Fréttablaðið - 29.07.2006, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 29.07.2006, Blaðsíða 20
 29. júlí 2006 LAUGARDAGUR20 timamot@frettabladid.is Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og útfarir í smáletursdálkinn hér til hliðar má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs bróður okkar og mágs Heiðars Þórarins Jóhannssonar Lundargötu 10, Akureyri. Sérstakar þakkir til tónlistar- og vélhjólafólks sem heiðraði minningu Heiðars á fallegan og eftirminni- legan hátt. Jón Dan Jóhannsson Ruth Hansen Rúnar H. Jóhannsson Jónheiður Kristjánsdóttir Guðmundur Jóhannsson Eva Þ. Ingólfsdóttir og fjölskyldur. Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts okkar ástkæra Einars Sæmundssonar fyrrverandi formanns KR, Jökulgrunni 27, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deild 12G Landspítalanum við Hringbraut fyrir frábæra umönnun og vinarhug. Auður Einarsdóttir Ásbjörn Einarsson Jóna Guðbrandsdóttir Sigrún Elísabet Einarsdóttir Gunnar Guðmundsson Helga Einarsdóttir Ólafur Davíðsson barnabörn og barnabaranbörn. MERKISATBURÐIR 1836 Sigurboginn er vígður í París. 1890 Hollenski listmálarinn Vincent van Gogh deyr í Frakklandi eftir að hafa skotið sig tveim dögum áður. 1900 Umberto fyrsti Ítalíukon- ungur er ráðinn af dögum af anarkistanum Gaetano Bresci. 1934 Eysteinn Jónsson verður fjármálaráðherra 27 ára gamall þegar ríkisstjórn Hermanns Jónassonar tekur við völdum. 1957 Alþjóða kjarnorkumála- stofnunin er stofnuð. 1958 Geimferðastofnun Banda- ríkjanna er komið á fót. 1977 Þýskur bankaræningi er handtekinn í Reykjavík með 277 þúsund mörk. ALEXIS DE TOCQUEVILLE (1805-1859) FÆDDIST ÞENNAN DAG. „Yfirborð Ameríku er þakið lýðræðislegri málningu, en af og til er hægt að sjá liti gamla aðalsveld- isins koma í gegn.“ Alexis de Tocqueville var franskur stjórnmála- fræðingur. Eitt umtalaðasta hjónaband fyrr og síðar hófst á þessum degi fyrir 25 árum síðan þegar Karl Bretaprins gekk að eiga Díönu Spencer í St. Paul´s dómkirkjunni. Díana fæddist árið 1961 með blátt blóð í æðum en fjölskylda hennar bjó á landareign Elísabetar II drottningar og hún lék sér með bræðrum Karls, þeim Játvarði og Andrési, sem barn. Díana varð Lafði Díana árið 1975 þegar faðir hennar tók við jarlstign. Þegar Díana kom heim úr námi frá Sviss hóf hún störf í leikskóla og endurnýjaði kynni sín við konungsfjölskylduna. Þau Karl trúlofuðu sig í febrúar árið 1981 og giftu sig síðan hálfu ári síðar og horfðu hundruð milljónir manna á í sjónvarpsútsend- ingu. Tæpu ári eftir giftinguna fæddist þeim sonurinn Vilhjálmur sem er næstur á eftir föður sínum til þess að erfa bresku krúnuna. Um haustið 1984 fæddist þeim annar sonur, Harrý en erfiðleikar í hjónabandinu gerðu fljótlega vart við sig. Í september árið 1992 skildu þau Díana og Karl að borði og sæng en sinntu konunglegum skyldum sínum þó áfram og ólu syni sína upp í sameiningu. Skilnaðurinn gekk endanlega í gegn árið 1996 en þrátt fyrir það voru hjónin enn sem fyrr mjög í kastljósi fjölmiðlana. Díana var dáð af breskum almenningi og eftir skilnaðinn starfaði hún að ýmsum mannúðarmálum. Hún lést árið 1997 eftir að hafa lent í bílslysi í París með kærasta sínum Dodi Fayed og varð þjóð sinni mikill harmdauði. Karl giftist í ágúst í fyrra Camillu Parker Bowles en þau höfðu átt í ástarsamandi til fjöldamargra ára. ÞETTA GERÐIST 29. JÚLÍ 1981 Karl og Díana giftast Sigrún Oddsdóttir fagnar í dag fimm- tugsafmæli sínu og í tilefni af því ákvað hún að setja saman ljóðabók þar sem er að finna ljóð yfir langt tímabil, allt frá því að hún var unglingur. „Ég hafði hana nú bara svona heimatilbúna,“ segir Sigrún og hlær, „ég gerði náttúr- lega ekki ráð fyrir frekar en aðrir að einhver hefði áhuga á því að