Fréttablaðið - 29.07.2006, Síða 57
Eftirminnilegasti sjónvarpsmaður Íslands
Of lítil mynd
Hermann Gunnarsson eða Hemmi Gunn eins og hann er oftast
kallaður á sér greinilega sína aðdáendur. „Hermann Gunnars-
son er ótvíræður sigurvegari. Hann er fyrirbæri í íslensku
sjónvarpi. Hann er í rauninni sjónvarp,“ sagði einn viðmæl-
andi blaðsins. „Hemmi Gunn kemur fyrstur upp í hugann enda
fór æska manns í það að horfa á hann á laugardagskvöldum,“
bætti annar við. „Þetta var alveg fastur liður og ég man að það
var varla fólk á götum úti þegar þátturinn hans var í gangi,“
bætti hann við.
Ómar Ragnarsson var oft nefndur af viðmælend-
um enda hálfgerður heimilisköttur á íslenskum
heimilum. Einn viðmælandinn orðaði það þannig
að hann væri einmitt heimilislegur og það lýsti af
honum á skjánum. „Hann er frændinn sem maður
vill fá í heimsókn.“ Annar sagði að Ómar væri
fæddur í þetta starf. „Ómar er kóngurinn.“ Einn
sagði að Ómar hefði af metnaði og hugmyndaauðgi
sett skemmtilegan svip á íslenskt sjónvarp og
fréttamennsku almennt á liðnum árum. „Sérlega
lipur og geðþekkur sjónvarpsmaður,“ bætti einn
viðmælandi blaðsins við. „Ég ólst upp við að Ómar
væri maðurinn og það er erfitt að hrista það af
sér,“ sagði annar. „Hann hefur flutt okkur fréttir af
landinu og þjóðinni í fjölbreyttum myndum, blanda
af rómantíker og fræðara.“
Rómantíker og fræðari
ÓMAR RAGNARSSON
Jón Gústafsson
„Ég skildi aldrei SPK. Þáttur með fullt af krökkum,
körfuboltum og stjórnanda sem hélt að hann væri
mikill töffari og passaði engan veginn þarna inn.“
Bjarni Haukur Þórisson:
„Erfitt að losna við hann úr minningunni enda eng-
inn byrjað með eins marga þætti og hann á upp-
hafsárum Skjás eins.“
Silvía Nótt
„Holdgervingur þess sem
íslenskt sjónvarp er orðið.
Fyrirsjáanlegt, sjálfhverft
og með mestan áhuga á yfir-
borði hlutanna.“
Elín Hirst
„Ótrúlega traust í fréttunum.“
Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir
„Mér fannst Jóhanna Vigdís strax góð.“
Eva Sólan
„Ég veit að hún er „bara“ þula og allt það, en þul-
urnar eru eins og Tobbi túba í ævintýrinu – undir-
staðan sem heldur þessu öllu uppi.“
Logi Bergmann Eiðsson
„Logi er mikið sjarmatröll, eðlilegur og afslappað-
ur í sjónvarpi.“
Þorsteinn Joð Vilhjálmsson
„Góður sjónvarps-
maður.“
ÞESSI VORU LÍKA NEFND
HERMANN GUNNARSSON
Sjónvarpið
holdi klætt