Fréttablaðið - 29.07.2006, Síða 16
29. júlí 2006 LAUGARDAGUR
Benedikt Erlingsson hefur slegið í
gegn með einleik sínum Mr. Skalla-
grímsson í Landnámssetrinu í
Borgarnesi. Hann þykir fara á
kostum í hlutverki Egils Skalla-
grímssonar og hafa með frábærri
sagnamennsku endurvakið áhuga
landa sinna á ódælasta skáldi
Íslands fyrr og síðar.
Benedikt er fæddur á síðasta
degi maímánaðar árið 1969. Tví-
buri sem sagt og þykir bera þess
öll merki. Hann þekkir hvern krók
og kima leikhúss-
ins enda fæddur í
mikla leikhúsfjöl-
skyldu. Móðir
hans er Brynja
Benediktsdóttir
leikstjóri og
Erlingur Gíslason
leikari er faðir
hans. Reyndar er
sagt að Benedikt
eigi ígildi auka-
móður í Ásdísi
Benediktsdóttur,
sem var ráðskona
á heimili þeirra
hjóna og tók virk-
an þátt í uppeldi
Benedikts. Hann
er eina barn
þeirra hjóna en á
hálfbræðurna
Guðjón og Friðrik
samfeðra. Ættir
sínar rekur Bene-
dikt til Reykja-
víkur í föðurætt
en móðir hans
fæddist í Skafta-
fellssýslu. Hann
sleit barnsskón-
um í Þingholtun-
um en á sumrin
fór hann í sveit á
heimaslóðir
móður sinnar, til
bóndans á Möðru-
dal á Fjöllum. Þar
kynntist hann
meðal annars
hestamennsku,
sem hann hefur
verið hugfanginn
af allar götur
síðan. Hann er
kominn af miklu
sagnafólki og í
gegnum afa sína
og ömmur fékk
hann innsýn inn í
19. öldina og
sagnamenningu
Íslendinga, sem hefur nýst honum
vel í leikhúsinu, ekki síst í ein-
leiknum um Egil og leikritinu
Ormstungu, þar sem hann lék á
móti Halldóru Geirharðsdóttir.
Sem barn var Benedikt ljúfur
og góður, sjálfstæður og aldrei til
ama og gekk ekki í gegnum neitt
mótþróaskeið svo heitið gæti á
unglingsárunum. Þeim sem þekkja
hann ber saman um að hann sé
gömul sál og láti vel að leika forna
menn. Þótt hann sé kominn af leik-
húsfólki lá það ekki ljóst fyrir
hvað hann tæki sér fyrir hendur
að loknu stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Hamrahlíð. Foreldrum
hans fannst líklegast að hann yrði
náttúrufræðingur eða bóndi og
varð hverft við þegar þeir fréttu
það utan úr bæ að hann hefði sótt
um og komist inn í Leiklistarskóla
Íslands.
Sem leikari hefur vegur hans
legið beint upp á við og hróður
hans borist út fyrir landsteinana,
því hann hefur bæði leikið og leik-
stýrt í Svíþjóð og Danmörku,
meðal annars í sjónvarpi. Fyrir
tæpum áratug var hann að leik-
stýra í Malmö í Svíþjóð þegar
hann kynntist núverandi eigin-
konu sinni, dönsku leikkonunni
Charlotte Böving. Þau eiga saman
sjö ára dóttur að nafni Anna Rós-
hildur, en seinna nafnið er í höfuð-
ið á ömmu Bene-
dikts sem var
jógagúru. Sjálf-
ur er Benedikt
sagður andlega
þenkjandi.
Þeir sem hafa
unnið með Bene-
dikt bera honum
vel söguna og
lýsa honum sem
eðalmenni í alla
staði. Frumleiki
er hans aðall og í
honum er mikil
og jákvæð orka
sem smitar aðra
auðveldlega.
Hann er fynd-
inn, jafnvel dálít-
ill trúður í sér og
heldur stuðinu
jafnan uppi, án
þess þó að vera
yfirborðskennd-
ur því hann á
ekki síður gott
með að tala um
dýpstu hluti.
Hann talar
reyndar mjög
mikið eins og
tvíbura er siður.
