Fréttablaðið - 29.07.2006, Page 47

Fréttablaðið - 29.07.2006, Page 47
LAUGARDAGUR 29. júlí 2006 Rúnin þurs var til í norrænu rúna- letri. Hún var einnig til í engilsax- nesku rúnaletri og hét þar þorn. Engilsaxar tóku hana upp í latínu- letur sitt vegna þess að þá vantaði tákn fyrir tannmælt önghljóð, það er þau hljóð sem í íslensku eru skrifuð með ‚þ‘ og ‚ð‘. Íslendingar og Norðmenn tóku sennilega upp bókstafinn ,þ‘ þegar þeir fóru að skrifa á móðurmáli sínu með lat- ínuletri. Nafnið á stafnum í íslensku bendir sterklega til þess að stafurinn hafi verið tekinn úr engilsaxnesku latínuletri en ekki úr norrænu rúnaletri. Líklega hefur íslenska verið skrif- uð með latínuletri síðan á 11. öld Ekki er vitað nákvæmlega hvenær norrænir menn hófu að skrifa á móðurmálinu með latínuletri en líklegt er að það hafi gerst á síðari hluta 11. aldar. Vitað er að íslensku þjóðveldislögin voru skrifuð á bók veturinn 1117–18 á Breiðabólstað í Vesturhópi. Telja má víst að þá hafi nokkur reynsla verið komin á að rita íslensku með latínustöfum fyrst Alþingi ákvað að láta skrifa lögin þannig sumarið 1117. Það er því ekki ólíklegt að tíundarlögin hafi líka verið skrifuð niður þegar þau voru samþykkt á Alþingi árið 1096; norskir fræðimenn gera sömuleiðis ráð fyrir að lagaritun hafi hafist í Noregi á síðari hluta 11. aldar. ‚þ‘ kemur fyrir í elstu íslensku handritunum Bókstafurinn ‚þ‘ kemur fyrir í elstu íslensku og norsku handrit- unum (frá miðri 12. öld). Stafurinn hefur verið notaður í íslensku rit- máli æ síðan. Norðmenn gáfust aftur á móti upp á honum um eða eftir árið 1400, enda rann óradd- aða tannmælta önghljóðið [þ] saman við [t] eða [d] í norsku og var breytingin gengin yfir um miðja 15. öld. Dæmi eru um ‚þ‘ í enskum handritum og bréfum fram um miðja 15. öld þótt um langa hríð hafi verið algengara að skrifa ‚th‘ í stað þess. Ekki er vitað til að ‚þ‘ sé notað annars staðar en í íslensku í latínuletri, en sérstak- ur stafur (þeta) er notaður í grísku letri til að tákna tannmælt öng- hljóð. Íslendingar taka upp ‚ð‘ á 13. öld Íslendingar tóku ‚ð‘ sennilega eftir Norðmönnum á fyrri hluta 13. aldar, en fyrir þann tíma var skrif- að ‚þ‘ þar sem nú er skrifað ‚ð‘. Það var fyrst á þessum tíma sem ‚ð‘ fór að sjást í íslenskum handrit- um, en bókstafinn má finna í elstu norsku handritunum frá síðari hluta 12. aldar. Norðmenn höfðu svo sjálfir fengið ‚ð‘ að láni úr ensku ritmáli. Engilsaxar notuðu bæði stafina ‚ð‘ og ‚þ‘ fyrir tannmælt önghljóð. Margir skrifarar höfðu þá reglu að skrifa ‚ð‘ í innstöðu og bakstöðu en ‚þ‘ í framstöðu; hið sama gerðu norrænir menn. Englendingar not- uðu stafinn fram undir lok 13. aldar. ‚ð‘ hverfur úr ritmáli í 400 ár Á 14. öld hættu Norðmenn að skrifa ‚ð‘. Þetta gerðist í kjölfar mikilla hljóðbreytinga í norsku þar sem tannmælt önghljóð féll brott í innstöðu og bakstöðu (eða varð að [d]). Íslendingar fylgdu Norðmönnum í þessu þótt sam- svarandi hljóðbreytingar yrðu ekki í íslensku. Stafurinn var horf- inn úr íslensku