Fréttablaðið - 29.07.2006, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 29.07.2006, Blaðsíða 32
[ ]Það er skemmtileg tilbreyting að skella sér til Viðeyjar. Nú er hægt að fara fyrir 1.100 krónur og innifalið er vaffla með kaffinu á Viðeyjarstofu. Um miðjan maí síðastliðinn lagði vaskur hópur leið sína alla leið til Kína í þeim tilgangi að hlaupa maraþon á hinum víðfræga Kínamúr. Pétur Ingi Frantzson, maraþonhlaupari og íþróttaþjálfari, var með í för og sagði hann ferðina hafa heppnast fullkomlega. Maraþon á Kínamúrnum er árlegur viðburður og flykkist fólk hvaðan- æva að úr heiminum til að taka þátt. Að þessu sinni voru 25 Íslendingar sem fóru út á vegum Bændaferða og tóku þátt í þessu skemmtilega hlaupi. Á maraþondeginum er hluti múrsins lokaður af fyrir hlaupar- ana. Mismunandi lengdir eru í boði, heilt maraþon, semu eru 42 kíló- metrar, hálft maraþon og einnig var hægt að hlaupa fimm eða tíu kílómetra. „Í upphafi ferðar fórum við upp á múrinn til að skoða leið- ina sem átti að hlaupa. Þá smituð- ust þeir sem ætluðu ekki að hlaupa og skráðu sig í fimm og tíu kíló- metra hlaup. Stemningin var svo góð að allir vildu taka þátt,“ segir Pétur Ingi Frantzson, íþróttaþjálf- ari og maraþonhlaupari af lífi og sál. „Í ferðinni var bæði hlaupahóp- urinn minn, Laugaskokk, og einnig var hlaupahópur frá Selfossi og ein hjón.“ Maraþonið sjálft hófst svo 20. maí. Alls hlupu um 900 manns í maraþoninu á misjöfnum vega- lengdum og af þeim hlupu um 500 manns í heilu maraþoni. „Dagurinn var hreint út sagt frábær,“ segir Pétur. „Veðrið var æðislegt, það var eins og hitinn hefði verið skrúfaður niður meðan hlaupið stóð yfir. Við hlupum upp á múrinn og eftir honum nokkra kílómetra. Svo ligg- ur leiðin niður aftur og út á sveita- veg og í bakaleiðinni er aftur hlaup- ið upp á múrinn og á þessum tíma eru næstum eingöngu maraþon- hlauparar á múrnum.“ Pétur segir hlaupið vera afar krefjandi en hópurinn hafi gefið sér góðan tíma til að njóta ferðar- innar um leið. „Þetta er krefjandi. Á hlaupaleiðinni eru um 3.500 tröppur sem þarf að glíma við og eru þær mjög misjafnar að hæð. Ein er kannski fjörutíu sentimetrar meðan sú næsta er tíu sentimetrar. Þess vegna þurfti maður að vera sífellt vakandi fyrir næsta skrefi. Mér fannst þetta mikið afrek og upplifunin var ógleymanleg. Við reyndum að halda hópinn, hlupum með íslenska fánann með okkur og nutum þess í botn að taka þátt í þessu. Við vorum ekkert að stressa okkur á tímanum og reyndum að stoppa sem oftast til að njóta útsýn- isins og njóta þess að vera þarna.“ Einn af meðlimum Laugaskokks er Rögnvaldur Bergþórsson en hann þjáist af geðklofa. Pétur hefur verið Rögnvaldi innan handar í um tólf ár og segir Pétur félagsskapinn og hreyfingu hafa gert Rögnvaldi gott. „Bara með hreyfingunni einni saman hefur Rögnvaldi tekist að minnka lyfjainntökuna sína um helming og það eitt er dæmi um hvað hægt er að gera fyrir fólk sem glímir við þennan sjúkdóm. Rögn- valdur hefur hlaupið um sautján maraþonhlaup með Laugaskokki og ferðast með okkur víða um heim. Þrátt fyrir lofthræðslu lét hann sig hafa það að hlaupa á Kínamúrnum og stóð sig alveg frábærlega,“ segir Pétur. Að loknu hlaupi var slegið upp myndarlegri galaveislu á Peking- hótelinu sem er eitt elsta og virt- asta hótel Kínverja. Pétur segir alla umgjörðina, bæði af hálfu Bænda- ferða og aðstandenda hlaupsins, hafa heppnast frábærlega en þátt- taka í Kínamúrsmaraþoninu er orðin fastur liður hjá Bændaferð- um ár hvert. Þegar Pétur er spurð- ur hvort hann ætli sér að hlaupa Kínamúrinn aftur hlær hann dátt og segist nú þegar vera búinn að fá einn til að fara með sér í maí á næsta ári. johannas@frettabladid.is Maraþon á múrnum Íslensku maraþonhlaupararnir héldu hópinn á múrnum og hlupu með íslenska fánann í farteskinu. Tíminn skipti þau minna máli og reyndi hópurinn að njóta fagurs útsýnis samhliða skokkinu. MYND KRISTJÁN SVEINSSON Kínamúrshlaupið reynir mikið á enda eru um 3.500 tröppur á hlaupaleiðinni. MYND KRISTJÁN SVEINSSON Íslenski hópurinn náði vel saman og heppnaðist ferðin frábærlega. MYND KRISTJÁN SVEINSSON Hlaupafélagarnir Pétur Ingi Frantzson og Rögnvaldur Bergþórsson fyrir framan hliðið inn í Forboðnu borgina í Peking. MYND KRISTJÁN SVEINSSON Stærsta töskuverslun landsins Skólavörðustíg 7, Rvk, Sími 551 5814 kr. 1.950,- kr. 1.950,- kr. 3.700,- kr. 1.900,- Töskur í ferðalagið ������������������������������ ������������������������������ �������������� ������� ���������� ���� ������������ �������������� �
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.