Fréttablaðið - 29.07.2006, Page 60
29. júlí 2006 LAUGARDAGUR40
menning@frettabladid.is
! Kl. 14.00Einleikurinn vinsæli Dimma-
limm eftir Elvar Loga Hannes-
son verður sýndur á Seyðisfirði.
Verkið er byggt á ævintýri
Muggs.
> Ekki missa af...
opnun á listasýningu
Sigurðar Örlygssonar í
Listhúsi Ófeigs á Skóla-
vörðustíg 5 kl. 17 í dag.
tónleikum Bela í Ketil-
húsinu á Akureyri í kvöld.
Hljómsveitin Red Cup hitar
upp.
gjörningum Steinunnar
Knútsdóttur sem skipu-
lagðir eru í tengslum við
sýninguna Out of Office
sem nú stendur yfir í
Norræna húsinu. Enginn veit
hvað gerist á milli 15-17 um
helgar.
Leikfélagið Sýnir lætur
ekki bugast af íslenskum
umhleypingum og óstöðugu
veðurfari heldur tjaldar því
sem til er uppi í Elliðaárdal
og frumsýnir Máfinn eftir
Anton Tsjekhov í dag.
Leikstjórinn að þessu sinni er Guð-
jón Þorsteinn Pálmarsson sem er í
vissum skilningi kominn á heima-
völl á ný en hann steig sín fyrstu
leikhússkref með hópnum á sínum
tíma. „Fyrir tveimur árum leik-
stýrði ég líka Stútungasögu sem
sett var upp í Heiðmörk en það var
fyrsta leikstjórnarverkefnið mitt
eftir að ég kom heim úr námi,“
útskýrir Guðjón.
Máfurinn er í miklu uppáhaldi
hjá Guðjóni og hann kveðst lengi
hafa rennt hýru auga til leikrits-
ins. „Þetta verk er hálfgerð ráð-
gáta og þetta var gríðarleg leit að
kjarnanum því leikritið talar aldrei
til manns á bara á einu plani. Síðan
eru allskyns klisjur sem hafa orðið
til í kringum Tsjekhov,“ segir Guð-
jón og útskýrir að búið sé að skera
burt samóvara og talsvert af
tedrykkju.
„Aðalpersónan Konstantín
hefur oft verið látin spila á fiðlu
en við viljum ekki sjá það. Hann
spilar á lúður núna.“
Annars sér sérlegur blokk-
flautukvartett um tónlistina í sýn-
ingunni en honum stjórnar Snæ-
björn Ragnarsson, Bibbi, en hann
hefur meðal annars samið tónlist
fyrir Hugleik, Leikfélag Kópavogs
og Leikfélag Hafnarfjarðar við
góðan orðstír. Um búninga sér
Kristín Gísladóttir en æðri máttar-
völd um aðra umgjörð og leik-
mynd.
Uppfærslan er nokkuð ófor-
skömmuð að sögn leikstjórans. „Við
höfum verið að leita að kómíkinni í
verkinu og styttum það töluvert og
erum alveg óhrædd við að nota ódýr-
ari leiðir til þess að kalla fram bros,“
segir leikstjórinn sposkur. „Tsjek-
hov hefur ábyggilega margsnúið sér
í gröfunni á meðan á æfingaferlinu
stóð. Við erum samt ekkert að freta
á verkið og reynum að bera virðingu
fyrir þessum sterku innri átökum
sem verða milli persónanna.“
Guðjón útskýrir að í leikhópn-
um séu margir af reyndustu ófag-
lærðu leikurum landsins. „Það er
yndislegt að vera upp í Elliðaárdal
með þessum góða hópi en þetta er
samt ekkert grín. Það eru mjög
sterkir einstaklingar innan hóps-
ins og maður verður að passa upp
á að þau passi hvert upp á annað.
Þetta eru allt saman stjörnur.“
Frumsýnt verður í dag kl. 15 í
stóra rjóðrinu í hólmanum milli
ánna en farinn er göngustígurinn
frá Rafveituheimilinu, yfir boga-
brúna og er þá komið að rjóðrinu.
Áhorfendur eru hvattir til þess að
taka með sér púða eða teppi og gott
er að taka ferðastól með ef fólk
getur ekki setið á jörðinni. Búið er
að skipuleggja að minnsta kosti
þrjár sýningar til viðbótar en nán-
ari upplýsingar má finna á heima-
síðunni www.leiklist.is. - khh
Máfurinn í Elliðaárdalnum
ÓFORSKÖMMUÐ UPPFÆRSLA Á YNDISLEGUM STAÐ Hádramatískt augnablik í Elliðaárdal.
