Fréttablaðið - 29.07.2006, Síða 27
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Birgir Sigurjónsson fornbílaeigandi festi
nýlega kaup á Ford Galaxie 500 Ltd,
árgerð 1965. Birgir er mjög ánægður
með bílinn og segir hann vera í frábæru
ástandi.
„Ég fann hann á Ebay en maður þorir varla
að segja frá því,“ segir Birgir. „Mönnum
finnst það ansi djarft að taka svona stóra
áhættu því oft eru þessir bílar sem menn
eru að kaupa á Ebay algjör skrapatól. Ég
fékk hins vegar meira en 30 myndir af þess-
um bíl og því ákvað ég að taka áhættuna. Það
borgaði sig alveg.“ Bíllinn sem Birgir keypti
er í góðu ástandi enda hefur honum aðeins
verið ekið 16.000 mílur á rúmum fjórum ára-
tugum. „Það varla sér á honum, hann er
alveg eins og nýr. Það eina sem ég hef þurft
að gera er að skipta um dælur í bremsunum,
næstum því allt annað er upprunalegt.“
Birgir viðurkennir að hann setjist aðeins
undir stýrið á bílnum við góð tækifæri og
hann hafi ekki í hyggju að fara á malarvegi
á honum. „Nei ertu alveg frá þér, ekki á
svona bíl. Ég geymi hann ekki einu sinni
úti,“ segir hann hlæjandi. Aðspurður um
hvort svona bíll eyði ekki miklu bensíni
svarar hann: „Vafalaust gerir hann það, en
það er aldrei mælt á svona bílum enda eru
þeir ekki keyrðir það mikið að maður spái í
það.“
Þetta er fornbíll númer tvö hjá Birgi því
hann á fyrir annan bíl sem hann er að gera
upp um þessar mundir. „Ég er bara svo
heppinn að vera með góða aðstöðu fyrir bíl-
ana í fyrirtækinu sem ég rek og get því
geymt þá þar inni allt árið.“
valgeir@frettabladid.is
Fann fornbíl á Ebay
Birgir er að vonum ánægður með fornbílinn Ford Galaxie sem hann keypti á Ebay.FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
GÓÐAN DAG!
Í dag er laugardagurinn
29. júlí, 210. dagur ársins
2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 4.24 13.34 22.42
Akureyri 3.50 13.19 22.45
Reiknaðu út viðmiðunarverð
á bílum inni á heimasíðu
Bílgreinasambandsins, www.
bgs.is. Veldu framleiðanda, týpu,
akstur og árgerð. Heimasíðan sér
um að reikna út verð frá aldri,
akstri og afskriftum. Verðið er þó
einungis til viðmiðunar en mjög
sniðugt engu að síður.
Munið að athuga með olíu,
rúðupiss, loft í hjólbörðum og
fleira nauðsynlegt áður en haldið
er út á land. Það er ekki nóg að
vera vitur eftir á.
Borgarfjörður eystri er með
heitari svæðum landsins um
þessar mundir. Í kvöld halda
Belle & Sebastian og Emilíana
Torrini stórtón-
leika í þorpinu
og er búist við
um þúsund
gestum á
svæðið. Um
verslunar-
mannahelgina
er einnig búist
við fjölmenni á
Álfaborgar-
sjens.
Gönguhátíð í Vesturbyggð fer
fram um helgina. Hún hófst í
gær og stendur fram á sunnu-
dag. Þeir sem hafa áhuga á að
skreppa í göngu ættu að skoða
dagskrána en í boði eru stuttar
og langar gönguferðir.
ALLT HITT
[ BÍLAR FERÐIR ]
George Michael á sviði
EXPRESS FERÐIR LÁTA EKKI Á SÉR STANDA OG ÆTLA AÐ
SKELLA SÉR MEÐ GÓÐUM HÓPI Á TÓNLEIKA MEÐ GEORGE
MICHAEL Í LUNDÚNUM.
George Michael ætlar í tónleikaferð í lok þessa árs og í
nóvember mun hann koma fram í Lundúnum. Aðdáendur
kappans hafa tilefni til að hoppa hæð sína af gleði því
Express ferðir láta ekki sitt eftir liggja og
ætla að skemmta sér ærlega með fríðu
föruneyti ferðamanna í Lundúnum á
tónleikum George Michael.
Tónleikarnir, sem verða með einskonar
„best of“ sniði, verða haldnir á Earls Court
þriðjudaginn 28. nóvember.
Ferðin kostar 69.900 krónur á mann og
innifalið er flug, gisting í tvær nætur með
morgunverði og miði á tónleika George
Michael. Ef áhugi er fyrir hendi að
lengja ferðina þá er það lítið mál.
Tónleikar George
Michael verða án efa
eftirminnilegir.
Borð
H
úsgagna
Lagersala 20. - 31. júlí 9-18 virka daga10-16 laugadag Krókhálsi 10simi: 557-9510
Allt að 80% afsláttur
af útlitsgölluðum vörum
Komdu og gerðu góð kaup
Sófar og margt fleira...Rúm Skápar Speglar Púðar Nuddstólar
TORFÆRAN ER
KOSTNAÐARSÖM
Ragnar Róbertsson tekur þátt í
torfærumótum um land allt.
BLS. 3
MARAÞON Á MÚRNUM
Íslenskir hlaupagarpar ferðuðust til Kína og
hlupu eftir Kínamúrnum.
BLS. 4