Fréttablaðið - 29.07.2006, Page 56
Á þessu ári eru liðin fjörutíu ár frá því að Ríkissjónvarpið fór fyrst í loftið og
tuttugu ár síðan Stöð 2 birtist fyrst á skjám landsmanna. Margir sögulegir
atburðir og fjölskrúðugt fólk hafa litið við inn í stofur landsmanna, skemmt
þeim eða frætt þá. Af þessu tilefni hafði Fréttablaðið samband við nokkra
valinkunna einstaklinga og bað þá um rifja upp hver væri eftirminnilegasti
sjónvarpsmaður landsins á þeim fjörutíu árum sem liðin eru síðan þjóðin
fékk sinn eigin imbakassa.
Á morgun verða síðan rifjuð upp nokkur merkileg og eftirminnileg atvik í
íslenskri sjónvarpssögu og á mánudaginn hefst svo kosning á Vísi.is þar sem
þjóðinni gefst kostur á að kjósa hver er eftirminnilegasti sjónvarpsmaður
landsins og eftirminnilegasta sjónvarpsatvikið.
Eftirminnilegasti sjónvarpsmaður Íslands
Í vali á eftirminnilegasta sjónvarspmanninum og eftirminnilegasta sjónvarpsatvikinu fékk Fréttablaðið
fimmtán álitsgjafa til liðs við sig, úr hinum og þessum geirum, níu karla og sex konur. Spurt var: Hver er eft-
irminnilegasti sjónvarpsmaður landsins? og Hvert er eftirminnilegasta sjónvarpsatvikið? Í þessu tilfelli
spannar orðið atvik vítt svið, getur í raun merkt eitt lítið atvik, eitt lítið atriði eða jafnvel heilan þátt. Álitsgjaf-
arnir gáfu jafnan fleiri en eitt svar við báðum spurningunum, enda úr mörgu að velja.
Magnús Bjarnfreðsson var eitt af fyrstu andlitun-
um sem birtust landsmönnum þegar Sjónvarpið
fór í loftið og nefndu nokkrir viðmælendur nafn
hans. „Mér hefur alltaf þótt missir af Magnúsi og
góðu þáttunum hans Á döfinni. Þar var sjónvarps-
tækninni beitt til hins ýtrasta til að segja hvað væri
í boði í menningarlífinu,“ sagði einn viðmælandi.
„Ég gat ekki séð annað en að sama hugmynd lægi
að baki þættinum Sjáðu með þeim Teiti Þorkels-
syni og Andreu Róbertsdóttur á Stöð 2,“ bætti hann
við. Annar sagði að Magnús hefði verið allt í öllu og
aðalmaðurinn í fyrstu útsendingum á RÚV. „Hann
var með mikla bassarödd og þægilega nærveru.
Algjör goðsögn og stór hluti af íslenskri sjónvarps-
sögu.“
Goðsögn í íslenskri sjónvarpssögu
MAGNÚS BJARNFREÐSSON
Bryndís Schram stjórnaði um tíma Stundinni
okkar og hefur greinilega farið það vel úr hendi
því fjölmargir viðmælendur nefndu hana á nafn.
„Hún var afskaplega skemmtilegur stjórnandi
hvort sem hún var að spjalla við heimilismenn á
Sólheimum í Grímsnesi, úða í sig bollum á bollu-
dag eða taka lagið með Þórði húsverði,“ sagði
einn viðmælandi blaðsins með fortíðarglampa í
augunum. „Langbesta Stundin okkar „ever“ með
Þórði húsverði og öllum þessum eðal gæjum.
Stundin verður aldrei söm,“ bætti annar við.
Stundin okkar verður aldrei söm
BRYNDÍS SCHRAM
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, hóf feril sinn í sjónvarpinu og
stjórnaði þá umræðuþáttum í anda þess sem Silfur Egils er. Nokkrir við-
mælendur töluðu um að Ólafur hefði breytt landslagi umræðuþátta því þeir
sem mættu fengu ekki spurningarnar fyrirfram eins og venjan var.
„Ólafur varð þjóðkunnur fyrir framkomu sína í sjónvarpi og
fyrir umræðuþætti sem hann stjórnaði þar,“ sagði einn viðmælandi
blaðsins.
„Þátturinn hans þótti oft á tíðum ótrúlega ósvífinn,“ bætti annar
við.
Breytti landslagi
umræðuþátta
ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON
Borgarfulltrúann Gísla Martein bar oft á góma hjá viðmælendum
blaðsins en hann er langyngstur af þeim sem nefndir voru. „Fyrstu
spor Gísla Marteins í Sjónvarpinu eru mjög eftirminnileg, þættirnir
sem hann var með ásamt Ragnheiði Söru. Þau voru bæði tvö að
byrja og gerðu mjög oft mistök en unnu vel úr því og urðu mjög sæt
saman á skjánum. Það var gaman að sjá hvernig hann þroskaðist og
varð virkilega góður sjónvarpsmaður.“ Annar viðmælandi sagði
Gísla eiga heima í hópi með Ómari Ragnarssyni og Hermanni Gunn-
arssyni.
Þroskaðist á skjánum
GÍSLI MARTEINN BALDURSSON