Fréttablaðið - 29.07.2006, Side 47
LAUGARDAGUR 29. júlí 2006
Rúnin þurs var til í norrænu rúna-
letri. Hún var einnig til í engilsax-
nesku rúnaletri og hét þar þorn.
Engilsaxar tóku hana upp í latínu-
letur sitt vegna þess að þá vantaði
tákn fyrir tannmælt önghljóð, það
er þau hljóð sem í íslensku eru
skrifuð með ‚þ‘ og ‚ð‘. Íslendingar
og Norðmenn tóku sennilega upp
bókstafinn ,þ‘ þegar þeir fóru að
skrifa á móðurmáli sínu með lat-
ínuletri. Nafnið á stafnum í
íslensku bendir sterklega til þess
að stafurinn hafi verið tekinn úr
engilsaxnesku latínuletri en ekki
úr norrænu rúnaletri.
Líklega hefur íslenska verið skrif-
uð með latínuletri síðan á 11. öld
Ekki er vitað nákvæmlega hvenær
norrænir menn hófu að skrifa á
móðurmálinu með latínuletri en
líklegt er að það hafi gerst á síðari
hluta 11. aldar. Vitað er að íslensku
þjóðveldislögin voru skrifuð á bók
veturinn 1117–18 á Breiðabólstað í
Vesturhópi. Telja má víst að þá
hafi nokkur reynsla verið komin á
að rita íslensku með latínustöfum
fyrst Alþingi ákvað að láta skrifa
lögin þannig sumarið 1117. Það er
því ekki ólíklegt að tíundarlögin
hafi líka verið skrifuð niður þegar
þau voru samþykkt á Alþingi árið
1096; norskir fræðimenn gera
sömuleiðis ráð fyrir að lagaritun
hafi hafist í Noregi á síðari hluta
11. aldar.
‚þ‘ kemur fyrir í elstu íslensku
handritunum
Bókstafurinn ‚þ‘ kemur fyrir í
elstu íslensku og norsku handrit-
unum (frá miðri 12. öld). Stafurinn
hefur verið notaður í íslensku rit-
máli æ síðan. Norðmenn gáfust
aftur á móti upp á honum um eða
eftir árið 1400, enda rann óradd-
aða tannmælta önghljóðið [þ]
saman við [t] eða [d] í norsku og
var breytingin gengin yfir um
miðja 15. öld. Dæmi eru um ‚þ‘ í
enskum handritum og bréfum
fram um miðja 15. öld þótt um
langa hríð hafi verið algengara að
skrifa ‚th‘ í stað þess. Ekki er vitað
til að ‚þ‘ sé notað annars staðar en
í íslensku í latínuletri, en sérstak-
ur stafur (þeta) er notaður í grísku
letri til að tákna tannmælt öng-
hljóð.
Íslendingar taka upp ‚ð‘ á 13. öld
Íslendingar tóku ‚ð‘ sennilega eftir
Norðmönnum á fyrri hluta 13.
aldar, en fyrir þann tíma var skrif-
að ‚þ‘ þar sem nú er skrifað ‚ð‘. Það
var fyrst á þessum tíma sem ‚ð‘
fór að sjást í íslenskum handrit-
um, en bókstafinn má finna í elstu
norsku handritunum frá síðari
hluta 12. aldar. Norðmenn höfðu
svo sjálfir fengið ‚ð‘ að láni úr
ensku ritmáli.
Engilsaxar notuðu bæði stafina
‚ð‘ og ‚þ‘ fyrir tannmælt önghljóð.
Margir skrifarar höfðu þá reglu
að skrifa ‚ð‘ í innstöðu og bakstöðu
en ‚þ‘ í framstöðu; hið sama gerðu
norrænir menn. Englendingar not-
uðu stafinn fram undir lok 13.
aldar.
‚ð‘ hverfur úr ritmáli í 400 ár
Á 14. öld hættu Norðmenn að
skrifa ‚ð‘. Þetta gerðist í kjölfar
mikilla hljóðbreytinga í norsku
þar sem tannmælt önghljóð féll
brott í innstöðu og bakstöðu (eða
varð að [d]). Íslendingar fylgdu
Norðmönnum í þessu þótt sam-
svarandi hljóðbreytingar yrðu
ekki í íslensku. Stafurinn var horf-
inn úr íslensku ritmáli um 1400; í
stað ‚ð‘ skrifuðu Íslendingar ‚d‘. Á
fyrri hluta 19. aldar var ‚ð‘ tekið
upp aftur að frumkvæði Rasmus-
ar Rasks. Bókstafurinn var sömu-
leiðis tekinn upp í færeyskri rétt-
ritun þegar ritmál var þróað fyrir
færeysku um miðja 19. öld.
