Fréttablaðið - 29.07.2006, Page 31
LAUGARDAGUR 29. júlí 2006 5
�����
������������������������������������������������������������
�����������������������������������������������������������
����������
��������������������
������������������
��
���
��
��
��
��
�
�
�� ������������� ��������������������������� �����������
���� ������������
G L Æ S I L E G S Ý N I N G
28. - 30. júlí
um helgina milli kl. 12 og 17
Gengið inn um aðalinngang
Á sýningunni verða einnig til sýnis:
Mercedes-Benz CLS 500
Mercedes-Benz SLK 280
Mercedes-Benz ML 350
Mercedes-Benz S550
Master er komin með þessa frábæru bíla í sölu
og munum af því tilefni halda sölusýningu dagana
Breiðari, hærri og betri og fæst
í mörgum útfærslum.
Ræsir ehf. kynnir þessa dagana
nýja útfærslu af Mercedez Bens
Sprinter sendibílnum. Sprinter
hefur notið mikilla vinsælda á
Íslandi síðan hann kom fyrst í sölu
árið 1995.
Nýi Sprinterinn er byggður á
sama grunni og áður en nokkrar
breytingar hafa þó verið gerðar,
bílnum til framfara. Framrúðan
er orðin stærri og síðari en áður,
auk þess sem ökumaður situr
hærra. Hægt er að fá í hann
aðdráttar- og veltistýri og þar sem
bíllinn er hærri en áður, hvort sem
um er að ræða lágþekju eða
háþekju, er umgengni um hann
mjög þægileg. Líka fyrir hávaxna
menn.
Vörurými og bil milli hjóla-
skála hefur verið breikkað og bíll-
inn fæst bæði sjálf- og beinskipt-
ur.
Nýi Sprinterinn verður eins og
sá eldri fáanlegur í ótal útfærsl-
um, fjórum lengdum, þremur
topphæðum, sem sendibíll eða
grindarbíll undir pall eða vöru-
kassa, og sem slíkur með einföldu
húsi eða vinnuflokkahúsi. Enn
fremur verður hann fáanlegur í
ýmsum burðarflokkum upp í yfir
fimm tonna heildarþyngd, og á
einföldum eða tvöföldum hjólum
að aftan eftir því sem við á.
Ræsir kynnir nýjan Sprinter
Nýr Sprinter er meðal annars með stærri og síðari framrúðu og breiðara vörurými.
Litla ítalska undrið kemur enn
á óvart.
Stjórnendum breska tímaritsins
og sjónvarpsþáttarins Top Gear
virðast engin takmörk sett hvað
varðar hugmyndaflug og gaman-
semi. Nýlega settu þeir saman
lista yfir bíla sem þeim fannst
bera af í kynþokka.
Það kom kannski fáum á óvart
að finna á listanum bíla á borð við
Aston Martin DB, BMW M1 og
Rolls-Royce Phantom á listanum
en sá bíll sem endaði í efsta sæti
hlýtur að vera einhvers staðar á
Woody Allen slóðum kynþokkans,
Fiat 500.
Hugsanleg skýring er sú að fer-
ómón sé að finna í útblæstri þessa
litla bíls en James May, ritstjóri
Top Gear, segir að bíllinn „gefi
engar yfirlýsingar um eigandann,
nema að hann þurfi ekki að þykj-
ast eitt eða neitt,“ og það er greini-
lega mjög kynþokkafullt – að
minnsta kosti á þeim bænum.
Þessi útnefning kemur á besta
tíma fyrir Fiat sem er að undirbúa
nýja og uppfærða útgáfu af 500
fljótlega. Meðal Íslendinga sem
fylla kynþokkafullan hóp Fiat 500
eigenda má nefna Dag Kárason og
Ómar Ragnarsson.
KYNÞOKKAFYLLSTU BÍLAR HEIMS, AÐ
MATI STJÓRNENDA TOP GEAR:
1. Fiat 500.
2. Aston Martin DBS.
3. Maserati Quattroporte.
4. Chevrolet Camaro.
5. Citroen C6.
6. Lincoln Continental.
7. Bentley Continental S1 Fastback.
8. BMW M1.
9. Rolls-Royce Phantom.
10. Sally, Porsche 911 Carrera í teikni-
myndinni Cars.
Kynæsandi
bifreiðar
Lítill og sætur? Stjórnendur Top Gear héldu
vart vatni yfir þessu kyntrölli.
Þriggja ára samkomulag undir-
ritað á fimmtudaginn var.
Síðastliðinn fimmtudag undirrit-
uðu Williams Formúlu 1 keppnis-
liðið og Toyota Motorsport þriggja
ára samkomulag sem felur í sér að
Toyota vélar verða í öllum For-
múlu 1 bílum Williams frá og með
árinu 2007.
Í samkomulaginu er kveðið á
um að vélauppstillingin verði sú
sama og í bílum Panasonic Toyota
liðsins. Frank Williams, forsprakki
Williams-liðsins, lét við það tæki-
færi hafa eftir sér að með sam-
komulaginu væri lagður horn-
steinn að leið liðsins í
heimsmeistarasætið.
„Toyota er virtur og merkilegur
risi í bílaiðnaðinum og hefur á sér
einstaklega gott orð fyrir að ná
sínum markmiðum. Við erum stolt
af því að hafa tryggt okkur sam-
vinnu þeirra í viðleitni við að bæta
árangur okkar,“ sagði Williams.
Williams með
Toyotu vél
Mark Webber og félagar munu frá og með
næsta keppnistímabili keyra með Toyotu
vélar í bílum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM