Fréttablaðið - 29.07.2006, Side 33
LAUGARDAGUR 29. júlí 2006 7
Á dögunum fór hópur Íslend-
inga í gönguferð á vegum
ÍT ferða um Balkanfjöllin í
Búlgaríu.
Hjördís Hilmarsdóttir var skipu-
leggjandi ferðarinnar en að hennar
sögn er þetta í fyrsta sinn sem
íslenskur gönguhópur gengur á
þessum slóðum. „Búlgararnir í
skálunum höfðu aldrei hitt Íslend-
inga áður svo ég er nokkuð viss að
við séum þau fyrstu,“ segir Hjör-
dís.
Búlgarar eru almennt aftarlega
á merinni hvað varðar túrisma. „Að
fara á þetta svæði var eins og að
fara 40 ár aftur í tímann,“ segir
Hjördís. „Þeir eru einfaldlega enn
að koma undan kommúnismanum.“
Þó svo að þróunin í ferðaiðnaðinum
sé skammt á veg komin er öll þjón-
usta fyrsta flokks. Hvert sem komið
var var fólkið kurteisin uppmáluð.
Svanhvít Antonsdóttir var í
gönguhópnum og hún tekur undir
það að þjónustan hafi verið góð.
„Allar máltíðir voru þrírétta og
fólkið var afar vinalegt,“ segir
Svanhvít. Hún rómar einnig fegurð-
ina á gönguleiðunum en játar að
gistiaðstaðan beri það með sér að
vera 40 árum eftir samtímanum.
„Einn gististaðanna var frekar
rakur og lítt lystugur, en hinir voru
fínir,“ segir Svanhvít. „Nokkra
þeirra var líka nýbúið að gera
upp.“
Önnur ferð er fyrirhuguð á sömu
slóðir 31. ágúst og geta áhugasamir
sett sig í samband við ÍT ferðir.
Gengið í Búlgaríu
Fagurt er um að lítast á gönguslóðum á Balkanskaga.
St. Pétursborg
Dagana 27. september til 4. október
verður farin ferð til Pétursborgar á
vegum Bændaferða. Margir telja
borgina eina þá fallegustu í heimi
og verður flogið þangað í beinu flugi
með Icelandair. Fararstjóri ferðarinn-
ar er Pétur Óli sem hefur búið árum
saman í borginni og þekkir því hvern
krók og kima. Farið verður í áhuga-
verðar skoðunarferðir um Pétursborg
og nágrennið. Reynt er að kynnast
sögunni og menningunni á sem fjöl-
breyttastan hátt, bæði með því að
skoða merka staði og borða góðan
mat. Hér gefst að sjálfsögðu einnig
tími til að slappa aðeins af og versla.
Nánari upplýsingar um ferðina má
finna á www.baendaferdir.is.
haustferð }
Það er fallegt um að litast í Pétursborg.
Vertu undir allt búinn – það er
minna mál en þú heldur.
Reyndir heims-
hornaflakkarar
vita að stundum
ganga ferðalög
vel, og stund-
um ekki.
Flestir þekkja
sögur af týnd-
um farangri,
annaðhvort af eigin raun eða í
gegnum vini og vandamenn, og
þeim raunum sem því getur fylgt.
Margir kjósa að vera undir það
búnir að vera viðskila við farang-
ur sinn og geta þannig tekist á við
lífið í nokkra daga án mikilla vand-
ræða. Ein leiðin er að ferðast allt-
af með lítinn bakpoka á sér og
hafa í honum tannbursta og tann-
krem, sokkapar, nærföt, vatns-
flösku og eilítinn gjaldeyri til að
geta keypt mat, leigubílsfar og
gistingu.
Þetta kann að virðast ógurlega
léttvægt, en prófaðu að lifa án
þessara hluta í þrjá daga og athug-
aðu hversu gaman það er.
Ferskur á
ferðalagi
– Mest lesið
Þetta gæti tekið tíma
Er fasteignin þín ekki í mest lesna fasteignablaðinu?
Þegar hægist um á fasteignamarkaði er mikilvægara en nokkru sinni að auglýsa
á besta staðnum. Samkvæmt nýjustu könnun Gallup* lesa 40% fleiri Íslendingar á
aldrinum 25–49 ára Allt-fasteignir en Fasteignablað Morgunblaðsins. Vertu viss
um að eignin þín nái athygli sem flestra!
*Samkvæmt könnun Gallup, maí 2006
F
í
t
o
n
/
S
Í
AEinstakt enskunámskeið
Fyrir þá sem vilja styrkja enskugrunninn,
tala og skilja enska tungu.
• Fjarnám með 27 1/2 tíma enskunámskeiði á cd diskum
• Slökunardiskur með jákvæðri staðfestingu með tónlist
frá Friðriki Karlssyni
• Vinnubók með enska og íslenska textanum
• Taska undir diskana
• Áheyrnarpróf í lok náms
Mörg stéttarfélög, fræðslusjóðir og fyrirtæki styrkja þetta námskeið
Allar uppl‡singar
www.tungumal.is
eða í símum 540-8400 eða 820-3799