ritmáli um 1400; í stað ‚ð‘ skrifuðu Íslendingar ‚d‘. Á fyrri hluta 19. aldar var ‚ð‘ tekið upp aftur að frumkvæði Rasmus- ar Rasks. Bókstafurinn var sömu- leiðis tekinn upp í færeyskri rétt- ritun þegar ritmál var þróað fyrir færeysku um miðja 19. öld. Uppruni ‚ð‘ Uppruni ‚ð‘ í engilsaxnesku rit- máli virðist vera sá að sett var strik eða lykkja aftan á hálegg ‚d‘, en Engilsaxar skrifuðu ‚d‘ þannig að háleggurinn hallaðist fram yfir belginn. Síðar gat strikið náð yfir legginn. Stafurinn ‚ð‘ var tekinn upp í norsku ritmáli með hallandi legg og striki eða lykkju þótt ‚d‘ væri á sama tíma skrifað með beinum legg. Bókstafurinn barst síðar til Íslands en þá var ‚d‘ með hallandi legg orðið algengt í íslenskri skrift. Hallandi ‚ð‘ var tekið upp í íslenskri skrift á 19. öld eftir miðaldahandritum þótt menn skrifuðu og prentuðu ‚d‘ á sama tíma með beinum legg. Þegar staf- urinn var tekinn upp að nýju var sett strik þvert yfir hálegginn þótt lykkja hafi verið mun algengari á miðöldum. Fleiri tungumál nota ‚ð‘ ‚ð‘ er hluti af bæði íslensku og færeysku nútímaritmáli, og er að auki notað í nokkrum öðrum tungumálum sem skrifuð eru með latínuletri; þeirra á meðal eru samíska og króatíska en þá er leggurinn hafður beinn eins og í ‚d‘; í króatísku stendur stafurinn reyndar fyrir [dj] en ekki tann- mælt önghljóð. Hljóðin [þ] og [ð] eru ekki til í færeysku og stendur ‚ð‘ því fyrir önnur hljóð (svo sem [d]) eða jafnvel ekkert hljóð, en uppruni orða hafði mikil áhrif á þróun færeyskrar stafsetningar. Engilsaxar notuðu stundum hástafinn ‚Б og fluttu Norðmenn hann einnig inn. Hann var mikið notaður á 13. öld þar sem nú væri skrifaður hástafurinn ‚Þ‘ en ‚Б féll úr notkun á 14. öld. Guðvarður Már Gunnlaugsson, fræðimaður við Stofnun Árna Magnússonar. Hver er uppruni íslensku bókstafanna ð og þ? ������������� ��������������� Vísindavefur Háskóla Íslands fjallar um öll vísindi, hverju nafni sem þau nefnast. Að jafn- aði birtast þar 15-20 ný svör í hverri viku. Þar má til dæmis finna ýmis svör við spurning- um sem tengjast sumri eða sól á einhvern hátt, svo sem: Hvers vegna verðum við brún af því að vera mikið í sól, hvað er sólstingur, ef ég væri staddur úti í hita gæti ég þá sett flösku ofan á blautt handklæði til að kæla hana, hvernig verkar sólarrafhlaða, af hverju lifa ekki moskítóflugur á Íslandi fyrst þær geta lifað báðum megin á Grænlandi, er ekki til vindhitun þegar lofthiti fer yfir 37 stig, líkt og vindkæling annars, hvað er sólarexem og af hverju er seinna flóðið stærra en það fyrra á sólarhringnum á sumrin en öfugt á veturna? Hægt er að lesa svör við þessum spurningum og fjölmörgum öðrum á slóðinni www.visindavefur.hi.is. ENGILSAXNESKT RÚNALETUR Rúnin ‚þorn‘ er þriðja frá vinstri. KEMUR ÚT ALLA FIMMTUDAGA Nana og Dísa „Okkur dreymir um að eignast þrjú börn“ María Pétursdóttir Lætur MS-sjúkdóminn ekki hindra sig Bryndís Ásmundsdóttir Eiginmaðurinn besti pabbi í heimi NÝTT&FERSKARA HÉR&NÚ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.