Uppruni ‚ð‘
Uppruni ‚ð‘ í engilsaxnesku rit-
máli virðist vera sá að sett var
strik eða lykkja aftan á hálegg ‚d‘,
en Engilsaxar skrifuðu ‚d‘ þannig
að háleggurinn hallaðist fram yfir
belginn. Síðar gat strikið náð yfir
legginn. Stafurinn ‚ð‘ var tekinn
upp í norsku ritmáli með hallandi
legg og striki eða lykkju þótt ‚d‘
væri á sama tíma skrifað með
beinum legg. Bókstafurinn barst
síðar til Íslands en þá var ‚d‘ með
hallandi legg orðið algengt í
íslenskri skrift. Hallandi ‚ð‘ var
tekið upp í íslenskri skrift á 19. öld
eftir miðaldahandritum þótt menn
skrifuðu og prentuðu ‚d‘ á sama
tíma með beinum legg. Þegar staf-
urinn var tekinn upp að nýju var
sett strik þvert yfir hálegginn þótt
lykkja hafi verið mun algengari á
miðöldum.
Fleiri tungumál nota ‚ð‘
‚ð‘ er hluti af bæði íslensku og
færeysku nútímaritmáli, og er að
auki notað í nokkrum öðrum
tungumálum sem skrifuð eru með
latínuletri; þeirra á meðal eru
samíska og króatíska en þá er
leggurinn hafður beinn eins og í
‚d‘; í króatísku stendur stafurinn
reyndar fyrir [dj] en ekki tann-
mælt önghljóð. Hljóðin [þ] og [ð]
eru ekki til í færeysku og stendur
‚ð‘ því fyrir önnur hljóð (svo sem
[d]) eða jafnvel ekkert hljóð, en
uppruni orða hafði mikil áhrif á
þróun færeyskrar stafsetningar.
Engilsaxar notuðu stundum
hástafinn ‚Б og fluttu Norðmenn
hann einnig inn. Hann var mikið
notaður á 13. öld þar sem nú væri
skrifaður hástafurinn ‚Þ‘ en ‚Б
féll úr notkun á 14. öld.
Guðvarður Már Gunnlaugsson, fræðimaður við
Stofnun Árna Magnússonar.
Hver er uppruni íslensku
bókstafanna ð og þ?
�������������
���������������
Vísindavefur Háskóla Íslands fjallar um öll vísindi, hverju nafni sem þau nefnast. Að jafn-
aði birtast þar 15-20 ný svör í hverri viku. Þar má til dæmis finna ýmis svör við spurning-
um sem tengjast sumri eða sól á einhvern hátt, svo sem: Hvers vegna verðum við brún
af því að vera mikið í sól, hvað er sólstingur, ef ég væri staddur úti í hita gæti ég þá sett
flösku ofan á blautt handklæði til að kæla hana, hvernig verkar sólarrafhlaða, af hverju
lifa ekki moskítóflugur á Íslandi fyrst þær geta lifað báðum megin á Grænlandi, er ekki
til vindhitun þegar lofthiti fer yfir 37 stig, líkt og vindkæling annars, hvað er sólarexem
og af hverju er seinna flóðið stærra en það fyrra á sólarhringnum á sumrin en öfugt á
veturna? Hægt er að lesa svör við þessum spurningum og fjölmörgum öðrum á slóðinni
www.visindavefur.hi.is.
ENGILSAXNESKT RÚNALETUR Rúnin ‚þorn‘ er þriðja frá vinstri.
KEMUR ÚT ALLA FIMMTUDAGA
Nana og Dísa
„Okkur dreymir um að eignast þrjú börn“
María Pétursdóttir
Lætur MS-sjúkdóminn ekki hindra sig
Bryndís Ásmundsdóttir
Eiginmaðurinn besti pabbi í heimi
NÝTT&FERSKARA
HÉR&NÚ