Helsti löstur
Benedikts er
víst sá að hann
getur verið ótta-
legur slóði. Það
fer til dæmis
aldrei á milli
mála þegar hann
er í heimsókn
hjá foreldrum
sínum, skórnir
liggja hér, úlpan
þar, bækur á víð
og dreif og þar
fram eftir göt-
unum og hefur
hvorki foreldr-
um hans né eig-
inkonu tekist að
venja hann af þessum plagsið.
Þetta þykja þó smámunir saman-
borið við kostina, enda er hann
umhyggjusamur og ættrækinn
með eindæmum.
MAÐUR VIKUNNAR
Fæddist með gamla sál
BENEDIKT ERLINGSSON
LEIKARI
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinn-
ar - græns framboðs hefur skorað
á íslensk stjórnvöld að gera allt
sem í þeirra valdi stendur til þess
að stöðva frekari manndráp og
eyðileggingu í Líbanon og hefur
þingflokkurinn í því sambandi
minnt á að öll ríki Sameinuðu þjóð-
anna geti haft áhrif í þessu efni.
Samkvæmt ályktun SÞ númer 377
er heimilt að kalla saman
Allsherjarþing SÞ og samþykkja
þar kröfu um að hernaðaraðgerðir
verði stöðvaðar. Fyrir þessu eru
nokkur fordæmi, til dæmis þegar
Ísraelar, Bretar og Frakkar réðust
inn í Egyptaland í kjölfar þess að
Egyptar þjóðnýttu Súez-skipa-
skurðinn árið 1956.
Ályktun 377 kom upphaflega til
sögunnar árið 1950 að frumkvæði
Bandaríkjastjórnar, sem leitaði
leiða til að komast framhjá neitunar-
valdi Sovétríkjanna í Öryggisráði
SÞ. Það var reyndar Bandaríkja-
stjórn, sem nýtti sér þessa aðkomu
í Súez-deilunni vegna neitunar-
valds Breta og Frakka í ráðinu.
Ályktun 377 gengur einnig undir
heitinu Sameining í þágu friðar,
Uniting for peace. Í ályktuninni er
minnt á þá skyldu Sameinuðu þjóð-
anna og allra stofnana þeirra að
„halda uppi friði og öryggi og í því
skyni grípa til sameiginlegra ráð-
stafana“.
Þegar er þrýstingur víða um
heiminn á að ríkisstjórnir krefjist
þess að Allsherjarþing Sameinuðu
þjóðanna komi saman þegar í stað,
til þess að álykta í þessa veru. Mikil-
vægt er að Ísland hafi frumkvæði
og komi skriðunni af stað.
Nú er það Bandaríkjastjórn sem
beitir neitunarvaldi sínu í Öryggis-
ráði Sameinuðu þjóðanna og heldur
þannig verndarhendi yfir hernaði
Ísraela. Sem áður segir var öldin
önnur fyrir 50 árum, því þegar
Frakkar og Bretar beittu neitunar-
valdi sínu í Öryggisráðinu, voru
það Bandaríkjamenn sem gripu til
ályktunar 377. Allsherjarþingið
kom saman að þeirra frumkvæði
og var samþykkt krafa um að inn-
rásarherir Breta, Frakka og Ísraela
drægju sig til baka frá Egyptalandi.
Þetta hafði gríðarleg áhrif heima
fyrir í þessum ríkjum. Herirnir
hurfu á braut og í Bretlandi varð
þetta til þess að forsætisráðherr-
ann hrökklaðist frá völdum.
Yfirgnæfandi meirihluti ríkja
heims er andvígur innrás Ísraela í
Líbanon. Enginn vafi leikur á því að
meirihluti væri nú fyrir því að sam-
þykkja kröfu um að endi yrði þegar
í stað bundinn á árásir af hálfu Ísra-
ela.
Staðfest hefur verið að Ísraelar
fremja stórfelld mannréttindabrot
og stríðsglæpi í Líbanon og Palest-
ínu. Sá sem ekki gerir allt sem í
hans eða hennar valdi stendur til
þess að stöðva ódæðið er samsekur.
Það á líka við um ríkisstjórnir. Þar
með talið ríkisstjórn Íslands.
Ísland getur haft áhrif í Líbanon
UMRÆÐAN
LÍBANON
ÖGMUNDUR JÓNASSON
ALÞINGISMAÐUR