímur Jóhannsson, sem lengst af hefur verið kenndur við flugfélagið Atlanta, er skatta- kóngur ársins með ríflega 170 milljónir króna í heildargjöld. Næstur honum kemur Ármann Ármannsson, útgerðarmaður í Reykjavík, með liðlega 160 millj- ónir og Aðalsteinn Karlsson, sem heildverslun A. Karlsson er kennd við, er þriðji með tæpar 133 millj- ónir króna í heildargjöld. Eins og venja er liggja álagn- ingaskrár frammi hjá embættum skattstjóra um allt land í tvær vikur eða til 11. ágúst næstkom- andi að þessu sinni. Misjöfn ánægja er með þessa ráðstöfun, þannig reyndu ungir sjálfstæðis- menn að hindra aðgengi almenn- ings að skattskrám í Reykjavík í gær. ssal@frettabladid.is Skattgreiðendur sjö þúsund fleiri en 2005 Metfjölgun skattgreiðenda á síðasta ári stafar aðallega af vaxandi fjölda erlends vinnuafls hér á landi. Sjö af tíu gjaldhæstu einstaklingum landsins búa í Reykja- vík. Skattskrár eru öllum aðgengilegar til 11. ágúst næstkomandi. REYNDU AÐ HINDRA AÐGENGI AÐ SKATTSKRÁM Forystumenn Sambands ungra sjálf- stæðismanna, þeir Ýmir Örn Finnbogason og Borgar Þór Einarsson, mættu á skrifstofu Skattstjórans í Reykjavík í gær og reyndu að koma í veg fyrir aðgengi almennings að skattskránum. 10 GJALDHÆSTU EINSTAKLING- ARNIR Á ÖLLU LANDINU 1 Arngrímur Jóhannsson 170.809.499 kr. 2 Ármann Ármannsson 160.848.115 kr. 3 Aðalsteinn Karlsson 132.917.861 kr. 4 Guðmundur A. Birgisson 127.494.394 kr. 5 Hreiðar Már Sigurðsson 110.032.665 kr. 6 Halldór Jón Kristjánsson 94.348.461 kr. 7 Sigurður Helgason 92.206.665 kr. 8 Jákup á Dul Jacobsen 92.061.383 kr. 9 Þórarinn Elmar Jensen 87.504.752 kr. 10 Ingunn Gyða Wernersdóttir 83.923.596 kr. ÁLAGNING Arngrímur Jóhannsson flugmaður, oft kenndur við flug- félagið Atlanta, er sá einstakling- ur sem greiðir hæst opinber gjöld árið 2006. Samtals greiðir hann tæpa 171 milljón króna í tekju- skatt og útsvar. Arngrímur stofnaði flugfélagið Air Atlanta árið 1986 ásamt þáverandi eiginkonu sinni, Þóru Guðmundsdóttur, en hann seldi hluta af eign sinni í félaginu í fyrra þegar það varð hluti af Avion Group. Er þar að hluta til komin skýringin á því að Arngrímur greiðir jafnháa skatta í ár og raun ber vitni. Hann segir það þó enga sérstaka tilfinningu að vera skattakóngur. „Ég gerði bara mitt framtal eins og hver annar maður og velti því ekkert fyrir mér hvort ég yrði hæstur,“ segir hann og kveðst ætla að borga sína skatta eins og til er ætlast. „Endurskoð- andinn minn sagði mér frá því fyrir nokkru að þetta yrði niður- staðan og það eina sem ég vissi ekki var að ég yrði efstur,“ segir Arngrímur Jóhannsson, flugstjóri og stjórnarmaður í Avion Group. - ssal Arngrímur Jóhannsson er skattakóngur Íslands 2006: Greiðir rúmar 170 milljónir ARNGRÍMUR JÓHANNSSON FLUG- STJÓRI Átti von á að þurfa að greiða háa skatta en velti því ekki fyrir sér hvort hann yrði skattakóngur. VEISTU SVARIÐ? 1 Hver er markahæst í Landsbanka-deild kvenna í fótbolta? 2 Hvers lenskt var dagblaðið sem birti skopmyndir af Ehud Olmert? 3 Hvar fundust bækur við uppgröft nýverið? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 50

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.