Fréttablaðið - 29.07.2006, Page 62

Fréttablaðið - 29.07.2006, Page 62
 29. júlí 2006 LAUGARDAGUR42 utlit@frettabladid.is MÓÐUR VIKUNNAR > Álfrún Pálsdóttir Spáir þú mikið í tískuna? Já, ég fer voða sjaldan eitthvað án þess að hugsa um það hvernig ég er til fara, en þó ekki um of. Mér finnst mikilvægt að sýna minn persónu- leika í klæðnaði, því það er eitt af því fyrsta sem fólk tekur eftir í fari annarra. Hvernig myndirðu lýsa stílnum þínum? Ég myndi segja hann vera frekar „street”, svartan og litríkan, þó ekki trúðslegan. Uppáhaldshönnuðir eða fata- merki? Ég dýrka Comme des Carcons, Hedi Slimane, Henrik Vibskov, Mr. Acne, Cheap Monday eða April 77 fyrir gallabuxur. Flottustu litirnir? Svartur, rauður og cyan. Hverju ertu veikastur fyrir? Tíglum. Hvaða flík keyptir þú þér síðast? Svarta/hlébarða „creepers” skó í Elvis og svört, mjó axlabönd. Hvað finnst þér flottast í tísk- unni núna? Rockabilly, nineties- elementin sem eru að ryðja sér til rúms á ný, há mitti og stuttar skálmar, symmetrísk mynstur, gull og tíglar. Hvað ætlaru að kaupa þér á næstunni? Mig langar mjög í April 77 jakka sem fæst í Nonnabúð og læt e.t.v. verða af því á næstunni, svo er ég svolítið heitur fyrir Soderstam dótinu í Belleville. Uppáhaldsverslun? Guerilla Store, Spúútnik eða Kron Kron – en ég býst við að nýja búðin þeirra Hrafnhildar Hólmgeirs og Nonna eigi eftir að verða langmest í uppáhaldi hjá mér þegar að því kemur. Hvað eyðir þú miklum pening- um í föt á mánuði? Ég skrifa á mig þar sem ég vinn um 20.000 á mánuði og ætli ég eyði ekki álíka miklu í viðbót annars staðar. Hvaða flíkur gætir þú ekki verið án? Ég gæti í raun alveg verið án allra flíka, líður reyndar best þannig, en það hlyti að vera aðrar hvorar svörtu niðurmjóu buxurnar mínar, Mr. Acne eða Ms. Cheap Monday. Uppáhaldsflík? Two People tígla- bolurinn minn eða Aftur peysan. Ég er frekar óákveðin týpa. Hvert myndir þú fara í verslunarferð? Berlín, held ég bara. Ljótasta flík sem þú hefur keypt þér? Mega oversized kóngablár secondhand stuttermabol- ur sem ég fékk í Elvis. Á honum stendur í stór- um svörtum stöfum á ská: RELAX. Hann er svo ljótur að hann er falleg- ur. SMEKKURINN SIGURÐUR ALEXANDER ODDSSON, NEMI Í LISTAHÁSKÓLA ÍSLANDS Mr. Acne og Miss Cheap Monday í uppáhaldi Gulllitaður klæðnaður byrj-aði að ryðja sér til rúms innan tískunnar í kringum diskótímabilið. Þá var glamúr alls- ráðandi og allt sem glitraði var í tísku. Hipphopparar hafa síðan tekið yfir gullið og færðu það yfir á okkar tíma með risastórum gull- hálsmenum sem þeir kalla svo skemmtilega „bling bling“. Nú er gull ákveðinn staðall fyrir kvenleika og glamúr. Það kom aftur upp á yfirborðið fyrir um það bil tveimur árum og hefur ekkert dottið niður síðan. Ef marka má tískupalla fyrir kom- andi vetur mun gulllitað vera mikið í bland við svart, ljósgrátt og silfurlitað. Það er nefnilega ákveðinn fílingur fyrir andstæð- um þennan veturinn. Gull og silf- ur saman hefur verið óskrátt lög- brot í regluskrám tískuheimsins en nú er sú samsetning leyfileg. Kosturinn við gulllitaðan er sá að hann passar við alla liti og setur glamúrsvip á hvaða flík sem er. Enda er hann litur toppsætisins. alfrun@frettabladid.is Allt er gull sem glóir ELIE SAAB Svakalega fallegur kjóll frá snilldar- hönnuði í gulllituðu. VESTI ERU VINSÆL Æðislegt vesti frá Spúútnik. MUNSTRAÐ Fallegur kjóll með gull- þráðum frá Kronkron. STAERK Gul- lituð prjóna- peysa sem skemmti- legu sniði frá Kron- kron. SKÓR Frábærir heklaðir gull- skór frá Rokki og Rósum. GULL OG SILFUR Flott peysa með skemmti- legu munstri frá Rokki og rósum. GULL GULL GULL Þetta er afbragðsgóð eftirlíking af „spybag“ töskunum frá Fendi frá Friis&CO. