Fréttablaðið - 29.07.2006, Side 30
29. júlí 2006 LAUGARDAGUR4
Umferðarstofa stefnir á að
heimsækja menntaskóla í
haust til að ræða umferðarslys
og fá til liðs við sig fórnarlömb
alvarlegra slysa til að miðla af
reynslu sinni.
„Við stefnum á að fá bæði fórnar-
lömb og sökudólga umferðarslysa,
ef svo má að orðum komast, til að
fara með okkur í skólana til að
uppfræða nemendur um það gíf-
urlega tjón sem umferðarslys geta
valdið,“ segir Einar Magnús Magn-
ússon, upplýsingafulltrúi hjá
Umferðarstofu.
Einar segir ekki mikið rætt um
þá sem slasast alvarlega í umferð-
arslysum á Íslandi í fjölmiðlum,
heldur snúist umræðan miklu
fremur um banaslys í umferðinni.
Einar vonast til þess að átakið í
haust bæti úr því og ýti af stað
ítarlegri umfjöllun um alvarleg
meiðsl. „Þótt auglýsingar beri allt-
af ákveðinn árangur er öðruvísi að
tala beint við þá sem hafa upplifað
slys af eigin raun og teljum við að
þessi nálgun eigi eftir að hafa
áhrif.“
Þess má geta að tilfellum alvar-
legra slasaðra í umferðinni hefur
fækkað á undanförnum árum á
Íslandi. Árið 2005 slösuðust 129
manns alvarlega í umferðinni, 145
árið 2003 og 164 árið 2002.
Á fyrstu sex mánuðum þessa
árs slösuðust 56 manns, miðað við
54 manns á sama tíma í fyrra. 14
manns á aldursbilinu 13-20 ára eru
í hópi hinna slösuðu, en aldurs-
dreifing er nokkuð jöfn. Af þess-
um 56 eru karlar í meirihluta eða
37 talsins.
Hæst er hlutfall ökumanna í
hópi hinna slösuðu, eða 35 manns
af 56. Næst koma farþegar sem
eru fimmtán talsins. Loks eru
fimm vegfarendur og einn hjól-
reiðamaður. roald@frettabladid.is
Fræðsla um tjón umferðarslysa
Einar Magnús Magnússon, upplýsingafulltrúi hjá Umferðarstofu, vonast til að átakið fækki tilfellum alvarlegra umferðarslysa. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Porsche stækkar
PORSCHE HEFUR OPNAÐ NÝJA 10.000 FERMETRA HÖNNUNAR- OG ÞRÓUNAR-
STÖÐ Í HEIMALANDI SÍNU ÞÝSKALANDI.
Stöðinni er ætlað að þjóna keppnisliðum Porsche sem og einstaka ökumönnum sem
keppa á bílum frá fyrirtækinu. Á svæðinu fer einnig fram þróunarvinna fyrir kapp-
akstursbíla og vonast Porshe-menn eftir betri árangri keppnisliða sinna með tilkomu
svæðisins. - tg
Stöðin er öll hin glæsilegasta.
Opið virka daga 8-18