Blokkflautukvartett Bibba leikur undir. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
Svífandi blöðruskreytt hjól hefur
vakið furðu vegfarenda um Lauga-
veg að undanförnu þar sem það
hangir yfir götunni til móts við
hús númer 22. Hópur ungra lista-
manna hefur nú játað að bera
ábyrgð á þessum verknaði og lýsti
því formlega yfir í gær að hjólið
væri sérlegt merki listhátíðarinn-
ar Artfarts sem nú stendur fyrir
dyrum.
Vonast aðstandendur hátíðarinn-
ar til þess að yfirvöld og aðrir leyfi
hjólinu að svífa í friði fram yfir
hátíðina sem lýkur 20. ágúst enda
var ekki að því hlaupið að koma far-
arskjótanum og blöðrunum fyrir.
Hjólið prýðir einnig stutterma-
boli sem seldir verða í fjáröflun-
arskyni fyrir hátíðina í verslun-
inni Nakti apinn í Bankastræti þar
sem listunnendur geta keypt sér
handgerða og einstaka auglýsingu
áprentaða á smekklega flík fyrir
lítið fé. Hver bolur er sérþrykktur
með merkinu svo vísast er um
eigulegan grip að ræða.
Nánari upplýsingar um hátíð-
ina má finna á heimasíðu Hins
hússins en hluti þátttakendanna
hefur starfað á vegum þess og
Reykjavíkurborgar við Skapandi
sumarstörf í sumar. - khh
Dularfullur svifhjólhestur
Föstudag 21. júlí kl. 20 uppselt
Laugardag 22. júlí kl. 20 uppselt
Sunnudag 23. júlí kl. 15 aukasýning
Sunnudag 23. júlí kl. 20 uppselt
Föstudag 28. júlí kl. 20 örfá sæti laus
Laugardag 29. júlí kl. 20 örfá sæti laus
Sunnudag 30 júlí kl 15 aukasýning
Sunnudag 30. júlí kl. 20 nokkur sæti laus
Föstudagur 4. ágúst kl. 20
Laugardagur 5. ágúst kl 20
Sunnudagur 6. ágúst kl. 15
Sunnudag 6. ágúst kl. 20
Laugardagur 19. ágúst kl 20
Tvíréttaður kvöldverður og
leikhúsmiði
kr. 4300 - 4800.- ÓVENJULEG KYNNINGARMYND Listamað-
urinn Morri á meðal annars heiðurinn af
hjólinu fljúgandi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Teiknisamkeppni
17. ágúst - kl. 20:00 - laus sæti
18. ágúst - kl. 20:00 - laus sæti
24. ágúst - kl. 20:00 - laus sæti
25. ágúst - kl. 20:00 - laus sæti
Níu listakonur hafa tekið sig saman og opna í dag
nýtt gallerí til húsa á Linnetstíg í Hafnarfirði. Gallerí-
ið heitir eftir Thorsplaninu sem það stendur við og
ber þann virðingarverða titil Gallerí Thors.
Að sögn Ingibjargar Klemenzdóttur, einnar af
aðstandendum gallerísins, verður fjölbreytt listalíf
í húsinu. Fimm myndlistarkonur og gullsmiður
standa að rekstrinum auk listakvenna sem fást við
keramik, glerlist og textíl en auk listmuna þeirra
verður aðstaða til sýningarhalds í galleríinu þar sem
gestalistamenn geta fengið að kynna sínar vörur.
„Þetta er glænýtt húsnæði og sérstaklega
innréttað fyrir gallerí,“ segir Ingibjörg og áréttar
að vitanlega verði opnað þar með glæsibrag. „Við
verðum líka með vísi að kaffihúsi, það verða nokkur
borð inni þar sem fólk getur notið listarinnar og svo
verður einnig hægt að sitja úti þegar vel viðrar.“
Galleríið verður formlega opnað kl. 16 í dag en
framvegis verður það opið 11-18 á virkum dögum
og 10-14 um helgar.
LISTAKONUR Í GALLERÍI THORS Kærkomin viðbót í
menningarflóru Hafnarfjarðar. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
Nýtt gallerí í Hafnarfirði
Í Reykjavík
er alltaf
eitthvað
sem er
nýjasta nýtt!