gefa út ljóð en það er aldrei að vita,“ segir Sig- rún þegar hún er spurð um það hvort hún ætli að gefa bókina út. Sigrún hefur starfað við ýmislegt í gegnum tíðina og sat meðal annars í sveitarstjórn á Vopnafirði þegar hún bjó fyrir austan. „Ég var nú bara beðin um að koma inn í það og fór í framboð, eiginlega bara strax eftir að ég kom austur, og eins og fólkið sagði, hún er varla búin að taka upp úr ferðatöskun- um,“ segir Sigrún og hlær. „Ég kenndi í mörg ár, fyrst við framhaldsskóla og síðan kenndi ég við grunnskólann á Vopnafirði og rak líka öldungadeild og kvöldskóla þar,“ segir Sigrún og bætir við að sér hafi líkað vistin vel á Austur- landi. Árið 1997 kom út barna- og fjöl- skyldusagan Vinabönd eftir Sigrúnu en hún hefur skrifað og ort frá unga aldri. „Svo hef ég verið með ljóð í tveimur bókum sem ritlistarhópur Kópavogs hefur gefið út og það er mjög virkur hópur sem hefur verið starfandi í tíu ár og við höfum gefið út þrjár ljóðabæk- ur,“ segir Sigrún. Sigrún bjó í um áratug fyrir austan en er núna flutt í Hafnarfjörð, þar sem hún segist kunna mjög vel við sig. Hún hefur kennt bæði við grunn- og fram- haldsskóla í gegnum tíðina og segir mikinn mun þar á. „Í framhaldsskóla er maður ekki að ala upp, þetta eru ein- staklingar sem eru komnir til þess að læra en í barnaskóla er maður líka mikið í uppeldishlutverki og í sam- skiptum við foreldra, það er bara mjög gaman hvort á sinn hátt.“ Í tilefni afmælisins ætlar Sigrún að gefa Söru stuðningsdóttur sinni í Níger- íu eina geit en hún hefur styrkt hana í sex ár. „Það mætti vekja athygli á því að þetta eru tæpar tvöþúsund krónur á mánuði sem maður styrkir þessi börn um og þau fá skóla og fæði og læknis- kostnað og allt greitt. Allt í einu blasir við þeim nýtt líf, það væru örugglega svo margir sem gætu bætt því við, þetta er svo lítill peningur í sjálfu sér,“ segir Sigrún og bætir því við að hana langi mjög að hitta stuðningsdóttur sína. „Ég ætla að halda dömuboð í tilefni dagsins og bjóða vinkonum, og frænk- um og mömmum og öllum stelpunum í kringum mig,“ segir Sigrún. „Ég bara vona að það verði líf og fjör eins og allt- af þegar kvenþjóðin kemur saman,“ segir Sigrún að lokum. gudrun@frettabladid.is. SIGRÚN ODDSDÓTTIR: FIMMTUG Í DAG Sendir frá sér ljóðabók í tilefni dagsins SIGRÚN ODDSDÓTTIR AFMÆLISBARN Sigrún hefur gott útsýni yfir höfnina frá heimili sínu í Hafnarfirði og segist hafa mikið yndi af því að fylgjast með skipunum og lífinu á höfninni. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Helga Margrét Sigtryggsdóttir Hlévangi, Faxabraut 13, Keflavík, lést á heimili sínu laugardaginn 22. júlí. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 1. ágúst kl. 14.00. Dagný Jóhannsdóttir Jóhann Hákonarson Erna Jóhannsdóttir Jón Sævin Pétursson Lilja Jóhannsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. 10.30 Ingibjörg Á. Johnsen, kaupmaður, Vestmannaeyjum, verður jarðsungin frá Landakirkju í Vestmannaeyjum. HITABYLGJA Hinn tíu ára gamli Csami fær sér risastóran ávaxtafrostpinna í hitabylgjunni sem geisað hefur í Evrópu undanfarið. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Jóhanna Björg Th. Ingimundardóttir frá Patreksfirði, sem lést fimmtudaginn 27. júlí á Droplaugarstöðum, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 31. júlí kl. 11:00. Þóra F. Ólafsdóttir Sigvaldi Sigurjónsson Kristbjörg Ólafsdóttir Halldór Valdín Gíslason Þórarinn Kr. Ólafsson Arnhildur Ásdís Kolbeins Guðjón B. Ólafsson Finnbjörg Skaftadóttir G. Sigurrós Ólafsdóttir Guðmundur Bjarnason 50 ára afmæli 50 ára er í dag Magnús Rúnar Magnússon rafiðnfræðingur hjá Orkuveitu Reykjavíkur til heimilis að Hesthömrum 11 í Reykjavík. ÚTFARIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.