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN HERKÚLES Flottir sumarsandalar í gull- lituðu frá GS Skóm. GULL FRÁ TOPPI TIL TÁAR Matthew Williamson er ávallt með allt á hreinu og hér er glæsilegur gulllitaður kjóll úr smiðju hans. PÚFFERMAR Svakalegur jakki úr Spúútnik með gulllituðum púffermum. „CLUTCH BAG“ Slönguskinns- taska frá Rokki og rósum með gulllitaðri sylgju. GRÍMA Þessi er í gulli frá toppi til táar, með gullgrímu og í gull fatnaði. PALLÍETTUR Marc Jacobs klikkar aldrei og hér er hann með algjöran partíkjól fyrir veturinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES > Við mælum með ... lituðum gallabuxum. Ekkert er heitara þessa stundina en buxur í öllum regnbogans litum, svo lífgar það líka upp á tilveruna. Allar konur hafa gaman af því að klæðast fallegum fötum. Að kaupa ný föt, taka þau upp úr pokanum og leggja þau fallega inn í fataskáp er ákveðin helgiathöfn hjá flestum konum. Við marinerum oft heilann fyrir partí, brúðkaup, boð eða bara venjulegt laugardagskvöld á barn- um til að geta ákveðið í hverju við eigum að vera. Maður getur nefni- lega búið sér til ákveðna týpu útfrá fatnaði. Viltu vera fína týpan í Karen Millen-kjólnum og húðlitum sokkabuxum eða afslappaða týpan í víðum kjól með ruglingslegt hár og í lágbotna skóm? Ég hrósa alltaf happi yfir því að vera ekki karlmaður því ég elska allar þessar skemmtilegu pælingar og heilögu athafnir sem tengjast fötum og tísku. Auðvitað geta karlmenn spáð og spekúlerað jafn mikið og við í tísku en það er eiginlega bara gott að þeir gera það ekki því heimilislífið færi úr skorðum á mörgum stöðum ef húsbóndinn þyrfti allt í einu jafnmikið pláss í fataskápum og konan. Hvað þá ef hann færi allt í einu að taka sér jafn langan tíma og við í búðarráp og pælingar í mátunarklefunum? Einu sinni heyrði ég því fleygt að konur klæði sig fyrir konur. Reyndar var það karlmaður sem benti mér á þetta og bætti hann við að karlpeningurinn tæki ekki eftir dýrum kjólum eða flottri peysu við geggjaðar gallabuxur. Þeir taki meira eftir góðri lykt og fallegri heildarmynd að ógleymdum efnislitlum fötum og beru holdi sem þeir láta sjáldan framhjá sér fara... þessar elskur. Konur taka hins vegar eftir öllum smáatriðum, sérstaklega hvað varðar fatnað og útlit annarra kvenna. Við dæmum, horfum og tökum mið af fatnaði annarra kvenna. Ég tek allavega meira mark á hrósi frá vinkonum mínum varðandi klæðnað en frá karlkyns samstarfs- mönnum mínum sem vita lítið sem ekkert um tísku. Er þá ekki mikið til í þeirri staðreynd að þegar við konur klæðumst okkar fínasta pússi erum við meira að leitast eftir aðdáun og samþykki kvenna á fötunum sem við klæðumst heldur en athygli karlpeningsins? Eru það fötin sem þeir vilja? TRYGGÐU ÞÉR BLAÐIÐ Í ÁSKRIFT MEÐ 30% AFSLÆTTI Á AÐEINS 489 KR. EINTAKIÐ OG FÁÐU VEGLEGA GJÖF Í KAUPBÆTI GLÆNÝTT VEGGFÓÐUR ER KOMIÐ ÚT ÁSKRIFTARSÍMI 550 5000 | WWW.VISIR.IS • Draumahús íslenskra hjóna í Hollandi • Fjörupikknikk Áslaugar Snorradóttur • Rómantískt heimili Fjölnis Elvarssonar og Rósu Svövudóttur • Dagar Magnúsar Scheving fullir af tækifærum

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.